Telur Bjartra framtíð eiga „enga samleið“ með Sjálfstæðisflokknum

Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður Bjartar framtíðar.
Páll Valur Björns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartar fram­tíðar. Mynd: Anton Brink

Páll Valur Björns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar og stjórn­ar­maður í flokknum, seg­ist telja að Björt fram­tíð eigi enga sam­leið með Sjálf­stæð­is­flokknum. Hann hefði átt að vera síð­asti kostur í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum þar sem for­maður flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, sé á móti kerf­is­breyt­ingum. „Það var kosið út af Panama­skjöl­unum og þar var Bjarni.“ Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir Páll að Björt fram­tíð sé rót­tækur mann­rétt­inda- og umhverf­is­flokk sem sé alþjóð­lega sinn­aður. Margt frá­bært fólk sé í Sjálf­stæð­is­flokknum en það þurfi meira til. „Þeir sviku Evr­ópu­sam­bands­lof­orðið og ég er ekk­ert til­bú­inn til þess að fyr­ir­gefa það strax.“ Páll telur að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar muni enda fljót­lega þar sem hann trúi ekki öðru en að Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, muni gefa nokkuð eftir í þeim málum sem flokk­ur­inn hefur lagt áherslu á.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar hófust form­lega á laug­ar­dags­morgun eftir að ákveðið var að láta á þær reyna á föstu­dag. Fundað var stíft alla helg­ina. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, sagði í gær að hann vissi ekki hvernig við­ræð­unum myndi ljúka. Hann tjáði sig líka um mikla gagn­rýni sem Óttarr hefur fengið á sam­fé­lags­miðlum og í opin­berri umræðu fyrir það að taka þátt í yfir­stand­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Fjöl­margir þing­menn ann­arra flokka hafa gagn­rýnt það auk fjölda álits­gjafa. Þá gagn­rýndi Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Óttarr í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær. Þar sagði hún: „Æ, æ, Ótt­arr Proppé. Ekki láta það ger­ast að stjórn hægri­afl­anna í sam­fé­lag­inu verði í boði Bjartr­ar fram­tíðar þegar þið hafið betri kost í aug­sýn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár