Viðskiptasamband Íslands og Bandaríkjanna orðið umfangsmikið

Mikil aukn­ing í ferða­þjón­ustu hefur gjör­breytt við­skipta­sam­bandi Íslands og Banda­ríkj­anna. Meira en 400 þús­und Banda­ríkja­menn heim­sóttu landið í fyrra. Vöru­út­flutn­ingur á risa­vax­inn Banda­ríkja­markað er þó enn frek­mur umfangs­lít­ill.

Við­skipta­legt sam­band milli Íslands og Banda­ríkj­anna hefur auk­ist með dramat­ískum hætti á und­an­förnum tveimur árum og munar þar mestu mikla fjölgun ferða­manna. Hlut­falls­leg fjölgun far­þega frá Banda­ríkj­unum hefur verið langt umfram hlut­falls­legan vöxt í ferða­þjón­ust­unni og var árið í fyrra algjört met ár hvað þetta varðar.

Af um 1,8 millj­óna heild­ar­fjölda erlendra ferða­manna þá komu 415 þús­und frá Banda­ríkj­unum, eða sem nemur um 24 pró­sent af heild­inni. Sé mið tekið af grein­ingum sér­fræð­inga á gjald­eyr­is­inn­streymi ferða­þjón­ust­unnar í fyrra þá komu um 430 millj­arðar inn í landið frá erlendum ferða­mönnum. Nákvæmar tölur liggja þó ekki fyrir enn um hvernig útkoman var í fyrra. Því er spáð að aukn­ingin í ferða­þjón­ustu verði mikil á þessu ári og heild­ar­fjöldi gesta fari yfir 2,2 millj­ónir.

Sé mið tekið af fyrr­nefndu hlut­falli þá komu banda­rískir ferða­menn með ríf­lega 100 millj­arða inn í landið í fyrra og eyddu í ýmsa þjón­ustu fyrir ferða­menn.

Vöxt­ur­inn í vöru­út­flutn­ingi hefur hins vegar ekki verið mik­ill á und­an­förnum árum, en í fyrra nam hann um 40 til 42 millj­örðum króna. Hag­stofan hefur aðeins birt stöð­una fyrir fyrstu ell­efu mán­uð­ina, og nemur útflutn­ing­ur­inn þá ríf­lega 38 millj­örðum króna. Miðað við með­al­talið á mán­uði á fyrstu ell­efu mán­uðum þá má gera ráð fyrir að vöru­út­flutn­ing­ur­inn í des­em­ber mán­uði hafi numið um 2 til 4 millj­örðum króna.

Það eru einkum sjáv­ar­af­urðir sem fara inn á Banda­ríkja­markað.

Á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins nam vöru­úflutn­ing­ur­inn í heild sinni um 495,8 millj­örðum króna, sam­kvæmt tölu Hagstofu Íslands. Hlutur vöru­út­flutn­ings til Banda­ríkj­anna er um 8,4 pró­sent. Lang­sam­lega mest af vöru­út­flutn­ingi frá Íslandi fer til EES-svæð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár