Andrés Ingi verður utan flokka - gagnrýnir stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum útlendinga og hamfarahlýnunar

Andrés Ingi Jónsson hefur sagt sig úr þing­flokki Vinstri grænna og mun starfa utan flokka. Hann segir sam­starfið hafa heft sig í að starfa eftir hug­sjónum sínum.

Andrés Ingi verður utan flokka - gagnrýnir stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum útlendinga og hamfarahlýnunar
Andrés Ingi Jónsson Þing­mað­ur­inn hyggst starfa utan flokka. Mynd: Pressphotos.biz

Andrés Ingi Jónsson þing­maður hefur sagt sig úr þing­flokki Vinstri grænna og mun starfa utan flokka. Þetta til­kynnti hann í færslu á Facebook rétt í þessu.

Andrés og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, einnig þing­maður Vinstri grænna, tóku ákvörðun um að styðja ekki rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks þegar hún var mynduð fyrir tveimur árum. „Það hafa á þessu tíma safn­ast upp dæmi sem mér þykja til marks um það sem ég ótt­að­ist í upp­hafi: að Vinstri græn ættu sífellt erf­iðar með að veita sam­starfs­flokk­unum mót­spyrnu og stjórn­ar­sam­starfið færð­ist enn fjær því sem flokk­ur­inn ætti að standa fyrir,“ skrifar Andrés Ingi. „Vissu­lega höfum við náð árangri en oft hafa mála­miðl­anir fallið fjarri okkar hug­sjónum, eins og birt­ist til að mynda í stjórn­ar­frum­varpi um útlend­inga á liðnu vori. Aðkallandi aðgerðir til að sporna við ham­fara­hlýnun hafa ekki gengið jafn langt og ég tel nauð­syn­legt og sjálf­sagt í rík­is­stjórn undir for­ystu grænnar hreyf­ingar.“

„Aðkallandi aðgerðir til að sporna við ham­fara­hlýnun hafa ekki gengið jafn langt og ég tel nauð­syn­legt og sjálf­sagt í rík­is­stjórn undir for­ystu grænnar hreyf­ingar“

Andrés segir það hafa verið áskorun að takast á við sam­skipti og sam­starf í þing­flokknum eftir þann ágrein­ing sem stjórn­ar­sam­starfið skap­aði. „Síð­ast­liðin tvö ár hef ég upp­lifað að sam­starfið hefti mig í að vinna af fullum krafti fyrir þeim hug­sjónum sem ég var kos­inn fyrir,“ skrifar hann. „Nú er svo komið að ég tel full­reynt að ég geti sinnt þing­störfum eftir sam­visku minni og sann­fær­ingu við núver­andi aðstæður. Fyrr í dag kvaddi ég félaga mína í þing­flokki Vinstri grænna og þakk­aði þeim sam­fylgd­ina. Ég hef til­kynnt for­seta Alþingis að ég hafi sagt mig úr þing­flokknum og muni starfa sem þing­maður utan þing­flokka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár