Sigmundur segir vilja allt sem þurfi til að ríkisstjórnin klári kjörtímabilið

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir það geta orkað tví­mælis að hafa kosn­ingar í haust eins og lofað hefur verið. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks tekur undir sjón­ar­miðið. Sig­mundur segir vilja allt sem þurfi til að rík­is­stjórnin fram­fylgi 4 ára áætlun sinni.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir kosn­ingar í haust geta orkað tví­mælis. Viljinn sé allt sem þurfi til að rík­is­stjórnin geti fram­fylgt fjög­urra ára áætlun sinni og það sé ótækt að klára ekki þau mik­il­vægu verk­efni sem séu í seinni hluta áætl­un­ar­innar. Sum snúi að end­ur­bótum á lögum og reglum, hin að fjár­fest­ingu og upp­bygg­ingu. Þetta segir Sig­mundur í grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Sigríður Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, tekur undir með Sigmundi í blað­inu að hún hafi alltaf haft efa­semdir um kosn­ingar í haust. Haft er eftir Ástu Guðrúnu Helga­dóttur, þing­manni Pírata, að óbreyttir þing­menn eins og Sig­mundur og Sigríður hafi ekk­ert um það að segja hvort það verði kosið í haust eða ekki. Það sé þó sjálf­sögð kurt­eisi að boða til haust­kosn­inga eins og lofað hefur verið.

„Íslandi allt“

„Tíminn til að standa við lof­orðin sem við höfum gefið er núna,“ sagði Sig­mundur í bréfi sem hann sendi flokks­mönnum sínum í gær og boð­aði end­ur­komu sína. „Ég er kom­inn heim,“ skrif­aði hann og lauk bréf­inu á orð­unum: „Íslandi allt“.

Í grein sinni í Morg­un­blað­inu segir Sig­mundur að núver­andi rík­is­stjórn verði að skila áþreif­an­legum árangri fyrir byggðir lands­ins. „Klári hún það ekki mun önnur rík­is­stjórn ekki gera það. Skaðinn af því að van­rækja stærstan hluta land­ins yrði mik­ill skaði fyrir landið allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár