Rúmur fjórðungur stjórnar Bjartrar framtíðar á móti stjórnarsáttmála

Björt Ólafsdóttir og Óttarr Proppé, verðandi fyrstu ráðherrar Bjartrar framtíðar í sögu flokksins.
Björt Ólafs­dóttir og Óttarr Proppé, verð­andi fyrstu ráð­herrar Bjartrar fram­tíðar í sögu flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rúmur fjórð­ungur stjórn­ar­manna í Bjartri fram­tíð greiddi atkvæði gegn sam­þykkt stjórn­ar­sátt­mála verð­andi rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar, sem Björt fram­tíð á aðild að ásamt Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn. Stjórn­ar­sátt­mál­inn var sam­þykktur í flokks­ráði Sjálf­stæð­is­flokks án nán­ast nokk­urra mót­mæla og hlaut dynj­andi lófa­klapp að því loknu. Hann var einnig sam­þykktur án athuga­semda í ráð­gjafa­ráði Við­reisnar. Fundi stjórnar Bjartrar fram­tíðar lauk síðar en fundi hinna tveggja flokk­anna og lauk ekki fyrr en seint á ell­efta tím­anum í gær. Í Morg­un­blað­inu segir að að loknum umræðum hafi hann verið sam­þykktur í raf­rænni atkvæða­greiðslu með 51 atkvæði en 18 voru á móti. Það þýðir því að tæp­lega 73 pró­sent þeirra stjórn­ar­manna sem greiddu atkvæði sam­þykktu sátt­mál­ann en rúm­lega 27 pró­sent voru á móti.

Nýr stjórn­ar­sátt­máli verður und­ir­rit­aður eftir hádegi í dag. Það mun þó ekki skýr­ast fyrr en í kvöld hverjir verða ráð­herrar í nýrri rík­is­stjórn þegar þing­flokkar stjórn­ar­flokk­anna funda. Fyrir liggur að Óttarr Proppé verður heil­brigð­is­ráð­herra og Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra. Þá mun Benedikt Jóhann­es­son verða fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir verður félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og Þor­steinn Víglunds­son verður sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. En hefur ekki feng­ist stað­fest hverjir muni setj­ast í ráð­herra­stóla fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn en Bjarni sagði í fréttum RÚV í gær að hann myndi ekki leita út fyrir þing­flokk­inn eftir ráð­herra­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár