Sjávarútvegsfyrirtæki áfram áberandi í styrkjum til ríkisstjórnarflokka

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru áber­andi meðal þeirra sem greiddu rík­is­stjórn­ar­flokk­unum, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki, hámarks­fjár­fram­lög árið 2015. Tíu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki gáfu hvorum flokki hámarks­fjár­hæð­ina 400 þús­und krónur, en þrjú sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki gáfu Sam­fylk­ing­unni hámarkið. Útdrættir úr árs­reikn­ingum þess­ara þriggja flokka birt­ust á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag. Útdrættir árs­reikn­inga ann­arra flokka sem eiga sæti á þingi hafa ekki birst ennþá.

Sjálfstæðisflokkurinn tapar peningum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði tæp­lega 7,7 millj­ónum króna árið 2015, sam­kvæmt nýbirtum útdrætti úr árs­reikn­ingi flokks­ins. Rekstur flokks­ins kost­aði 200 millj­ónir króna, sam­an­borgið við tæp­lega 268 millj­ónir árið 2014. Flokk­ur­inn fékk tæp­lega 230 millj­ónir króna í tekjur, en fjár­magns­gjöld námu tæpum 38 millj­ónum króna, sem valda því að flokk­ur­inn skil­aði tapi. Það var þó tals­vert minna en tap flokks­ins árið 2014, sem nam 36,7 millj­ónum króna. Árið þar á undan, kosn­inga­árið 2013, tap­aði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 127 millj­ónum króna.

Flokk­ur­inn fékk sam­tals tæp­lega 19,3 millj­ónir króna í fram­lög frá lög­að­ilum í fyrra, um tíu millj­ónum minna en árið á undan.

24 lög­að­ilar styrktu flokk­inn um hámarks­fjár­hæð­ina, 400 þús­und krónur, í fyrra. Þetta voru fyr­ir­tækin BL ehf, Brekku­hús ehf, Brim hf, Bygg­ing­ar­fé­lag Gylfa/Gunnars hf, GAM Mana­gement ráð­gjöf, Gjögur hf, HB Grandi, Hrað­frysti­húsið – Gunnvör hf, Hvalur hf, Icelandair Group, Icelandic Water Holdings, Íslensk Ameríska, Ísfélag Vest­manna­eyja, Juris, Kvika banki, Lýsi, Mannvit, Rammi, Reginn, Rolf Johansen & Co., Samherji, Síld­ar­vinnslan, Trygg­inga­mið­stöðum og Vísir.

Af þeim sem greiddu hámarks­fjár­hæð til flokks­ins eru 10 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, en auk þess eru mörg sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki meðal þeirra sem greiða lægri styrki til flokks­ins. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga styrkti flokk­inn um 350 þús­und krónur.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk engin fram­lög umfram 200 þús­und krónur frá ein­stak­lingum, en tæp­lega 30 millj­ónir króna í fram­lögum innan við 200 þús­und krónur og í félags­gjöld. Þá fékk flokk­ur­inn tæp­lega 70 millj­ónir króna í tekjur, aðal­lega leigu­tekjur og svo aug­lýs­ingu og selda þjón­ustu. Félags­gjöldin og fram­lögin frá ein­stak­lingum eru einnig tíu millj­ónum króna lægri í fyrra en árið þar á undan.

Tíu sjávarútvegsfyrirtæki og Kaupfélag Skagfirðinga með hámarksframlög

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hagn­að­ist um 19,3 millj­ónir króna í fyrra, sam­an­borið við rúmar sjö millj­ónir árið 2014, og tap upp á 19 millj­ónir kosn­inga­árið 2013. Flokk­ur­inn er ódýr­ari í rekstri en sam­starfs­flokk­ur­inn í rík­is­stjórn, rekstr­ar­gjöld námu 91 milljón króna í fyrra, en tekj­urnar námu 126 millj­ónum.

Flokk­ur­inn fékk 10,8 millj­ónir króna í fram­lög frá lög­að­ilum, sem er sjö millj­ónum minna en árið 2014, en nítján félög styrktu hann um hámarks­fram­lagið 400 þús­und krónur. Tíu þeirra voru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, mikið til þau sömu og styrktu Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga styrkti flokk­inn um hámarks­fjár­hæð, sem og fyr­ir­tækin Gjögur, HB Grandi, Hrað­frysti­húsið-Gunnvör, Hvalur, Icelandic Water Holdings, Ísfélag Vest­manna­eyja, Kvika banki, Lýsi, Samherji, Samskip, Skinney-Þinganes, Sól­stjarnan, sem er í eigu Skúla Gunnar Sig­fús­sonar fjár­festis, Ursus ehf., sem er í eigu Heiðars Guð­jóns­sonar fjár­festis, Vél­smiðja Hjalta Ein­ars­sonar, Vinnslu­stöðin, Vísir hf, Þingvangur og Þorbjörn hf.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk sam­tals tæp­lega 9,2 millj­ónir í almenn félags­gjöld og fram­lög ein­stak­linga undir 200 þús­und krónum, rúm­lega milljón minna en árið 2014. Þá fékk flokk­ur­inn rúm­lega 13,5 millj­ónir króna í aðrar tekjur, mest leigu­tekjur, aug­lýs­ingar og selda þjón­ustu.

Samfylkingin hagnast eftir að hafa dregið saman seglin

Sam­fylk­ingin skil­aði 21,4 millj­óna króna hagn­aði í fyrra, eftir að hafa dregið tals­vert saman í rekstri flokks­ins. Flokk­ur­inn hafði skilað hagn­aði upp á 2,6 millj­ónir árið 2014, eftir 55 millj­óna króna tap kosn­inga­árið 2013. Flokk­ur­inn hafði tekjur upp á tæp­lega 95,5 millj­ónir króna, en rekstur hans kost­aði tæpar 69 millj­ónir króna, sam­an­borið við tæpar 110 millj­ónir í fyrra.

Flokk­ur­inn fékk tæp­lega fimm millj­ónir króna í fram­lög frá lög­að­ilum í fyrra, þar af gáfu átta fyr­ir­tæki hámarks­upp­hæð­ina, 400 þús­und krónur. Það voru HB Grandi, Hof­garðar ehf, sem er í eigu Helga Magn­ús­sonar, Hrað­frysti­húsið-Gunnvör, Mannvit verk­fræði­stofa, Miðeind ehf, sem er í eigu Vil­hjálms Þor­steins­sonar, Reginn, Samherji og Síld­ar­vinnslan. Þrjú sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki styrktu Sam­fylk­ing­una um hámarks­upp­hæð­ina. Fram­lögin eru nokkuð lægri en árið 2014, þegar flokk­ur­inn fékk 8,4 millj­ónir frá lög­að­ilum.

Tíu ein­stak­lingar styrktu Sam­fylk­ing­una um fjár­hæðir umfram 200 þús­und krónur, en margir eiga það sam­eig­in­legt að vera kjörnir full­trúar flokks­ins. Það voru þau Arna Ír Gunn­ars­dóttir, Árni Páll Árnason, Björk Vil­helms­dóttir, Dagur B. Egg­erts­son, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, Hjálmar Sveins­son, Kristín Soffía Jóns­dóttir, Marta Sig­urð­ar­dóttir, Pétur Hrafn Sig­urðs­son og Skúli Helgason.

Þá fékk flokk­ur­inn félags­gjöld og fram­lög undir 200 þús­und krónum upp á 13,2 millj­ónir króna, svo að fram­lög frá ein­stak­lingum námu rúmum sextán millj­ónum, og aðrar tekjur flokks­ins, námu 13,7 millj­ónum. Framlög ein­stak­linga dróg­ust tals­vert saman milli ára, en árið 2014 námu þau 27,4 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár