Ekkert keypt nýtt úr búð

Íslenska gisti­heim­ilið Kex Hostel í Reykja­vík hefur notið gíf­ur­legra vin­sælda allt frá opnun árið 2011. Í þessum mán­uði opn­aði nýtt Kex Hostel dyr sínar í borg­inni Portland í Oregon á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Hönn­uð­ur­inn á bak við það er Hálfdán Pedersen sem einnig hann­aði íslenska Kex, en hann leit­ast við að nota nær ein­göngu end­ur­nýtt og end­urunnin efni.

Ekkert keypt nýtt úr búð

Hálfdán Pedersen hefur verið með annan fót­inn í Portland und­an­farin sex ár að vinna þar að opnun Kex Hostel. Portland er stærsta borg Oregon-ríkis og er stað­sett við árnar Columbia og Willamette undir hinu snævi þakta Mount Hood-fjalli. Hún er talin vera hin nýja „hipp og kúl“ borg Vest­ur­strand­ar­innar og er þekkt­ust fyrir hríf­andi almenn­ings­garða, fal­legar brýr og mik­inn fjölda af kaffi­húsum og brugg­húsum.

En hvernig kom það til að Kex Hostel er opnað í Portland? „Það er í grunn­inn ekki nokkrum öðrum að þakka en Kristni Vil­bergs­syni, einum stofn­enda Kex Hostel á Íslandi og aðal­for­sprakka að Kex Hostel opnar dyr sínar í Portland,“ útskýrir Hálfdán. „Eftir að Kex Hostel var opnað í Reykja­vík flutti hann tíma­bundið til Vancouver í British Columbia og kynnt­ist Portland á ferðum sínum um Pacific North West. Hann féll fyrir borg­inni og kynnt­ist þar góðu fólki og fór fljót­lega að kynna hug­mynd­ina og þreifa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár