Íbúðir ekki selst hraðar í tæpan áratug

Mikill gangur er á fast­eigna­mark­aði þessi miss­erin og selj­ast íbúðir hratt.

Íbúðir eru að jafn­aði tals­vert skemur í sölu nú en á und­an­förnum tíu árum. Einungis tekur um sjö vikur (1,87 mánuð) að selja íbúð­ar­hús­næði miðað við veltu á fast­eigna­mark­aði í apríl.

Einungis er hægt að finna eitt dæmi á und­an­förnum tíu árum, júní 2007, þar sem veltu­hraði fast­eigna­mark­að­ar­ins var meiri. Þetta má lesa út úr hag­vísum Seðla­banka Íslands, frá 29. júní síð­ast­liðnum. Með­al­sölu­tími íbúð­ar­hús­næðis hefur verið undir þremur mán­uðum frá sept­em­ber 2015 og í kringum tvo mán­uði frá síð­ustu ára­mótum.

Þá hefur hratt gengið á fram­boð eigna, sé rýnt í töl­urnar. Þannig var fram­boð af sér­býl­is­eignum á sölu ríf­lega 900 í apríl 2012, en fjöld­inn var kom­inn niður í 320 í apríl á þessu ári. Sömu sögu er að segja af fjöl­býl­is­eignum. Þær voru tæp­lega 1.900 í apríl 2012 en voru um 900 í apríl síð­ast­liðnum.

Mikill gangur hefur verið á fast­eigna­mark­aði hér á landi að und­an­förnu, og hefur fast­eigna­verð hækkað nokkuð stöðugt. Þetta sést meðal ann­ars á fast­eigna­mati fyrir næsta ár.

Íbúða­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkar að með­al­tali um 9,2% sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati sem Þjóð­skrá kynnir í dag. Fast­eigna­matið gildir fyrir næsta ár, og er ætlað að end­ur­spegla verð­lag fast­eigna í febr­úar á þessu ári. Mesta hækk­unin verður í Bústaða­hverfi, um 20,1%. Í Fell­unum í Breið­holti hækkar fast­eigna­matið um 16,9% og um 16,3% í Rétt­ar­holt­i.

Á þremur svæðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkar fast­eigna­matið milli ára, um 0,8% á Kjal­ar­nesi, 3,5% í Garðabæ vestan Hraun­holts­brautar og um 4,1% á Arn­ar­nesi í Garða­bæ.

Sér­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækka að með­al­tali um 6,5% en fjöl­býli hækka mun meira, um 11,7% að með­taltali. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er mun­ur­inn ekki eins mik­ill, eða 5,5% hækkun í sér­býli og 8,6% í fjöl­býl­i.

Því er spáð að fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu muni hækka nokkuð á þessu ári og því næsta, sam­kvæmt Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands, eða um tæp­lega 20 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár