RÚV krefst þess að Vigdís dragi „órökstuddar og ósannar ásakanir“ til baka

Frétta­stofa RÚV krefst þess að Vigdís Hauks­dóttir dragi órök­studdar og ósannar ásak­anir sínar til baka, en Vigdís sak­aði RÚV og Kastljós um að vilja kné­setja íslenskan land­búnað og falsa myndir sem birt­ust í Kast­ljóssumfjöllun um Brúnegg í gær­kvöldi.

„Það er óvið­un­andi að hafður sé uppi slíkur atvinnurógur í garð frétta­manna sem sinna sínum störfum af heil­indum og fag­mennsku,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Kast­ljósi, sem Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kast­ljóss og Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, skrifa báðar undir ásamt þeim frétta- og dag­skrár­gerð­ar­mönnum sem fjöll­uðu um mál­efni Brú­neggja í gær.

„Vigdís Hauks­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður fjár­laga­nefndar, heldur því fram á Facebooksíðu sinni að Kastljós sé „þekkt fyrir að falsa myndir með umfjöllun“, án þess að nefna um það dæmi, enda eru þau ekki til,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Vigdís sé að gefa í skyn að myndir sem hér­aðs­dýra­læknir Vest­ur­lands tók og voru birtar í Kast­ljósi í gær séu fals­aðar.

„Kastljós fékk aðgang að skoð­un­ar­skýrslum frá Mat­væla­stofnun í krafti upp­lýs­inga­laga og þeim ljós­myndum og mynd­böndum sem fylgdu skýrsl­unum. Í þætt­inum voru þær myndir ein­göngu sýndar með frá­sögn af þeim heim­sóknum. Það er óvið­un­andi að hafður sé uppi slíkur atvinnurógur í garð frétta­manna sem sinna sínum störfum af heil­indum og fag­mennsku. Ummæli þing­manns­ins fyrr­ver­andi vega alvar­lega að æru og starfs­heiðri frétta­manna RÚV og við það verður ekki unað. Frétta­stofa RÚV krefst þess að Vigdís Hauks­dóttir dragi órök­studdar og ósannar ásak­anir sínar til baka.“

Í sömu færslu á Facebook sagð­ist Vigdís hafa heim­ildir fyrir því að starfs­menn RÚV séu 700 tals­ins með verk­tökum. Þetta leið­réttir RÚV og segir að fjöldi stöðu­gilda sé 259 auk verk­taka í stærri tíma­bundnum verk­efni en hlut­fall þeirra fram­lags fari aldrei yfir 25% vinnu starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár