Litlar líkur á að almenningur fái upplýsingar um endanlega eigendur

Birtar hafa verið upp­lýs­ingar um nýja eig­endur Arion banka á heima­síðu bank­ans. Þar kemur ekk­ert fram um hverjir end­an­legir eig­endur eru. Fjár­mála­eft­ir­litið mun kalla eftir slíkum upp­lýs­ingum en þær upp­lýs­ingar falla undir trún­að­ar­skyldu eft­ir­lits­ins.

Jón Þór Sturluson, aðstoarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, kom ásamt sérfræðingum þess fyrir efnahags- og viðskiptanefnd í morgun.
Jón Þór Sturlu­son, aðsto­ar­for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, kom ásamt sér­fræð­ingum þess fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd í morgun. Mynd: Þórður Snær Júlíusson

Hverf­andi líkur eru á því að greint verði opin­ber­lega frá því hverjir séu end­an­legir eig­endur þeirra aðila sem keyptu 29,18 pró­sent hlut í Arion banka nýverið, og ætla sér að verða meiri­hluta­eig­endur í bank­anum þegar þeir hafa nýtt sér fyr­ir­liggj­andi kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar. Í upp­lýs­ingum sem birtar hafa verið um eig­endur aðil­anna, sem eru vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital, Attestor Capital og Och-Ziff Capital ásamt fjár­fest­inga­bank­anum Goldman Sachs, á heima­síðu Arion banka eru engar upp­lýs­ingar um end­an­lega eig­endur.

Á opnum fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd í morgun, þar sem full­trúar frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu sátu fyrir svörum, kom svo fram að eft­ir­litið hefði ríkan rétt til að kalla eftir upp­lýs­ingum um end­an­lega eig­endur og myndi gera það í mati sínu á hæfi eig­enda sem fram undan væri. Ein­hverjir þeirra væru nú þegar að afla sam­þykkis hjá end­an­legum eig­endum sínum til að upp­lýsa um það. Þær upp­lýs­ingar myndu hins vegar falla undir trún­að­ar­skyldu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og það gæti ekki miðlað þeim áfram til almenn­ings. Í ljósi þessa verða að telj­ast litlar líkur á því að almenn­ingur fái að vita hverjir eru end­an­legir eig­endur sjóð­anna.

Eru ekki skilgreindir virkir eigendur

Þeir fjórir aðilar sem til­kynntu um liðna helgi að þeir hefðu keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka í lok­uðu útboði, og hefðu samið um kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar, pössuðu allir upp á að fara ekki yfir tíu pró­sent beinan eign­ar­hlut hver. Ástæðan er sú að þá telj­ast þeir virkir eig­endur og þurfa að fara í gegnum mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem slíkir. Tveir vog­un­ar­sjóðir sem eru í hópnum, Taconic Capital og Att­er­stor Capital, keyptu þess vegna 9,99 pró­sent hlut hvor.

[links]

Sú skýr­ing hefur verið gefin opin­ber­lega að þeir hafi ekki viljað tefja fyrir sölu­ferli Arion banka með því að fara yfir tíu pró­sent í þessum fasa. Þeir ætli sér hins vegar að nýta umsam­inn kaup­rétt í aðdrag­anda skrán­ingar Arion banka á markað í haust og þá muni þeir fara í það ferli að láta meta sig sem virka eig­endur.

Samkvæmt lögum þarf að til­greina nöfn og hlut­falls­legt eign­ar­hald allra þeirra sem eiga umfram eitt pró­sent hluta­fjár í fjár­mála­fyr­ir­tæki á heima­síðu þess. Það þarf þó ekki að til­greina nafn ein­stak­linga sem eiga undir tíu pró­sent af hlutafé í við­kom­andi eig­anda, annað hvort beint eða óbeint.

Arion banki birti í morgun upp­færða hlut­haf­alista þar sem kemur fram að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá vog­un­ar­sjóð­unum þremur og Goldman Sachs eigi eng­inn ein­stak­lingur meira en tíu pró­sent í hverju félagi fyrir sig. Því er jafn lítið vitað um end­an­lega eig­endur þess­ara nýju eig­enda íslensks við­skipta­banka og var vitað um þá á sunnu­dag. Þ.e. ekk­ert.

Augljóst að verið sé að forðast tíu prósent markið

Salan á stórum hlut í Arion banka hefur vakið mikil við­brögð í sam­fé­lag­inu, og ekki síst á hinu póli­tíska sviði. Sá órói leiddi til þess að full­trúar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins voru kall­aðir á opin fund efna­hags- og við­skipta­nefndar í morgun til að svara spurn­ingum um málið. Þangað mætti Jón Þór Sturlu­son, aðstoð­ar­for­stjóri eft­ir­lits­ins, og tveir sér­fræð­ingar þess.

Jón Þór sagði þar að það væri „öllum aug­ljóst“ að þeir tveir eig­endur sem ákveðið hefðu að kaupa 9,99 pró­sent hlut hefðu gert slíkt vegna þess að þeir vildu ekki verða virkir eig­endur „að svo stöddu“. Fjár­mála­eft­ir­litið væri hins vegar byrjað að und­ir­búa könnun á hæfi þess­ara aðila og hafi meðal ann­ars átt fundi með þeim öllum.

[adspot]

Vog­un­ar­sjóð­irnir þrir og Goldman Sachs eiga sam­tals um 66 pró­sent í Kaup­þingi ehf., eign­ar­halds­fé­lagi utan um eft­ir­stand­andi eignir Kaup­þings. Þar er stór hluti í Arion banki stærsta ein­staka eignin. Alls á Kaupþing enn 57,9 pró­sent hlut í Arion banka eftir söl­una sem til­kynnt var um á sunnu­dag. Lilja Alfreðs­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, spurði á fund­inum út hvort að það lægi ekki fyrir að þegar óbeinn eign­ar­hlutur vog­un­ar­sjóð­anna í Arion banka í gegnum Kaupþing væri lagður saman við beinan eign­ar­hlut að þeir væru komnir með virkan eign­ar­hlut.

Jón Þór svar­aði því til að allir vog­un­ar­sjóð­irnir hefðu skuld­bundið sig til að tak­marka áhrif sín á Arion banka um stund­ar­sakir, eða þar til að almennt útboð á hlutum í bank­anum er yfir­staðið. Auk þess væru áhrif Kaup­þings á Arion banka mjög tak­mörkuð vegna skil­yrða sem sett voru á eign­ar­haldið á árinu 2010. Hann sagði líka óhætt að upp­lýsa um að það hefðu verið sett tíma­mörk á það milli­bils­á­stand sem nú ríkti. Líta yrði á sölu­ferli Arion banka sem hluta af stærri heild sem lyki með almennu útboði, í stað þess að horfa ein­vörð­ungu á þessa einu sölu sem átti sér stað um helg­ina.

Ekki gerð sérstök athugun á endanlegu eignarhaldi Goldman Sachs

Nefnd­ar­menn þrá­spurðu um hvort Fjár­mála­eft­ir­litið teldi sig hafa heim­ildir til þess að nálg­ast upp­lýs­ingar um hverjir væru end­an­legir eig­endur sjóð­anna sem allt stefnir í að verði ráð­andi eig­endur Arion banka. Þá var einnig spurt hvort kannað væri hvort þessir fjórir aðilar væru að vinna saman í þessum við­skiptum með þeim hætti að það ætti að flokka þá sem tengda aðila, en ekki að skoða hvern fyrir sig.

Jón Þór sagði að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði ríkar heim­ildir til að kalla eftir upp­lýs­ingum um raun­veru­legt eign­ar­hald sjóð­anna. Hægt sé að hafna því að við­kom­andi aðilar fái að vera virkir eig­endur ef ein­hver vafi leikur á því hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­legt eign­ar­hald séu réttar.

Hann greindi einnig frá því að ein­hverjir þeirra væru nú þegar að afla sam­þykkis hjá end­an­legum eig­endum sínum til að upp­lýsa um það. Þær upp­lýs­ingar myndu hins vegar falla undir trún­að­ar­skyldu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og það gæti ekki miðlað þeim áfram til almenn­ings.

Jón Þór sagði enn fremur að eft­ir­litið ætti að geta kom­ist að raun um hvort ein­hverjir íslenskir aðilar væru að baki sjóð­unum sem kynntir væru sem nýir eig­endur bank­ans. Þegar hafi þó verið full­yrt af tals­mönnum þeirra að ein­ungis erlent fjár­magn væri nýtt í við­skipt­unum.

Undir lok fund­ar­ins var spurt að því hvort gengið hefði verið úr skugga um að fjár­fest­inga­bank­inn Goldman Sachs væri að kaupa hlut í Arion banka á eigin reikn­ing, líkt og tals­menn kaup­enda full­yrða. Í svari Jóns Þórs kom fram að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi ekki gert sér­staka athugun á því.

Orðspor skiptir máli

Nefnd­ar­mönnum var líka tíð­rætt um orð­spor nýrra eig­enda og hvernig fjár­mögnun kaupanna væri háttað. Bæði eru atriði sem eru á meðal þeirra við­miða sem horft er til þegar Fjár­mála­eft­ir­litið metur hvort við­kom­andi séu hæfir til að eiga virkan eign­ar­hlut í íslenskum banka.

Þar var meðal ann­ars vísað í að Och-Ziff Capital hafi í sept­em­ber í fyrra greitt 23 millj­arða króna í sekt eftir að hafa geng­ist við því að hafa mútað emb­ætt­is­mönnum í Afríku til að liðka fyrir starf­semi sinni. Goldman Sachs hefur sömu­leiðis þurft að greiða mjög háar sektir vegna vafa­sams hátt­ernis í við­skiptum.

Í máli starfs­manna Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kom fram að orð­spor gæti snú­ist um ýmis­legt. Það gæti til dæmis snú­ist um heil­indi, hvort við­kom­andi hafi fengið dóm á sig eða hvort hann byggi yfir við­un­andi rekstr­ar­þekk­ingu til að vera virkur eig­andi að fjár­mála­fyr­ir­tæki. Jón Þór sagð­ist þó verða að fær­ast undan því að svara sér­tækum spurn­ingum um ein­staka aðila á þess­ari stundu, þar sem eft­ir­litið ætti eftir að fram­kvæma fag­legt mat á þeim. Þar myndu þó allir þessir hlutir koma til skoð­unar.

Brynjar Níelsson, þnig­maður Sjálf­stæð­is­flokks, spurði þá hvort það myndi skipta máli í þeim til­vikum þar sem brot hefðu átt sér stað hvort það væru ein­stakir starfs­menn sem hefðu brotið af sér eða hvort það væru stjórn­endur eða stjórn félags­ins. Ástæða þess að hann spyrði væri sú að öll fyr­ir­tæki og stofn­anir, jafn­vel stofn­anir eins og Fjár­mála­eft­ir­litið, gætu verið með svarta sauði inn­an­borðs. Jón Þór svar­aði því til að það gæti skipt máli hvort um starfs­menn eða stjórn­endur væri að ræða þegar afstaða yrði tekin til þess hvaða áhrif brot hefðu á orð­spor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár