Eru átök í aðsigi á Suður Kínahafi?

Und­an­farin miss­eri hefur aukin harka verið að fær­ast í deilur um yfir­ráð á Suður Kínahafi. Kín­verjar hafa þar slegið eign sinni á eyjar og kór­al­rif og lagt í stór­felldar fram­kvæmdir við upp­bygg­ingu mann­gerðra eyja, sem m.a. þjónar auknum hern­að­ar­legum við­bún­aði. Til nún­ings hefur komið í sam­skiptum og kín­verski flot­inn m.a. stuggað við banda­rískum eft­ir­lits­flug­vélum á svæð­inu. En um hvað snýst deilan, hvað eru Banda­ríkja­menn að gera þarna og gætu brot­ist út átök milli ríkj­anna eins og sumir hafa spáð?

Um hvað snýst deilan?


Mik­il­vægt er að átta sig á því að um þriðj­ungur allra sjó­flutn­inga í heim­inum fer um Suður Kínahaf. Næðu Kín­verjar mark­miðum sínum myndu þeir ráða yfir þessum mik­il­vægu flutn­ings­leiðum, en einnig gætu þeir neitað erlendum ríkjum um sigl­ingar af hern­að­ar­legum toga. Þetta er eitt­hvað sem hvorki Banda­ríkja­menn né aðrir telja sig geta horft uppá þegj­andi og hljóða­laust.

Kín­verjar hafa verið sak­aðir um að beita þeirri aðferð við inn­limun land­svæða að teikna kortið fyrst og láta síðan reyna á yfir­ráðin. Hafa þeir verið að eigna sér eyjar og eyja­klasa sem mynda hina svoköll­uðu níu-punkta línu sem fyrst var dregin árið 1947. Á lýð­veld­is­tím­anum á fyrri hluta 20. aldar, kort­lögðu þeir fjölda eyja eða kór­al­rifja og halda því nú fram að þeir eigi m.a. sögu um veiðar fiski­manna á svæð­inu—langt aftur í aldir, sem styðji kröfur þeirra.
Til að ein­falda málið má segja að Kín­verjar geri til­kall til 200 mílna lög­sögu umhverfis hverja þess­ara níu eyja eða punkta, sem þýðir í raun alger yfir­ráð yfir haf­svæð­inu sem deil­urnar snú­ast um. Ríkin sem eiga hags­muna að gæta auk Kína í norðri — þ.e. Víetnam í vestri, Fil­ipps­eyjar í austri og Malasía í suðri — myndu þá ein­ungis eiga eftir mjó sund með­fram ströndum ríkj­anna.

[caption id="attachment_33253" align="alignnone" width="1024"] Um borð í flug­móðu­skip­inu SSS George Washington.[/caption]

Þessi ríki, auk Banda­ríkj­anna, hafa því öll gagn­rýnt fram­ferði Kínverja og telja kröfur þeirra ekki eiga neina stoð í alþjóða­lögum—þetta sé alþjóð­legt haf­svæði sem falli undir Haf­rétt­ar­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Samkvæmt honum getur ríki ekki gert til­kall til haf­svæðis umhverfis eyjar sem fara á kaf á flóði, það á einnig við um land sem hefur verið reist úr hafi—eins og þær mann­gerðu eyjar sem byggðar eru á kór­al­rifjum.

Kín­verjar hafa nýlega tekið til við slíka eyja-upp­bygg­ingu og hafa verið gríð­ar­lega athafna­samir. Á síð­ustu 18 mán­uðum hafa þeir byggt upp meira land­svæði en öll hin ríkin á svæð­inu sam­an­lagt. Þeir hafa jafn­framt lagt í tals­verða hern­að­ar­lega upp­bygg­ingu og nýlega lauk gerð flug­brautar á einni eyj­unni. Þar getur nán­ast hvaða flug­vél þeirra sem er athafnað sig, sem styrkir hern­að­ar­lega fót­festu á svæð­inu.

Upp­bygg­ing slíkra fljót­andi eyja hefur við­geng­ist meðal þeirra ríkja sem eiga land að Suður Kínahafi um ára­tuga skeið, sér í lagi hafa Víetna­mar og Taivanar verið atkvæða­miklir. Flest þess­ara ríkja hafa komið þar fyrir ein­hvers­konar her­stöðvum en ekki mjög burð­ugum. Það sem er mik­il­vægt í þessu sam­hengi er að Kína er eina ríkið sem hefur hern­að­ar­lega burði til að verja það svæði sem það reynir nú að helga sér.

Hvað eru Bandaríkjamenn að gera þarna?


Einhver kynni að spyrja hvað Banda­ríkja­menn séu að gera í Suður Kínahafi, hvaða rétt hafa þeir á að skipta sér af á haf­svæði sem er víðs­fjarri þeirra form­legu lög­sögu?

Banda­ríski sjó­her­inn hefur verið virkur á Suður Kínahafi allar götur frá seinni heims­styrj­öld, vegna mik­il­vægi sigl­inga­leiða þar um og kín­versk yfir­völd hafa við­ur­kennt stöðu og hlut­verk Banda­ríkj­anna á svæð­inu. Jafn­framt hafa þau bent á að ekki megi túlka athafnir þeirra sem ögrun í keppni stór­velda um yfir­ráð í heim­inum, það sé liðin tíð. Banda­ríkin verði að sætta sig við til­komu og til­vist rísandi ríkja án þess að líta á þau sem beina ógn.

Banda­ríkja­menn hafa ekk­ert aðhafst vegna eyja-upp­bygg­inga ríkja Suð-austur Asíu á und­an­förnum árum, enda hafa þær verið innan hóf­legra marka og ekki stang­ast á við alþjóða­sátt­mála. Nú er annað uppi á ten­ingnum og hafa ein­stakir emb­ætt­is­menn Banda­ríkja­stjórnar m.a. látið hafa eftir sér að hegðun Kínverja sé sam­bæri­leg við fram­komu Rússa á Krím­skaga.

Banda­ríkja­menn hafa þó lagt áherslu á að blanda sér ekki í deilur um yfir­ráð en und­ir­strika að Suður Kínahaf sé sam­eign allra þjóða, alþjóð­legt haf­svæðið sem ekki til­heyri neinu ríki sér­stak­lega.

[caption id="attachment_33252" align="alignnone" width="1024"] C-2A Greyhound flug­vél und­ir­býr sig til lend­ingar á banda­rísku flug­móðskipi.[/caption]

Eru líkur á stríðsátökum?


Á það ber að líta að diplómat­ísk sam­skipti Banda­ríkj­anna og Kína eru þrátt fyrir allt mjög virk. Við­skipta­tengsl milli ríkj­anna eru gríð­ar­lega umfangs­mikil og for­ystu­menn beggja ríkja hafa lagt áherslu á að vilji sé til að leysa deil­urnar á frið­sam­legan hátt.

Hins vegar ber að hafa í huga að sam­skipti milli ríkja geta verið að ein­hverju leyti lag­skipt og má búast við því að deilan milli ríkj­anna geti magn­ast upp. Um leið og banda­rísk stjórn­völd hafa almennt verið hóf­stillt í yfir­lýs­ingum hefur varna­mála­ráðu­neytið ekki alveg gengið í takt, sem lík­lega er gert að yfir­lögðu ráði.

Áætlanir Kyrra­hafs­flota Banda­ríkj­anna ganga því út á að sigla og fljúga innan við 12 mílna mörk þess svæðis sem Kín­verjar hafa helgað og vilja skil­greina sem sitt. Banda­rísk skip og loft­för hafa nú þegar siglt nálægt þessum mörkum og Kín­verjar mót­mælt en ekki brugð­ist við að öðru leyti.

Kín­verjar hafa þó lýst því yfir að þeir muni verja það sem þeir telja sitt land­svæði. Þarna hafa inn­an­lands­þættir áhrif, því geti kín­versk stjórn­völd ekki haldið and­lit­inu gagn­vart Banda­ríkj­unum gæti það haft slæmar afleið­ingar heima fyrir. Á sama hátt þurfa banda­rísk stjórn­völd að sýna fram á að þau láti ekki vaða yfir sig, ekki aðeins heima fyrir heldur umheim­inum öllum—að þau hafi ennþá stjórn á hlut­unum.

Banda­ríkin hafa verið að þétta rað­irnar með banda­mönnum á svæð­inu, auk þess að njóta full­tingis Japana og Ástrala—og myndað tengsl við nýja banda­menn eins og Víetnam. Það gæti orðið til þess að Kín­verjar sjái sitt óvænna gagn­vart slíku sam­ein­uðu afli. Þetta er hins vegar tví­eggja sverð og gæti hvatt til enn frek­ari við­bún­aðar af þeirra hálfu.

Kín­verjar hafa stað­fest Haf­rétt­ar­sátt­mál­ann og Banda­ríkja­menn virða ákvæði hans sem alþjóða­lög. Því eru allar aðstæður til þess að semja um kröfur Kínverja og jafn­framt tryggja frelsi til sigl­inga. Með vel skipu­lögðum diplómat­ískum aðgerðum á því að vera hægt að forða alvar­legum átökum milli heims­veld­anna tveggja á Suður Kínahafi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár