30 prósent þingmanna samþykktu 132 milljarða króna búvörusamninga

19 þing­menn sam­þykktu í gær búvöru­samn­inga sem binda ríkið til að greiða yfir 130 millj­arða króna í styrki á næstu tíu árum. Fimm Sjálf­stæð­is­menn sögðu nei eða sátu hjá. Stjórn­ar­and­staðan var að mestu fjar­ver­andi.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi landbúnaðarráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirrituðu búvörusamninganna 19. febrúar síðastliðinn. Þeir voru samþykktir á Alþingi í gær.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, und­ir­rit­uðu búvöru­samn­ing­anna 19. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þeir voru sam­þykktir á Alþingi í gær. Mynd: Birgir Þór

Nýir og afar umdeildir búvöru­samn­ingar voru sam­þykktir á Alþingi í gær. Þeir munu kosta rík­is­sjóð yfir 130 millj­arða króna á næstu tíu árum hið minnsta. Sú tala gæti hækkað þar sem samn­ing­arnir eru tvö­falt verð­tryggðir. Samn­ing­arnir hafa verið harð­lega gagn­rýndir frá því að þeir voru und­ir­rit­aðir í febr­úar af núver­andi leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar. Gagn­rýnin snýr helst að því að hags­munir bænda og þeirra fyr­ir­tækja sem njóta góðs að land­bún­að­ar­kerfi Íslend­inga hafi verið teknir fram yfir hags­muni neyt­enda og skatt­greið­enda við gerð þeirra, sér­stak­lega vegna þess mikla kostn­aðar sem fylgir þeim og að þeir eiga að gilda til tíu ára, eða í tvö og hálft kjör­tíma­bil.

Þrátt fyrir háværa and­stöðu og stór orð sem látin hafa verið falla í ræðu­stólum Alþingis um þá voru samn­ing­arnir sam­þykktir. En ein­ungis 19 þing­menn, eða 30 pró­sent allra þing­manna, greiddu atkvæði með þeim. Sjö sögðu nei en aðrir sátu hjá eða voru ekki við­staddir þessa gríð­ar­lega mik­il­vægu og bind­andi atkvæða­greiðslu sem mun móta eitt af lyk­il­kerfum íslensks sam­fé­lags, hið rík­is­styrkta land­bún­að­ar­kerfi, næsta ára­tug­inn.

Bjarni og Sigurður Ingi undirrituðu samninganna

Búvöru­samn­ing­arnir eru fjórir samn­ingar: Ramma­samn­ingur um almenn starfs­skil­yrði land­bún­að­ar­ins og samn­ingar um starfs­skil­yrði naut­gripa­rækt­ar, sauð­fjár­ræktar og garð­yrkju.

Nýjustu samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir 19. febr­úar síð­ast­lið­inn af full­trúum bænda ann­ars vegar og full­trúum rík­is­ins. Fyrir hönd rík­is­ins skrif­uðu Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra og nú for­sæt­is­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, undir samn­ing­anna.

Það sem vakti mesta athygli við samn­ing­anna var að þeir eiga að gilda til tíu ára. Greiðslur úr rík­is­sjóði vegna samn­ings­ins nema 132 millj­örðum króna á samn­ings­tím­anum, eða að með­al­tali 13,2 millj­arðar króna á ári. Auk þess eru samn­ing­arnir tvö­falt verð­tryggðir. Þ.e. þeir taka árlegum breyt­ingum í sam­ræmi við verð­lags­upp­færslu fjár­laga og eru „leið­réttir“ ef þróun með­al­tals­vísi­tölu neyslu­verðs verður önnur en verð­lags­for­sendur fjár­laga á árinu.

Í samn­ing­unum er stefnt að því að kvóta­kerfi í mjólk­ur­fram­leiðslu og sauð­fjár­rækt verði lagt nið­ur. Hins vegar hefur verið ákveðið að halda núver­andi stöðu óbreyttri um ein­hvern tíma og setja ákvörðun um afnám kvóta­kerf­is­ins í atkvæða­greiðslu meðal bænda árið 2019.

Hörð gagnrýni

Und­ir­ritun samn­ing­anna vakti strax gríð­ar­lega hörð við­brögð. Sú gagn­rýni snéri fyrst og síð­ast að þeim upp­hæðum sem þar eru undir og tíma­lengd samn­ings­ins. Þá var harð­lega gagn­rýnt að hags­munir neyt­enda hefðu verið hunds­aðir við gerð þeirra. Var þar meðal ann­ars vísað í skýrslu sem Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands vann um mjólk­ur­vöru­fram­leiðslu á Íslandi og kom út í júni 2015. Nið­ur­staða hennar var nokkuð skýr: Íslenska kerfið er mein­gallað og afar kostn­að­ar­samt fyrir ríkið og neyt­end­ur.

Kerfið gerir það að verkum að íslenska ríkið og eig­endur þess, íslenskir neyt­end­ur, þurfa að borga um átta millj­örðum krónum meira fyrir fram­leiðslu á henni en ef mjólkin hefði ein­fald­lega verið flutt inn frá öðru fram­leiðslu­landi á árunum 2011 til 2013. Ríkið og neyt­endur borg­uðu 15,5 millj­arða króna fyrir mjólk­ina á tíma­bil­inu en inn­flutt mjólk, með flutn­ings­kostn­aði, hefði kostað 7,5 millj­arða króna. Reyndar var það svo að á tíma­bil­inu sem um ræðir var fram­leitt meira af mjólk hér­lendis en neytt var af henni. Neysla Íslend­inga hefði ein­ungis kostað tæp­lega 6,5 millj­arða króna á ári. Offram­leiðsla á nið­ur­greiddri mjólk­inni kost­aði neyt­endur og ríkið því millj­arð til við­bót­ar.

Félag atvinnu­rek­enda og Sam­tök versl­unar og þjón­ustu gagn­rýndu samn­ing­ana harð­lega. Óljóst væri hvernig almenn­ingur myndi njóta góðs af þeim og með þeim sé verið að við­halda ein­okun á mjólk­ur­mark­aði.

Stjórn­ar­and­staðan setti fram marg­hátt­aða gagn­rýni á samn­ing­anna og ýmsir þing­menn og for­ystu­fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum gagn­rýndu þá harð­lega, enda telja margir innan þess flokks að samn­ing­arnir séu í and­stöðu við lands­fund­ar­á­lykt­anir hans.

Breytingartillögur lagðar fram

Í lok ágúst lagði meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar fram breyt­ing­ar­til­lögur á samn­ing­unum. Þar var lagt til að fella burt ákvæði um verð­lag á land­bún­að­ar­vörum og að heild­ar­at­kvæða­greiðsla um samn­ing­ana yrði meðal bænda árið 2019. Skýrt yrði kveðið á um end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði innan þriggja ára. Þar sagði: „Eigi síðar en 18. októ­ber 2016 skal sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra skipa sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Tryggja skal aðkomu afurða­stöðva, atvinnu­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda að end­ur­skoð­un­inni og skal henni lokið eigi síðar en árið 2019. Skulu bændur eiga þess kost að kjósa um nýjan búvöru­samn­ing eða við­bætur við fyrri samn­inga.“ Tíu ára gild­is­tími samn­ing­anna hélt sér hins vegar.

Engar frek­ari efn­is­breyt­ingar voru gerðar á samn­ing­unum milli ann­arrar og þriðju umræðu á þingi, þrátt fyrir að stjórn­ar­and­staðan hafi lagt fram breyt­ing­ar­til­lögur utan þess að bætt var við heim­ild til að fella niður greiðslur til bænda sem verða upp­vísir að dýra­níði.

Félag atvinnu­rek­enda gagn­rýndi breyt­ing­ar­til­lög­urnar og sögðu þær ganga allt og skammt.

Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk sögðu nei eða sátu hjá

Búvöru­samn­ing­arnir voru svo sam­þykktir á þingi í gær. 19 þing­menn greiddu atkvæði með þeim en sjö sögðu nei. Alls sátu 16 þing­menn hjá, sjö voru með skráða fjar­vist og 14 voru fjar­ver­andi án skýr­ingar.

Þeir þing­menn sem greiddu atkvæði með samn­ingnum eru allir frá Fram­sókn­ar­flokki (12 tals­ins) og Sjálf­stæð­is­flokki (sjö tals­ins). Einn þeirra er Vil­hjálmur Bjarna­son, sem sagði í febr­úar að hann gæti ekki stutt samn­ing­anna eins og þeir voru þá.

Þeir þing­menn sem greiddu atkvæði gegn búvöru­samn­ing­unum voru allir þing­menn Bjartrar fram­tíðar, sem höfðu lagt til að frum­varpi um samn­ing­anna yrði vísað frá og vinna við þá hafin að nýju með aðkomu fleiri aðila en bara rík­is­ins og bænda. Auk þeirra greiddi einn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, Sigríður Á. Andersen, atkvæði gegn samn­ing­unum. Fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þau Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, Birgir Ármanns­son og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, sátu auk þess hjá við atkvæða­greiðsl­una.

Athygli vakti að þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar sat annað hvort hjá við atkvæða­greiðsl­una eða var fjar­ver­andi þegar hún kom fram, sér­stak­lega vegna þess að „kerf­is­breyt­ingar“ eru tísku­orðið hjá henni í aðdrag­anda kom­andi kosn­ingum. Ein þeirra „kerf­is­breyt­inga“ sem mikið hefur verið talað um innan raða þeirra, og úr ræðu­stól Alþingis, er grund­vall­ar­breyt­ing á land­bún­að­ar­kerf­inu.

Innan Pírata, sem mælst hafa með mest fylgi allra flokka und­an­farin miss­eri, er mikil reiði með þá afstöðu þing­manna flokks­ins að sitja hjá í atkvæða­greiðsl­unni, en það rök­studdu þeir með því að það sé við­mið hjá þeim að sitja hjá í þeim málum sem koma frá nefndum þar sem flokk­ur­inn er ekki með aðal­menn í. Atvinnu­vega­nefnd er ein slík. Því sé hjá­seta í sam­ræmi við við­mið Pírata um upp­lýsta ákvörð­un­ar­töku. Á Pírata­spjall­inu hafa þing­menn­irnir hins vegar verið gagn­rýndir harð­lega. Ein rök­semd­anna sem lögð var fram þar er sú að það hefði falist upp­lýst afstaða í því að hafna samn­ing­unum á grund­velli þess að í þeim væri verið væri að tak­marka frelsi kjós­enda til að hafa áhrif á land­bún­að­ar­kerfið í ára­tug.

Ekki ríkistyrkur heldur niðurgreiðsla fyrir almenning

Gunnar Bragi Sveins­son, land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sagði í kvöld­fréttum Stöðvar 2í gær að það hefði komið honum á óvart að fimm þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks hefðu ekki stutt samn­ing­inn, þar sem hann hafi verið und­ir­rit­aður af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni flokks­ins. „En þetta er komið í hús núna og nú verðum við bara að vinna eftir þessum samn­ingi[...]Þessi samn­ingur þýðir að nú eigum við að geta búið til stöð­ug­leika til nokkuð langs tíma um þetta umhverfi. Bændur eiga nokkurn veg­inn að geta séð hvað bíður þeirra í fram­tíð­inni[...]Það er ekk­ert óeðli­legt við það að við notum fjár­muni til þess að tryggja íslenskan land­búnað eins og allir aðrir.“

Gunnar Bragi var ósam­mála því að um rík­is­styrktan búskap væri að ræða. „Er þetta ekki frekar nið­ur­greiddar vörur til almenn­ings sem verið er að tryggja þarna? Heil­næmar og góðar vörur. Ég held að það sé þannig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár