Viðreisn og Björt framtíð vilja ekki útiloka samstarf við neinn

For­ystu­menn Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar segja sam­starf við aðra flokka eftir kom­andi kosn­ingar byggja á mál­efnum. Stofn­andi Við­reisnar segir feigð­ar­flan ef ekki verði kosið í haust og gefur ekki mikið fyrir skrif Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segist ekki vera ánægður með núverandi ríkisstjórn. Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, segir flokkinn ekki hafa rætt samstarfsflokka neitt sérstaklega, en það velti alfarið á málefnum.
Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, seg­ist ekki vera ánægður með núver­andi rík­is­stjórn. Benedikt Jóhann­es­son, stofn­andi Við­reisnar, segir flokk­inn ekki hafa rætt sam­starfs­flokka neitt sér­stak­lega, en það velti alfarið á mál­efnum.

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, og Benedikt Jóhann­es­son, for­svars­maður Við­reisnar, segja flokka sína ekki getað úti­lokað sam­starf við neinn eftir kom­andi kosn­ingar. Samstarf byggi á mál­efnum og hvort fólk geti komið sér saman um slíkt.

Birgitta, Katrín og Oddný hafna allar Sjálfstæðisflokknum

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, sögð­ust í morgun við Kjarnann úti­loka sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir kosn­ingar. Katrín og Birgitta sögðu flokk­inn hafa stimplað sig út úr mögu­leika á sam­starfi þegar for­mað­ur­inn til­kynnti að hann mundi berj­ast gegn kerf­is­breyt­ingum.

Ekki ánægður með ríkisstjórnina

Óttarr und­ir­strikar þó að Björt fram­tíð hafi ekki verið mjög hrifin af núver­andi rík­is­stjórn.

„Við höfum verið mjög gagn­rýnin á margt sem hún hefur gert og stefnu hennar,“ segir hann í sam­tali við Kjarnann. „Að óbreyttu finnst manni sam­starf við flokk­ana ólík­legt en við viljum ekki fyr­ir­fram úti­loka slíkt við neinn þar sem þetta byggir á mál­efnum. Við höfum unnið með flestum öðrum flokkum í sveit­ar­stjórnum og það getur alveg gengið upp.“

Viðreisn vill róttækar kerfisbreytingar

Benedikt segir við Kjarnann að flokks­menn hafi ekki rætt þessi mál neitt sér­stak­lega, enda sé flokk­ur­inn nýstofn­aður.

„Við nálg­umst þetta út frá mál­efn­unum. Okkar meg­in­á­herslur eru mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi, nútíma­leg land­bún­að­ar­stefna, kosn­ingar um fram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið og að styrkja hag þeirra sem minnst fá út úr almanna­trygg­inga­kerf­inu þannig að það verði dregið úr skerð­ingu,“ segir hann. Ef flokkar fall­ist á þeirra til­lögur sé ekki hægt að úti­loka neitt. „En auð­vitað tók ég eftir orðum for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins um að meg­in­stefnu­mál flokks­ins væru að koma í veg fyrir kerf­is­breyt­ingar. Okkar meg­in­mál eru að koma í gegn rót­tækum kerf­is­breyt­ingum. Við erum ekki að hugsa um per­sónur eða flokka í þessu, en svo geta menn dregið álykt­anir út frá því hverjir eru með lík­ust mál­efni.“

Sigmundur gruggar vatnið enn meira

Varðandi skrif Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, í dag og í gær um að það væri glapræði að kjósa í haust segir Óttar þau afar und­ar­leg.

„Stjórn­ar­flokk­arnir gerðu sam­komu­lag við almenn­ing í vor að flýta kosn­ingum. Og náðu þannig að sætta fólk við þá kröfu að slíta og kjósa strax. Þetta er ansi mikil kúvend­ing,“ segir hann. „Það er mjög sér­stakt hvernig stjórn­ar­flokk­unum hefur tek­ist að halda því fram að það eigi að kjósa í haust en geta ekki stað­fest það með því að ákveða kjör­dag. Þetta er mjög óvenju­legt og svona yfir­lýs­ing gerir ekk­ert annað en að grugga vatnið enn meira.“

Feigðarflan að kjósa ekki í haust

Benedikt gefur ekki mikið fyrir skrif Sig­mundar Davíðs.

„Þetta er mað­ur­inn sem vildi leysa upp þingið í vor, einn og sér án sam­ráðs við nokkurn mann, sem sýnir hversu alvar­lega maður eigi að taka skrif hans,“ segir hann. „Ég held að það væri mikið feigð­ar­flan fyrir þessa flokka að svíkja það lof­orð ofan á lof­orðið um þjoð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald við­ræðna við ESB. Það er nóg að vera með eitt svona svikið lof­orð á bak­inu, hvað þá tvö.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár