Einkunn Och-Ziff færð niður í ruslflokk

Rekstur eins af nýjum eig­endum Arion banka hefur gengið illa að und­an­förnu og telur grein­andi Standard & Poor's að horf­urnar séu nei­kvæðar til fram­tíðar.

Láns­hæfsi­mats­fyr­ir­tækið Standard & Poor’s lækk­aði láns­hæf­is­ein­kunn Och-Ziff Capital Mana­gement Group niður í rusl­flokk í gær, sam­kvæmt umfjöllun á vef fyr­ir­tæk­is­ins en greint var frá lækk­un­inni á Marketwatch. Grein­andi Standard & Poor’s segir í grein­ingu sinni að rekstur félags­ins hafi versnað að und­an­förnu, vegna minnk­andi eigna í stýr­ingu, og þókn­ana­tekjur dreg­ist saman því sam­hliða. Er ein­kunnin því færð úr BB+ í BB. Horf­urnar til fram­tíðar eru taldar nei­kvæðar.

Sjóður á vegum Och-Ziff keypti 6,6 pró­sent hlut í Arion banka í lok­uðu útboði en greint var frá þeim við­skiptum dag­inn áður en láns­hæf­is­ein­kunnin var lækkuð, sem var í gær. Til­kynn­ingin um við­skiptin með hlut­inn í Arion banka var send út síð­ast­liðið sunnu­dags­kvöld.

Í frétta­til­kynn­ingu Arion banka vegna kaupanna, segir að Och-Ziff sé eitt af stærstu fyr­ir­tækjum heims á sviði sér­hæfðrar eigna­stýr­ingar og er virði eigna í stýr­ingu þess um 34 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 3.500 millj­örðum króna.

Aðal­stöðvar Och-Ziff eru í New York en fyr­ir­tækið er einnig með skrif­stofur í London, Hong Kong, Mumbai, Beijing, Shang­hai og Hou­ston. Meðal fjár­festa Och-Ziff eru líf­eyr­is­sjóð­ir, sjóða­sjóð­ir, stofn­anir og styrkt­ar­sjóð­ir, fyr­ir­tæki og aðrar stofn­an­ir, einka­bankar og fjár­sterkir ein­stak­ling­ar. Nánari grein­ing á eig­enda­hópnum kom ekki fram í til­kynn­ingu Arion banka.

[adspot]

Þeir fjórir erlendu sjóðir, sem til­kynnt var um að hefðu keypt tæp­lega 30 pró­sent hlut í Arion banka, eru meðal stærstu eig­enda Kaup­þings.Taconic, Och-Ziff, Attestor og Gold­man Sachs, sem keyptu sam­tals 29,18 pró­­sent hlut í Arion banka af Kaup­­þingi á 48,8 millj­­arða króna, eiga að mestu hlut­ina í gegnum sjóði.

Í hverjum sjóði eru margir hlut­deild­ars­kirtein­is­hafar og til að hægt sé að rekja eign­ar­haldið á hlut­deild­ar­skír­teini áfram þarf ein­stak­lingur að eiga yfir tíu pró­sent í umræddum sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár