Hvar hefst þriðja heimstyrjöldin?

Spennu­þrungið and­rúms­loft er nú í alþjóða­stjórn­málum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur veltir fyrir sér hvort það sé komin upp staða sem geti hleypt af stað heim­styrj­öld.

Duck and Cover er stutt­mynd frá árinu 1951 sem fram­leidd var af Banda­ríkja­stjórn og sýnd í öllum grunn­skólum um ára­tuga skeið. Nútíma­fólk hlær að því hvernig börnum er kennt að forð­ast vít­iselda kjarn­orku­sprengj­unnar með því að fela sig undir borðum. Myndin er þó lýsandi fyrir þann ótta sem fólk bjó við, ótt­ann við tortým­ing­ar­stríð heims­veld­anna tveggja.

[links]Heim­ur­inn hefur verið mjög öruggur í ára­tugi… en það gæti hugs­an­lega breyst.

Flóknari veröld

Þriðja heim­styrj­öldin er hug­tak sem menn hafa velt fyrir sér í ára­tugi. Sumir hafa kallað kalda stríðið þriðju heim­styrj­öld­ina þó að Banda­ríkja­menn og Sov­ét­menn hafi aldrei barist með beinum hætti. Nokkrum sinnum mátti þó litlu muna, t.d. í Kóreu­stríð­inu og í Kúbu­deil­unni. Þá ótt­uð­ust menn kjarn­orku­vopnin mest og sáu fyrir sér nokk­urs konar heimsendi ef þeim yrði beitt. En kjarn­orkuógnin hélt senni­lega frið­inn því ríkin tvö þorðu ein­fald­lega ekki í stríð.

Eftir fall Sov­ét­ríkj­anna og upp­gang Kína hefur staðan orðið flókn­ari. Nú líta menn svo á að heim­styrj­öld inni­haldi a.m.k. tvö af stór­veld­unum þremur, Banda­ríkj­unum, Rúss­landi og Kína. En önnur ríki geta auð­vitað spilað stóra rullu, þá sér­stak­lega ríki Evr­ópu­sam­bands­ins. Ástandið nú er við­kvæmara en það hefur verið um ára­tugi.

[adspot]

Samstaða í Evrópu er að minnka með útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu og upp­gangi þjóð­ern­ispopúl­isma víða um álf­una. Þá hefur grund­völlur Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) verið dreg­inn í efa með kosn­ingu Donalds Trump en hann hefur gagn­rýnt NATO og daðrað við Rússa. Á sama tíma eru sterkir og árás­ar­gjarnir leið­togar við völd víða um heim; leið­togar á borð við Vladimír Pútín, Kim Jong-un og Recep Erdogan.

Alþjóða­væð­ingin flækir málin einnig. Heim­styrj­öld myndi hafa geig­væn­leg áhrif á mark­aði og efna­hag flestra ef ekki allra ríkja heims. Þá er tölvu­hern­aður einnig kafli út af fyrir sig. Sam­skipti, banka­kerfi, inn­viðir, raf­magn og fleira yrði skot­mark í slíku stríði. Heim­styrj­öld þarf þó ekki endi­lega að þýða kjarn­orku­stríð með til­heyr­andi mann­falli og umhverfi­spjöllum. Ríkin gætu séð hag sinn í því að há „heft stríð“, jafn­vel þó að þau sæu fram á það að tapa því. Hvar þriðja heim­styrj­öldin gæti brot­ist út er ómögu­legt að full­yrða um. En á fjórum stöðum á jörð­inni er ástandið sér­stak­lega við­kvæmt.

Suður-Kínahaf

Deilur hafa staðið um Suður-Kínahaf og þær (að mestu) mann­lausu eyjur og sker sem liggja í því. Kín­verjar gera kröfu um stærsta svæðið en Víetna­mar, Malasíu­menn og Fililpsey­ingjar gera einnig til­kall til hluta svæð­is­ins. Svæðið er að miklu leyti ókannað en þó má áætla að tölu­verðar auð­lindir geti fund­ist þar, t.d. olía og jarð­gas. Þá er haf­svæðið einnig mik­il­væg skipa­leið og fisk­veiði­svæði.

Á sein­ustu árum hafa Kín­verjar seilst til áhrifa víða um heim og hert á kröfum sínum í Suður-Kínahafi. Þeir hafa reist þar eyjar með land­fyll­ingu þar sem þeir hafa komið fyrir her­stöðvum, flota­stöðvum og flug­völlum. Aðrar þjóðir sem gera til­kall til svæð­is­ins eru ugg­andi yfir þró­un­inni sem og Banda­ríkja­menn og nán­ustu banda­menn þeirra í Austur-Asíu, þ.e. Japanir, Suður Kóreu­menn og Taívanir.

Banda­ríkja­menn líta á Kínverja sem sinn helsta keppi­naut um áhrif á alþjóða­grund­velli og reyna því hvað þeir geta að hamla útþenslu þeirra. Aðkoma Banda­ríkj­anna á Suður-Kínahafi veltur hins vegar að mestu leyti á því hverja þeir fá í lið með sér. Sögulega séð væri eðli­leg­ast að Banda­ríkja­menn myndu beita sér á svæð­inu sem nokk­urs konar vernd­arar Fil­ips­eyja, fyrrum nýlendu sinnar. En Rodrigo Duterte, for­seti Fil­ips­eyja, hefur verið allt annað en vin­veittur Banda­ríkja­mönnum. Duterte hefur einnig reynt að ná frið­sam­legri lausn á mál­inu við Kínverja og vill ekki styggja þá um of.

[quote]„Við förum í stríð á Suður Kínahafi á næstu 5 til 10 árum. Það er eng­inn vafi á því.“

– Steve Bannon, æðsti ráð­gjafi Donald Trump.[/quote]

Ef Banda­ríkja­menn myndu lenda í átökum á Suður-Kínahafi yrði það senni­lega á grund­velli krafna Taívan. Taívan gerir kröfu á svæðið líkt og Kína vegna þess að Taívan gerir kröfu á allt yfir­ráða­svæði alþýðu­lýð­veld­is­ins. Telja má lík­legt að Suður Kóreu­menn, Japanir og jafn­vel Ástralir myndu styðja Banda­ríkja­menn í slíkum hern­aði en hann myndi þó að öllum lík­indum fara alfarið fram í lofti og á sjó.

Helstu skot­mörk yrðu her­stöðvar Kínverja á mann­gerðu eyj­unum og svo stór flug­móðu­skip, beiti­skip og kaf­bátar. Ólíklegt er að land­hern­aði yrði beitt í slíku stríði en þó er ekki fyrir það loku skotið að Kín­verjar myndu láta gamlan draum ræt­ast og ráð­ast beint á eyj­una Taívan.

Ólíklegt er að Vestur-Evrópa og Rússland myndu drag­ast inn í átökin með beinum hætti en áhrifin af slíku stríði yrðu geig­væn­leg fyrir alla heims­byggð­ina. Þó að mann­fall yrði ekki mikið og kjarn­orku­vopnum ekki beitt þá myndi það raska við­skiptum og efna­hag heims­ins umtals­vert. Sér­stak­lega í ljósi þess að við­skipta­tengsl Banda­ríkj­anna og Kína eru mjög náin.

Kóreuskagi

Það hefur ríkt ógn­ar­jafn­vægi á Kóreu­skaga í 63 ár, eða síðan árið 1953 þegar Kóreu­stríð­inu lauk „de facto“ með vopna­hléi. Hvorug þjóðin hefur þó opin­ber­lega sætt sig við þær mála­lyktir og stefna þeirra beggja er að sam­eina skag­ann undir einum fána.

Þetta á sér­stak­lega við Norður-Kóreu því til­veru­grund­völlur lands­ins virð­ist byggður á and­stöðu við suð­ur­hlut­ann. Lengi hafði alþjóða­sam­fé­lagið litlar áhyggjur af Norður-Kóreu­mönnum og taldi hót­anir þeirra meira í orði en á borði. En eftir að hinn ungi Kim Jong-un tók við völdum af föður sínum, Kim Jong-il, í árs­lok 2011 hafa menn byrjað að svitna aðeins.

Jong-un er mun her­skárri og óút­reikn­an­legri en faðir hans var og hann ögrar heim­inum við hvert tæki­færi. Stórar her­æf­ingar og eld­flauga­skot hafa auk­ist til muna og þá hreykir Jong-un sér af kjarn­orku­getu lands­ins. Til að bregð­ast við þessu hafa Banda­ríkja­menn og Suður-Kóreu­menn eflt við­búnað sinn til muna. Árlegar her­æf­ingar sem nefn­ast Key Resolve verða stærri með hverju árinu og komið hefur verið fyrir eld­flauga­varn­ar­kerfi sem nefn­ist THAAD sem hefur getu til þess að skjóta niður kjarn­orkuflaugar.

[quote]„Þeir dagar eru taldir þegar óvinir okkar gátu kúgað okkur með kjarn­orku­vopnum.“

- Kim Jong-un.[/quote]

Ástandið er vissu­lega eld­fimt en hvor­ugur aðil­inn virð­ist hafa hag af því að fara í stríð. Suður Kórea er vel­meg­andi ríki sem virð­ist ekki hafa neinn raun­veru­legan áhuga á að því að yfir­taka fátæka og heila­þvegna frændur sína eftir mann­skætt stríð. Þá er til­vist Norður-Kóreu grund­völluð á ógn­inni sjálfri en ekki aðgerðum.

Það er óhugs­andi að þeir fengju að inn­lima suð­ur­hlut­ann. En hvernig gæti stríð þá brot­ist út? Tvær leiðir virð­ast lík­leg­astar í þeim efnum. Annars vegar að Kim Jong-un ákveði að ögra suð­ur­hlut­anum það mikið að ekki sé hægt annað en að líta á það sem stríðs­yf­ir­lýs­ingu. Hins vegar að Norður Kórea byrji að brotna inn­an­frá, t.d. í kjöl­far hreinsana sem Kim Jong-un stundar grimmt.

Ef borg­ara­styrj­öld brýst út í norðr­inu er lík­legt að suðrið bland­ist inn í þau átök. Óvíst er hvernig stríð á Kóreu­skaga myndi spil­ast og skiptir þar mestu stuðn­ingur Kínverja við norð­ur­hlut­ann, en hann hefur farið mjög dvín­andi eftir að Kim Jong-un komst til valda. Banda­ríkja­menn eru heldur ekki jafn vilj­ugir að ana út í mik­inn land­hernað en myndu sjá um allt annað.

Tækni­legir yfir­burðir þeirra eru miklir á flestum sviðum en Norður-Kóreu­menn hafa hins vegar ýmis­legt í poka­horn­inu. Þeir eiga risa­stóran land­her (eina milljón her­manna) og enn stærra vara­lið (sex millj­ónir her­manna) og þó að vopn þeirra séu að miklu leyti úrelt þá er ákveðni þeirra og fórn­fýsi senni­lega mjög mikil eftir inn­ræt­ingu frá blautu barns­beini.

Þá má ekki van­meta tölvu­deild Norður-Kóreu (Deild 121) sem hefur valdið usla í Suður-Kóreu á síð­ustu árum. Hættu­leg­ust eru þó kjarn­orku­vopnin, sér­stak­lega í ljósi þess að höf­uð­borgin Seoul er rétt sunnan landamær­anna. Hún gæti lent illa í árás. Ofan á þetta allt saman eru suður-kóresk stjórn­mál ákaf­lega við­kvæm þessa dag­ana þar sem nýbúið er að setja for­seta lands­ins af vegna spill­ing­ar­mála.

Sýrland

Stór­veldin Banda­ríkin og Rússland virð­ast vera að há tvö ólík stríð í Sýrlandi. Banda­ríkja­menn styðja Kúrda sem aðal­lega berj­ast gegn víga­sveitum Íslamska rík­is­ins. Rússar hafa hins vegar barist þétt við hlið ein­ræð­is­herr­ans Bashar al-Assad við upp­reisn­ar­menn (aðra en Íslamska ríkið). Bæði stór­veldin beita sér þó á til­tölu­lega litlu svæði í norð­ur­hluta lands­ins. Það sem flækir málið enn frekar er nær­vera Tyrkja handan landamær­anna.

Tyrkir hafa mik­illa hags­muna að gæta í Sýrlandi og hafa stutt við bakið á upp­reisn­ar­mönnum. Þeir eru því hvorki í náð­inni hjá al-Assad né Rússum, sér­stak­lega ekki eftir að þeir skutu niður rúss­neska orr­ustuflug­vél í nóv­em­ber­mán­uði árið 2015.

Tyrkir og Rússar hafa deilt um nákvæm­lega hvar flug­vélin var þegar hún var skotin niður, þ.e. hvort hún var inn í tyrk­neskri eða sýr­lenskri loft­helgi. Því er ljóst að ekki má mikið út af bregða á svo litlu svæði, hið minnsta slys gæti valdið alvar­legri milli­ríkja­deilu. Samband Banda­ríkj­anna og Tyrk­lands er ennþá flókn­ara.

[quote]„Eins og í for­tíð­inni, er það full­kom­lega mögu­legt að þriðja heim­styrj­öldin gæti haf­ist með smá­vægi­legum atburði, eða jafn­vel af slysni.“

- P.W. Singer, hern­að­ar­sér­fræð­ingur[/quote]

Tyrkir hafa lengi verið einir helstu banda­menn Banda­ríkja­manna og unnið með þeim innan NATO. En stuðn­ingur Banda­ríkja­manna við Kúrda, sem Tyrkir telja hryðju­verka­menn, hefur rýrt sam­bandið milli ríkj­anna. Eftir að Trump komst til valda í jan­úar varð ref­skákin í norð­ur­hluta Sýrlands enn flókn­ari og við­kvæm­ari því að Trump, Pútín og Erdogan eru allir djarfir og óút­reikn­an­legir pópúlistar.

Trump leggur meg­in­ár­herslu á að sigra Íslamska ríkið og hefur aukið umsvif Banda­ríkj­anna á svæð­inu. Rússar styðja al-Assad í bar­áttu hans gegn öllum óvina­herjum, þar á meðal Kúrdum. Það er því auð­veld­lega hægt að sjá fyrir sér atvik þar sem Rússar skjóta niður banda­ríska flug­vél.

Banda­ríkja­menn myndu svara því með ein­hverjum hætti og því gætu opnir bar­dagar milli land­anna tveggja raun­veru­lega átt sér stað. Það þarf ekki að þýða að Banda­ríkja­menn og Rússar beiti sér gegn hvorum öðrum ann­ars staðar á hnett­inum en það gæti fram­lengt og flækt enn frekar hið skelfi­lega stríð í Sýrlandi.

Eystrasalt

Árið 2008 ger­sigr­uðu Rússar Georg­íu­menn í stríði á aðeins örfáum dögum og árið 2014 sýndu þeir Úkra­ínu­mönnum klærnar þegar þeir inn­lim­uðu Krím­skaga og hófu stríðið í aust­ur­hér­að­inu Donbass sem mallar enn. Þessi tvö fyrrum Sov­étlýð­veldi höfðu sýnt vest­rænu sam­starfi áhuga og voru á flótta undan áhrifum Rússa.

Plan Pútíns virk­aði því löndin tvö munu hvorki ganga inn í ESB né NATO á meðan hluti þeirra er her­num­inn af Rússum. Margir telja að næsta skref Pútíns sé í Eystra­salt­inu en það er þó mun áhættu­sam­ara því að Eystra­salts­löndin þrjú hafa verið í Evr­ópu­sam­band­inu og NATO síðan árið 2004.

En þetta eru þó ein meg­in­á­stæðan fyrir því að þessi ríki eru til­valin skot­mörk fyrir Rússa. Í fimmtu grein NATO-sátt­mál­ans segir að árás á eitt aðild­ar­ríki jafn­gildi árás á þau öll og það er í raun grund­völlur sam­bands­ins. Ef Pútín tæk­ist að gera þessa grein marklausa yrði sam­bandið svo gott sem ónýtt. En Pútín getur vita­skuld ekki lýst opin­ber­lega yfir stríði og ráð­ist á löndin, hann verður að vera klók­ari en það.

Önnur ástæða fyrir því að Eystra­salts­löndin eru svo hent­ugt skot­mark er sú að þar eru stórir rúss­nesku­mæl­andi minni­hlutar. Sér­stak­lega í Eist­landi og Lett­landi þar sem um fjórð­ungur íbú­anna eru Rússar en 6% í Litháen.

[quote]„Sá sem situr í Kreml og metur áhætt­una á því að ráð­ast á Eystra­saltið gæti hugsað með sér: „Já, ég kemst upp með það.“

- Richard Shirreff, höf­undur bók­ar­innar 2017: War With Russia.[/quote]

Stríðið gæti byrjað á svip­aðan hátt og í Austur-Úkraínu, þ.e. að ein­hver atburður gæti átt sér stað sem hryndi að stað mót­mælum eða upp­þotum hjá rúss­neska minni­hlut­anum. Þetta myndi svo þró­ast út í vopnuð átök, jafn­vel borg­ara­styrj­öld og Rússar myndu að sjálf­sögðu aðstoða minni­hlut­ann með vopnum og jafn­vel mann­afla án þess þó að við­ur­kenna það. Einnig myndu Rússar bjóð­ast til þess að senda frið­ar­gæslu­lið á svæðið.

Hvernig Evrópa og Banda­ríkin bregð­ast við er lyk­il­at­riði. Hér ber að horfa til Banda­ríkj­anna, en Trump hefur verið frekar nei­kvæður út í NATO sam­starfið og tregur við að binda her­afla í nýjum stríðum, og svo Póllands. Það eru fá ríki á jörð­inni jafn andsnúin áhrifum Rússa og Pólland sem eiga landa­mæri að bæði Rúss­landi og Litháen.

Ef stríð bryt­ist út í Eystra­salt­inu myndu leið­togar Póllands berj­ast með kjafti og klóm fyrir því að NATO og Evr­ópu­sam­bandið beittu sér með beinum hætti. Ef Vest­ur­veldin hika er ekki loku fyrir það skotið að Pól­verjar beiti sér sjálfir með beinum hætti í Eystra­salt­inu og jafn­vel í rúss­neska eyland­inu Kalín­ingrad og þá er fjand­inn laus. En ef Vest­ur­veldin og Pólland halda að sér höndum og fimmta greinin verður dauður bók­stafur þá gætu önnur ríki Austur-Evrópu (t.d. Ung­verja­land, Rúmenía, Slóvakía) farið að hugsa sinn gang og jafn­vel leitað undir vernd­ar­væng Pútíns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár