Fjórir erlendir fjárfestar búnir að kaupa stóran hlut í Arion banka

Þrjú erlend sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki og Goldman Sachs eru búin að kaupa 29,18 pró­sent hlut í Arion banka í lok­uðu útboði.

Þrjú erlend sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki og Goldmans Sachs International hafa keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka í lok­uðu útboði. Alls greiða þeir 48,8 millj­arða króna fyrir hlut­inn. Fjár­fest­arnir fá einnig kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar á verði sem er hærra en það sem þeir greiddu í útboð­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Arion banka.

Þar með er ljóst, að minnsta kosti í bili, að stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru ekki að kaupa hlut í Arion banka, en þeir hafa verið í við­ræðum um slíkt und­an­farnar vikur. Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækin sem kaupa stærstan hluta þess sem selt var eru öll á meðal stærstu hlut­hafa Kaup­þings, félags utan um eignir kröfu­hafa sam­nefnds banka. Því eru þeir að kaupa eign sem þeir áttu hlut í nú þegar með óbeinum hætti.

[links]Sölu­and­virðið verður allt nýtt til að greiða inná 84 millj­arða króna skulda­bréf rík­is­sjóðs sem var hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi Kaup­þings sem sam­þykkt var við nauða­samn­inga félags­ins. Hinir nýju eig­endur hafa, sam­kvæmt til­kynn­ingu, allir stað­fest gagn­vart Kaup­þingi að raun­veru­legir eig­endur fjár­muna sem fjár­festir eru í Arion banka eru allir erlendir aðilar sam­kvæmt skil­grein­ingu laga um gjald­eyr­is­mál.

Kaupþing naut ráð­gjafar Morgan Stanley, White & Case og LOGOS í við­skipt­unum. Fjár­festar nutu ráð­gjafar Linkla­ters LLP og Fjeld­sted & Blöndal.

Tveir stærstu hluthafar Kaupþings á meðal kaupenda

Eftir kaupin er Kaupskil, félag í eigu Kaup­þings, enn stærsti eig­andi Arion banka með 57,9 pró­sent hlut. Íslenska ríkið á 13 pró­sent en sjóð­irnir Attestor Capital LLP (í gegnum Trinity Invesment Designated Acitivity Company) og Taconic Capital Advisors UK LLP (í gegnum TCA New Sidecar III s.a.r.l.) eiga nú 9,99 pró­sent hlut hvor. Þá mun Sculptor Invest­ments s.a.r.l. (félag tengt Och-Ziff Capital Mana­gement Group) eiga 6,6 pró­sent hlut og Goldman Sachs International 2,6 pró­sent hlut (í gegnum ELQ Investors II Ltd.).

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Paul Copley, for­stjóra Kaup­þings, að félagið fagni söl­unni. Hún sé liður í áfram­hald­andi við­leitni þess að inn­leysa eigna­safn þeirra og greiða fjár­muni til hlut­hafa Kaup­þings.

„Með þessum við­skiptum, sem eru stærstu ein­stöku hluta­bréfa­kaup erlendra aðila í sögu Íslands, strax í kjöl­far aflétt­ingar fjár­magns­haft­anna, höfum við tryggt aðkomu alþjóð­legra fjár­festa að Arion banka sem hafa milli­langa til langa sýn á fjár­fest­ingu sína. Allir eru þeir fjár­festar í Kaup­þingi og hafa ákveðið að end­ur­fjár­festa á Íslandi í stað þess að fara með fé sitt úr landi, sem er sterkt merki um trú þeirra á Íslandi og þá ekki síður á Arion banka.“

„Taconic Capital og Och-Ziff eru tveir stærstu hlut­hafar Kaup­þings og hafa í mörg ár tengst Íslandi með fjöl­breyttum fjár­fest­ingum. Á sama hátt er Attestor Capital stór hlut­hafi okkar og hefur á liðnum árum fjár­fest í mörgum fjár­mála­stofn­unum í Evrópu og á meðal ann­ars ráð­andi hlut í lána­stofnun í Aust­ur­ríki. Þátttaka þekkts fyr­ir­tækis á borð Goldman Sachs segir sína sögu.“

„Ég hlakka til að vinna með þessum félögum þegar við höldum áfram að selja hlut okkar í Arion banka, lík­lega í gegnum almennt hluta­fjár­út­boð þar sem við von­umst til að geta boðið ein­stak­lingum og félögum inn­an­lands færi á að fjár­festa í bank­anum,“ er haft eftir Copley í til­kynn­ing­unni.

Hafa hitt fjölda erlendra fjárfesta

Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, segir að bank­inn hafi lengi verið þeirrar skoð­unar að það væri jákvætt fyrir hann að fá erlenda aðila inn í hlut­hafa­hóp­inn.

„Við höfum á und­an­förnum árum hitt mik­inn fjölda erlendra fjár­festa og skynjað áhuga þeirra á Íslandi og bank­anum. Við verðum líka vör við þennan áhuga á fleiri sviðum hér á landi eins og í ferða­þjón­ustu og smá­sölu þar sem sterk alþjóð­leg vöru­merki sýna land­inu áður óþekktan áhuga. Það kemur okkur því ekki á óvart að þessir fjár­festar, sem hafa komið að bank­anum með óbeinum hætti í nokkur ár, kjósi nú að ger­ast hlut­hafar í Arion banka með beinum hætti.“

„Þeir þekkja bank­ann vel, hafa fylgst með okkar árangri og þeirri jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað í íslensku efna­hags­lífi. Þeir sýna það nú að þeir trúa því að fram­tíð bank­ans sé björt. Að nýir aðilar, alþjóð­legir fjár­festar, komi inn í hlut­hafa­hóp­inn markar upp­haf nýrra tíma. Í skoðun er að skrá félagið á markað og gangi það eftir mun eign­ar­hald dreifast enn frekar,“ er haft eftir Höskuldi.

Taconic Capital er alþjóð­legt fyr­ir­tæki í sér­hæfðri sjóða­stýr­ingu sem var stofnað árið 1999 með eignir að virði 6 millj­arða doll­ara í stýr­ingu. Höf­uð­stöðvar þess eru í New York og skrif­stofur í London og Hong Kong. Taconic Capital ann­ast stýr­ingu fjár­fest­inga­sjóða sem eru með selj­an­leika í sam­ræmi við fjár­fest­ing­una í Arion banka. Fjár­festar eru einkum stofn­ana­fjár­festar, líf­eyr­is­sjóðir, styrkt­ar­sjóðir og fjár­sterkir ein­stak­lingar.

Attestor Capital er fyr­ir­tæki í sér­hæfðri sjóða­stýr­ingu í Bret­landi sem starfar sam­kvæmt reglum og með leyfi fjár­mála­eft­ir­lits­ins þar í landi. Attestor Capital sér um fjár­fest­ingar fyrir Trinity Invest­ments Designated Activity Company. Fjár­festar eru einkum styrkt­ar­sjóðir og fjár­sterkir ein­stak­lingar.

Attestor Capital er lang­tíma­fjár­festir sem fjár­festir í félögum og eignum á ýmsum sviðum og í mörgum löndum. Af fyrri við­skiptum má nefna kaup á stórum eign­ar­hlut í fjár­mála­stofn­unum í Evrópu, þar á meðal á ráð­andi hlut í lána­stofnun í Aust­ur­ríki (eftir sam­þykki eig­enda­skipta af Seðla­banka Evrópu) og fjár­fest­ingu í fyr­ir­tæki í hús­næð­is­lána­starf­semi á Írlandi.

Och-Ziff Capital Mana­gement Group er eitt af stærstu fyr­ir­tækjum heims á sviði sér­hæfðrar eigna­stýr­ingar og er virði eigna í stýr­ingu þess um 34 millj­arðar doll­ara. Aðal­stöðvar Och-Ziff eru í New York en fyr­ir­tækið er einnig með skrif­stofur í London, Hong Kong, Mumbai, Beijing, Shanghai og Houston. Meðal fjár­festa Och-Ziff eru líf­eyr­is­sjóðir, sjóða­sjóðir, stofn­anir og styrkt­ar­sjóðir, fyr­ir­tæki og aðrar stofn­anir, einka­bankar og fjár­sterkir ein­stak­lingar.

Goldman Sachs veitir víð­tæka fjár­mála­þjón­ustu til við­skipta­vina um allan heim. Félagið var stofnað 1869 og hjá því starfa nú 34 þús­und starfs­menn í rúm­lega 80 starfs­stöðvum víða um heim. Goldman Sachs fjár­festir í Arion banka gegnum dótt­ur­fé­lag sitt ELQ Investors II Ltd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár