„Þessar þjóðir verða að borga það sem þær skulda“

Banda­ríkja­for­seti ítrekar þá afstöðu sína að ríki NATO verði að borga fyrir varnir síð­ustu ára.

Angela Merkel og Donald Trump mæta á blaðamannafundinn eftir að hafa rætt saman í Hvíta húsinu í Washington. Viðstaddir gátu ekki hrist af sér vandræðatilfinningu með samskipti leiðtoganna.
Angela Merkel og Donald Trump mæta á blaða­manna­fund­inn eftir að hafa rætt saman í Hvíta hús­inu í Washington. Við­staddir gátu ekki hrist af sér vand­ræða­til­finn­ingu með sam­skipti leið­tog­anna. Mynd: EPA

Leið­togar Banda­ríkj­anna fund­uðu und­an­farna daga með leið­togum Þýska­lands og Kína, bæði í Washington og í Peking. Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, heim­sótti Donald Trump Banda­ríkja­for­seta í Hvíta húsið og Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna fund­aði með starfs­bróður sínum í Kína og for­seta Kína, Xi Jinping.

[links]Í Washington báru mál­efni Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) hæst en Donald Trump hefur haft mörg orð um hern­að­ar­sam­starfið síðan hann var kjör­inn for­seti í vetur. Var þetta fyrsti fundur þeirra Merkel og Trump. Mis­mun­andi áherslur leið­tog­ana voru aug­ljósar á blaða­manna­fund­inum sem þau héldu eftir fund sinn, jafn­vel þó skila­boðin hafi stillt af og flutt í takt.

Angela Merkel hefur ekki farið leynt með skoð­anir sínar á Donald Trump og hans hug­myndum um gang heims­mál­anna. Að sama skapi hefur Trump ekki dregið úr þegar hann talar um Merkel í Twitter-skila­boðum sínum. Fyr­ir­fram var þess vegna búist við að fund­ur­inn yrði stirður, enda þyrfti að taka á sam­skipta­málum áður en hægt væri að ræða stjórn­málin.

Enginn einangrunarsinni

„Það er alltaf gott að tala við hvort annað um hvort annað, heldur en ekki,“ sagði Angela Merkel á blaða­manna­fund­inum. Merkel tal­aði á þýsku. Hún und­ir­strik­aði áherslur sínar í mál­efnum flótta­fólks, hnatt­væð­ingar og við­skipta­samn­inga sem væru til hags­bóta fyrir báða aðila.

Á sinni ensku tal­aði Trump hins vegar áfam um „rót­tæk íslömsk hryðju­verk“ og ræddi um hug­myndir sínar um að „gera Ameríku frá­bæra aftur“. Hann sagð­ist ekki vera ein­angr­un­ar­sinni og sagð­ist trúa á frjáls við­skipti.

[adspot]

„Á fund­inum ítrek­aði ég styrkan stuðn­ing minn við NATO og mik­il­vægi þess að banda­menn okkar í banda­lag­inu borgi sinn hluta af kostn­aði við varn­irnar,“ sagði Trump. „Margar þjóðir skulda háar fjár­hæðir fyrir varnir síð­ustu ára og það er mjög ósann­gjarnt gagn­vart Banda­ríkj­unum. Þessar þjóðir verða að borga það sem þær skulda.“

Auk Banda­ríkj­anna og Þýska­lands eru 28 þjóðir í NATO. Þeirra á meðal er Ísland, skráð sem ein stofn­þjóða hern­að­ar­banda­lags­ins.

Í kjöl­far fund­ar­ins flaug for­set­inn til Mar-a-Lago þar sem hann dvaldi á einka­setri sínu um helg­ina, þar sem hann spil­aði golf á Trump International Golf Course. Á gær­morgun skrif­aði Trump á Twitter að jafn­vel þó fundur þeirra Merkel hafi verið frá­bær þá skuldi Þýska­land enn þá háar fjár­hæðir til NATO og Banda­ríkj­anna.

Þýskaland segist ekkert skulda

Ursula von der Leyen, varn­ar­mála­ráð­herra Þýska­lands, hefur hafnað því að Þýska­land skuldi Banda­ríkj­unum „háar upp­hæðir“. Í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í dag, sunnu­dag, segir hún það ein­fald­lega rangt. „Það er eng­inn skulda­reikn­ingur hjá NATO.“

Samkvæmt sátt­mála NATO skuld­binda allar banda­lags­þjóð­irnar sig til þess að eyða tveimur pró­sentum af rík­is­út­gjöldum til varn­ar­mála. Von der Leyen segir rangt að öll þau útgjöld þurfi að renna til NATO.

„Útgjöld til varn­ar­mála renna einnig til frið­ar­gæslu á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna, evr­ópsk verk­efni og í fram­lög til bar­átt­unnar gegn hryðju­verkum Íslamska rík­is­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Vandræðaleg stemmning

Í evr­ópskum og banda­rískum fjöl­miðlum hefur verið fjallað um þann vand­ræða­brag sem var á fundi þeirra Merkels og Trumps. Tíst for­set­ans und­ir­strik­uðu enn frekar þá til­finn­ingu sem blaða­menn og ljós­mynd­arar föng­uðu á göngum Hvíta húss­ins.

Tvö atriði hafa staðið upp úr. Í einn skiptið mistókst leið­tog­unum að svið­setja handa­band á skrif­stofu for­set­ans, jafn­vel þó auð­velt sé að heyra köll ljós­mynd­ar­ana – og jafn­vel þó Merkel hafi sagt það berum orðum við Trump að ljós­mynd­ar­arnir hafi viljað handa­band. Þetta augna­blik má sjá að mynd­band­inu hér að neðan.

Sean Spicer, upp­lýs­inga­full­trúi Hvíta húss­ins, hefur vikið fyr­ir­spurnum blaða­manna um handa­bandið sem aldrei varð og sagt að Trump hafi ein­fald­lega ekki heyrt köll ljós­mynd­ar­ana.

Hitt augna­blikið vakti aug­ljós og óvænt við­brögð Angelu Merkel. Trump sagði þá að þau hefðu bæði verið hleruð í tíð Baracks Obama, for­vera Trumps í starfi for­seta. „Við eigum í það minnsta eitt­hvað sam­eig­in­leg­t,“ sagði Trump við Merkel og upp­skar hlátur við­staddra og undr­andi við­brögð Merkel.

[box]

Tillerson liðkar fyrir samskiptum

Á meðan und­ir­bjó Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Donalds Trump, fundi sína með Wang Yi, utan­rík­is­ráð­herra Kína, og Xi Jinpin, for­seta Kína. Með fund­unum var ætl­unin að liðka fyrir sam­skiptum ríkj­anna áður en Xi Jinping heim­sækir Trump í Banda­ríkj­unum.

Frétta­stofa Reuters greinir frá því að full­trúar bæði Kína og Banda­ríkj­anna hafi náð að halda sig við hand­ritið, þó Donald Trump hafi haft gagn­rýnt stjórn­völd í Kína á Twitter, rétt áður en Tiller­son lenti í Peking.

Fund­ur­inn hafi gengið vel og vel fór á með banda­rískum og kín­verskum ráða­mönnum, jafn­vel þó fá skref hafi verið stigin fram á við í þessum sam­ræðum.

„Ef litið er á jákvæðu hlið­arnar þá var eng­inn vand­ræða­gangur í sam­skipt­unum eins og í Washington,“ skrifa blaða­menn Reuters.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár