Afarkostir aflandskrónueigenda sem ekki er eining um hvort standist lög

Um liðna helgi var sam­þykkt frum­varp til að bræða snjó­hengju aflandskróna. Útboð fer fram 16. júní og aflandskrónu­eig­endum munu bjóð­ast tveir vondir kostir. Taki þeir ekki til­boðum Seðla­bank­ans fara þeir aft­ast í röð­ina út úr höft­unum.

Á sunnu­dag var sam­þykkt frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum, eða aflandskrónu­frum­varpið. Það var lagt fram eftir lokun mark­aða á föstu­dag og höf­uð­á­hersla lögð á að frum­varpið yrði að lögum fyrir opnum mark­aða á mánu­dag. Þess vegna fékk það mjög hraða með­ferð í þing­inu og for­seti Íslands skrif­aði undir þau aðfara­nótt mánu­dags.

Frum­varpið snýst um að „bræða“ hina svoköll­uðu aflandskrónu­hengju, sem er upp á 319 millj­arða króna, þannig að hægt verði að ráð­ast í frek­ari losun á þeim fjár­magns­höftum sem Íslend­ingar hafa þurft að búa við í tæp átta ár. Þetta á að vera loka­hnykkur í því hafta­los­un­ar­ferli sem staðið hefur yfir árum saman með söfnun á gjald­eyr­is­forða, grein­ingu á greiðslu­jafn­vægi íslenska hag­kerf­is­ins og samn­ingum við kröfu­hafa föllnu bank­anna.

Um hvað snýst aðgerðin?

Í ein­földu máli snýst frum­varpið um að eig­endur „aflandskróna“ verði boðnir tveir kostir. Annar felst í því að eig­end­urnir sam­þykki að selja krón­urnar sínar á gengi sem á eftir að kynna, en verður lík­lega í kringum 200 krónur fyrir hverja evru, í upp­boði sem fram á að fara 16. júní næst­kom­andi. Þeir sem sam­þykkja ekki að taka þátt í þessu útboði býðst að fjár­festa í sér­stökum inn­stæðu­bréfum útgefnum af Seðla­banka Íslands sem bera 0,5 pró­sent vexti en vextir á þeim eru end­ur­skoð­aðir árlega.

Ósam­vinnu­þýðir aflandskrónu­eig­endur, sem neita að taka þátt í aflandskrón­u­út­boð­inu, munu reyndar fá annað tæki­færi til að koma sér út úr íslensku hag­kerfi á enn verri kjörum frá 1. sept­em­ber til 1. nóv­em­ber 2016. Þar verður við­mið­un­ar­gengið 220 krónur. Til sam­an­burðar er skráð evru­gengi Seðla­banka Íslands í dag tæp­lega 140 krónur. Fari þeir ekki út með pen­ing­anna sína þá er alls óljóst hvenær þeir hafi aftur aðgang að eignum sínum. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði við Morg­un­blaðið í gær að þeir myndu lenda aft­ast í röð­inni við losun hafta.

Ef allir aflandskrónu­eig­end­urnir myndu fara út í seinni glugg­anum, á geng­inu 220 krónur fyrir hverja evru, yrði geng­is­hagn­aður íslenskra stjórn­valda um 116 millj­arðar króna. Miðað við það gengi sem hefur verið í aflandskrónu­við­skiptum nýverið - um 195 krónur fyrir hverja evru - má ætla að geng­is­hagn­aður íslenskra stjórn­valda vegna fyrri útboðs­ins, verði um 83 millj­arðar króna, taki allir aflandskrónu­eig­endur þátt.

Þegar slíkar tölur eru reikn­aðar út verður þó að taka til­lit til þess að Seðla­banki Íslands hefur verið að kaupa evrur á allskyns gengi á und­an­förnum árum á meðan að hann hefur verið að safna sér upp um 400 millj­arða króna óskuld­settum gjald­eyr­is­vara­forða til að nota í þessu upp­boði. Því þarf að taka til greina á hvaða gengi seðla­bank­inn keypti þann gjald­eyri hverju sinni áður en end­an­legur„hagn­aður“ íslenskra stjórn­valda á þess­ari aðgerð liggur fyrir.

Stenst aðgerðin lög?

Í 72. grein stjórn­ar­skráar Íslands segir: „Eign­ar­rétt­ur­inn er frið­helgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenn­ings­þörf krefji. Þarf til þess laga­fyr­ir­mæli og komi fullt verð fyrir“. Þrátt fyrir það telja ráða­menn þjóð­ar­innar, og Seðla­banki Íslands, að þessi ráða­gerð stand­ist eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skráar Íslands. Davíð Þór Björg­vins­son laga­pró­fess­or tekur undir það, sam­kvæmt umsögn sinni sem hann skil­aði inn vegna frum­varps­ins.

Aflandskrónu­eign­irnar eru, líkt og áður sagði, upp á 319 millj­arða króna. Nálægt 85 pró­sent svo­kall­aðra aflandsskróna eru í eigu banda­rískra eigna­stýr­inga­fyr­ir­tækja, sem stýra meðal ann­ars vog­un­ar­sjóðum. Á meðal þeirra er ekki jafn mikil vissa um að aðgerðin stand­ist stjórn­ar­skránna.

Pétur Örn Sverr­is­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og Magnús Árni Skúlason hag­fræð­ingur unnu umsögn um frum­varp stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta fyrir hönd tveggja sjóða, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capital LP. Í ein­földu máli telja sjóð­irnir að frum­varpið gangi gegn stjórn­ar­skrár­vörðum eigna­rétti sjóð­anna með „bóta­skyldum“ hætti.

Sér­stak­lega er áhersla lögð á það að engar neyð­ar­að­stæður séu uppi í hag­kerf­inu þessi miss­er­in sem rétt­læti sér­staka eigna­upp­töku af sjóð­un­um. Staða efna­hags­mála sé góð og óskuld­settur gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans nemi um 400 millj­örðum króna, eða sem nemur um 20 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Kvik krónu­eign sé minni en sem þessu nemur og því ógni hröð útganga ekki hag­kerf­inu.

Aflandskrónu­eig­end­urnir telja að eigna­skerð­ingin sem frum­varpið feli í sér geti á engan hátt talist í sam­ræmi við jafn­ræðis- og eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrá­ar­innar. Aug­ljós­lega sé verið að mis­muna þeim á grund­velli þjóð­ernis og búsetu.

Hvaðan komu þessar aflandskrónueignir?

Aflandskrónu­eign­irnar má rekja að stærstu leytii til jökla­bréf­anna (e. Euro­bonds), skulda­bréfa sem gefin voru út í íslenskum krónum. Sú útgáfa hófst í ágúst 2005 og gaf erlendum sem inn­lendum fjár­festum tæki­færi til að stunda vaxta­muna­við­skipti (e. carry trade). Í ein­földu máli snú­ast þau um að er­lendir fjár­festar tóku lán í myntum þar sem vextir voru lágir og keyptu síð­an ­ís­lensk skulda­bréf, vegna þess að vextir á þeim eru háir í öllum alþjóð­leg­um ­sam­an­burði. Því gátu fjár­fest­arnir hagn­ast vel umfram þann kostnað sem þeir báru af lán­töku sinn­ar. Og ef þeir voru að gera við­skipti með eigin fé þá gát­u þeir auð­vitað hagn­ast enn meira. Útgef­endur bréf­anna voru erlendir bankar, m.a. Rabobank í Hollandi og þýski bank­inn kfW.

Mörg þess­ara skulda­bréfa hafa síðan kom­ist á gjald­daga og eig­endur þeirra þá setið fastir með lausa fjár­muni innan hafta. Þeir hafa getað selt öðrum þær krónur sem hafa viljað nota þær til fjár­fest­inga, fjár­fest fyrir þær sjálfir eða geymt á inn­láns­reikn­ingum. Þess vegna eru aflandskrón­urnar, sam­kvæmt skil­grein­ingu frum­varps fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ekki bara bundnar í skulda­bréfum. Þvert á móti eru þær m.a. bundnar í hluta­bréfum í skráðum og óskráðum fyr­ir­tækjum. Þannig fellur fjórð­ungs­hlutur banda­ríska fjár­fest­inga­sjóðs­ins Yucaipa undir skil­grein­ing­una og 66 pró­sent hlutur Alterra Power (áður Magma Energy) í HS Orku einnig. Sömu sögu er að segja af 13,2 pró­sent eign­ar­hlut Burlington Loan Mana­gement í Klakka (áður Exista), eig­anda Lýsingar.

Eru einhverjar samningaviðræður í gangi?

Ljóst er að sam­skipti hafa átt sér stað milli stjórn­valda og eig­enda aflandskróna þar sem hinir erlendu eig­endur krónu­eigna hafa lagt fram leiðir sem áttu að vera hlut­lausar gagn­vart greiðslu­jöfn­uði Íslands. Á meðal þeirra voru, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, þær að aflandskrónu­vand­inn yrði leystur á löngum tíma þar sem afsláttur á krónu­eignum yrði um eða yfir tíu pró­sent. Þessi sam­skipti leiddu ekki til nið­ur­stöðu í aðdrag­anda þess að frum­varpið um aflandskrón­u­út­boð var lagt fram.

DV greindi frá því í gær að full­trúar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis og Seðla­banka Íslands fund­uðu í fyrra­dag með aðilum frá þeim banda­rísku eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum sem stýra vog­un­ar­sjóðum sem halda utan um stærstan hluta af aflandskrónu­eign­unum. Fund­ur­inn fór fram í New York og þar á að svara þeim spurn­ingum sem full­trúar sjóð­anna hafa um hin nýsam­þykktu lög um aflandskrón­u­út­boðið.

Ekki liggur fyrir hvort aflandskrónu­eig­end­urnir muni spila með og taka þátt í útboð­inu. Þeir gætu til dæmis neitað að taka þátt í útboð­inu í næsta mán­uði og ákveðið að leita réttar síns, bæði inn­an­lands sem og í Banda­ríkj­unum, þar sem flestir þeirra eiga heim­il­is­festi. Í frétt RÚV fyrr í í fyrra­dag var haft eftir Pétri Erni að umbjóð­endur hans væru að meta næstu skref.

Hvernig fór aftur síðasta skref?

Aflandskrón­u­út­boðið sem fyr­ir­hugað er að halda í júní á að vera eitt af síð­ustu skref­unum sem stjórn­völd stíga í átt að losa um höft á ein­stak­linga, líf­eyr­is­sjóði og fyr­ir­tæki á Íslandi. Það má segja að þetta sé næst stærsta skrefið í þá átt, á eftir upp­gjöri á slita­búum föllnu bank­anna, sem samið var um síðla árs í fyrra.

Þá lögðu stjórn­völd upp annað hvort eða leið fyrir kröfu­hafa búanna sem fólst í því að þeim var gert kleift að semja um að greiða stöð­ug­leika­fram­lög eða að lagður yrði 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á allar eignir þeirra hér­lendis.

Í aðdrag­anda þess að sú leið var kynnt með pompi og prakt í Hörpu fyrir tæpu ári höfðu verið upp sam­bæri­leg sjón­ar­mið gagn­vart stöð­ug­leika­skatt­inum og eru nú gagn­vart þeim leiðum sem bjóða á upp á í tengslum við aflandskrón­u­út­boðin. Þ.e. að í þeim fælist eigna­upp­taka sem ekki stæð­ist stjórn­ar­skrá.

Ekki

reyndi á þessi sjón­ar­mið vegna þess að kröfu­haf­arnir sömdu allir sem einn við íslenska ríkið um að greiða stöð­ug­leika­fram­lag í stað þess að láta reyna á lög­mæti stöð­ug­leika­skatts­ins.

Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi þessa árs mun ríkið tekju­færa 348,3 millj­arða króna vegna stöð­ug­leika­fram­lag­anna. Miðað við það verða end­ur­heimtir kröfu­hafa í bú íslensku bank­anna á pari við, eða hærri, en þeir hafa búist við á und­an­förnum árum. Í þeirra röðum ríkir nokkuð mikil ánægja með það sam­komu­lag sem náð­ist og er það talið kosta þá mjög svipað hlut­fall af eignum sínum og þeir reikn­uðu með að það myndi kosta þá í sviðs­myndum sem þeir létu vinna fyrir sig rúmum þremur árum áður en gengið var frá sam­komu­lag­inu.

Í grein­ar­gerð Seðla­banka Íslands um mat hans á upp­gjörs­sam­komu­lag­inu, sem er dag­sett 27. októ­ber 2015, sagði: „Leið nauða­samn­inga á grund­velli stöð­ug­leika­skil­yrða er mun áhættu­minni en skatta­leið­in, þar sem girt er fyrir áhættu með marg­vís­legum ráð­stöf­unum og áhætta vegna dóms­mála verður mun minn­i".

Eru allir sáttir við þetta?

Stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt sam­ráðs­leysi rík­is­stjórn­ar­innar í því hafta­los­un­ar­ferli sem staðið hefur yfir und­an­farin ár. Sjö þing­menn úr Vinstri grænum og Pírötum sátu því hjá við afgreiðslu frum­varps­ins um aflandskrón­u­út­boðið. Innan stjórn­ar­and­stöð­unnar var þó sam­komu­lag um að standa ekki í vegi fyrir afgreiðslu máls­ins í ljósi þess að um afar þjóð­hags­lega mik­il­vægt.

Það eru þó ekki allir sáttir með þá leið sem verið er að fara og sumum finnst að ríkið sé að hleypa kröfu­höfum og aflandskrónu­eig­endum út úr höftum á undan öllum öðrum og á allt of góðum kjörum.

Þar hefur InDefence hóp­ur­inn gagn­rýnt áform stjórn­valda í hafta­los­un­ar­ferl­inu harð­lega. Sveinn Valfells, eðlis- og hag­fræð­ingur, sem staðið hefur í for­ystu­sveit hóps­ins sagði við Kjarnann fyrr í vik­unni að afnáms­ferlið allt virð­ist „hannað til að greiða götu kröfu­hafa og hámarka end­ur­heimtur þeirra, almenn­ing­ur, atvinnu­líf og líf­eyr­is­sjóðir reka lest­ina og þola umtals­verða rýrnun á verð­gildi krón­unnar.“

InDefence hóp­ur­inn segir í umsögn sinni um hafta­frum­varpið að for­gangur kröfu­hafa í slitabú bank­anna og erlendra aflandskrónu­eig­enda, þegar kemur að útleið úr höft­un­um, séð bæði óþarfur og skað­leg­ur. Almenn­ingur á Íslandi eigi ekki að reka lest­ina í þessum efn­um, heldur frekar að vera í for­gang­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár