Ríkið ætlar ekki í skaðabótamál vegna Al Thani-dóms

Bjarni Bene­dikts­son sagði fyrir ári síðan það vera áleitna spurn­ingu hvort sekt­ar­dómur í Al Thani-mál­inu gæfi rík­inu til­efni til að sækja skaða­bætur á Kaupþing vegna neyð­ar­láns sem bank­inn fékk 6. októ­ber 2008. Nú hefur þeirri spurn­ingu verið svarað.

Íslenska ríkið ætlar ekki að höfða skaða­bóta­mál á hendur slita­búi Kaup­þings vegna þess tjóns sem ríkið varð fyrir í tengslum við fall Kaup­þings. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í kjöl­far dóms Hæsta­réttar í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða fyrir tæpu ári síðan að hann vildi skoða hvort ríkið ætti mögu­lega bóta­kröfu vegna þessa. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið að það hafi metið málið sem svo að ekki væru for­sendur fyrir höfðun skaða­bóta­máls á hendur þrota­búi Kaup­þings vegna máls­ins þar sem skaða­bætur væru almennar kröfur og lúti van­lýs­ing­ar­á­hrifum.

Þann 12. febr­úar 2015 féll dómur í Al Thani-mál­inu í Hæsta­rétti. Þar voru Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, sak­felldir fyrir umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár.

Í dómnum sagði m.a.: „Háttsemi ákærðu sam­kvæmt þessum köflum ákæru fól í sér alvar­legt trún­að­ar­brot gagn­vart stóru almenn­ings­hluta­fé­lagi og leiddi til stór­fellds fjár­tjóns. Brotin[...]beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild og verður tjónið, sem leiddi af þeim beint og óbeint, ekki metið til fjár. Þessi brot voru stórum alvar­legri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot.“

Bjarni vildi skoða skaðabótakröfu

Al Thani-við­skiptin, sem snér­ust um kaup á 5,01 pró­sent hlut í Kaup­þingi, áttu sér stað í sept­em­ber 2008. Skömmu síðar, þann 6. októ­ber 2008, lán­aði Seðla­banki Íslands Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í neyð­ar­lán. Tap íslenskra skatt­greið­enda af þess­ari lán­veit­ingu er um 35 millj­arðar króna.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi nokkrum dögum eftir að dóm­ur­inn féll spurði Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, Bjarna Bene­dikts­son út í dóm Hæsta­réttar og lánið sem Seðla­bank­inn veitti Kaup­þingi. Hann spurði sér­stak­lega hvort ekki væri ástæða til að birta umdeilt sím­tal milli Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­manns banka­stjórnar Seðla­bank­ans, þar sem lán­veit­ingin til Kaup­þings ákveðin. Davíð hefur síðar sagt að Geir hafi ákveðið lán­veit­ing­una.

Bjarni sagði að margir teldu að sú lán­veit­ing yrði ekki að fullu upp­lýst nema að sím­talið yrði birt. Bjarni væri hins vegar þeirrar skoð­unar að það væri hægt að spyrja ein­fald­lega alla þá sem komu að ákvörð­un­ar­tök­unni um hvað hafi valdið henni, og að veðin sem veitt hafi verið fyrir lán­inu á þeim tíma hafi þótt býsna góð. Stjórn­völd hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að bjarga íslensku efna­hags­kerfi.

Guð­mundur benti á að búið væri að dæma menn­ina sem stjórn­uðu bank­anum sem fékk neyð­ar­lánið í fang­elsi fyrir það sem þeir voru að gera á sama tíma og Seðla­bank­inn lán­aði þeim. Ljóst væri að verk­lags­reglur bank­ans hefðu verið brotnar. Guð­mundur gaf ekki mikið fyrir þá málsvörn að allir hefðu verið að gera sitt besta og að dómur Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu væri dæmi um að það að gera sitt besta til að bjarga hlut­unum sé alls ekki nóg.

Bjarni sagði að önnur ríki, þar á meðal Banda­ríkin og Bretland, hafi ekki látið stífar verk­lags­reglur þvæl­ast fyrir því í miðju banka­hrun­inu að taka réttar ákvarð­anir. Honum þyki það áleitn­ari spurn­ing, í ljósi þess sak­næmu hátt­semi sem dómur Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu lýsir, hvort ríkið eigi bóta­kröfu á slitabú Kaup­þings. Hann vill taka það til skoð­unar.

Orðrétt sagði Bjarni: „Það sem mér finnst vera miklu áleitn­ari spurn­ing vegna nið­ur­stöðu Hæsta­réttar á síð­asta ári er sú spurn­ing hvort með þeim sak­næma hætti sem Hæsti­réttur hefur nú fjallað um hafi stjórn­völdum verið gefið við­bót­ar­til­efni til að koma bank­anum til bjargar sem gæti aftur leitt af sér mögu­lega bóta­kröfu rík­is­ins á hendur slita­bú­inu. Það er eitt­hvað sem ég held að við ættum að taka til skoð­unar."

Hafa fengið 490 milljarða nú þegar

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um hvort mögu­leg bótakrafa hafi verið skoðuð og ef svo væri, hver nið­ur­staða þeirrar skoð­unar væri. Fyr­ir­spurnin var send 7. des­em­ber 2015 og svar barst í gær, 2. febr­úar 2016.

Í svar­inu segir að í fram­haldi af dóms­upp­kvaðin­ung Hæsta­réttar í Al Thani-mál­inu hafi verið farið yfir það í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu hvort grund­völlur væri fyrir höfðun skaða­bóta­máls fyrir hönd rík­is­ins vegna þess tjóns sem ríkið varð fyrir í tengslum við fall Kaup­þings. „Var það mat fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að ekki væru for­sendur fyrir höfðun skaða­bóta­máls á hendur þrota­búi Kaup­þings m.a. þar sem skaða­bætur eru almennar kröfur og lúta van­lýs­ing­ar­á­hrifum.“

Um stöðu krafna Seðla­banka Íslands á hendur slita­búi Kaup­þings vegna lán­veit­ing­ar­innar var vísað á Seðla­bank­ann. Kjarninn hefur þegar sent fyr­ir­spurn á hann og óskað eftir upp­lýs­ingum um þá stöðu.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið segir einnig í svari sínu að þess beri að geta að upp­gjöri á Eigna­safni Seðla­banka Íslands (ESÍ) sé ekki lokið. „Í því sam­bandi er rétt að geta þess að Kaupþing hf., Glitnir hf. og LBI hf. hafa greitt um 490 millj­arða kr. til stjórn­valda í formi stöð­ug­leika­fram­lags, skatt­greiðslna auk end­ur­heimta ESÍ frá umræddum þremur aðilum auk ann­arra ráð­staf­ana sem áður hafa verið kynntar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár