Píratar samþykkja stefnu um orkuskatt á stóriðju

Píratar ætla að láta stór­iðju­fyr­ir­tæki borga „eðli­lega“ tekju­skatta í rík­is­sjóð. Semjist ekki um það vilja þeir leggja á fyr­ir­tækin orku­skatt sem gæti skilað millj­örðum á ári. Píratar mæl­ast með tæp­lega 40 pró­sent fylgi.

Stefnu­til­laga um stór­iðju og þunna eig­in­fjár­mögnun var sam­þykkt á félags­fundi Pírata þann 10. jan­úar síð­ast­lið­inn með 33 atkvæðum getgn 24. Samkvæmt stefn­unni vilja Píratar end­ur­skoða fjár­fest­inga­samn­inga við stór­iðju­fyr­ir­tæki og láta þau borga „eðli­lega“ tekju­skatta í rík­is­sjóð. Semjist ekki um end­ur­skoðun samn­ing­anna innan sex mán­aða frá því að við­ræður hefj­ist vilja Píratar leggja sér­stakan orku­skatt á þau sem skila á rík­is­sjóði sömu eða hærri upp­hæðum og stór­iðjan myndi greiða ef hún væri ekki und­an­þegin almennum reglum um tekju­skatt. Píratar vilja auk þess festa í lög tak­mörk á vaxta­greiðslum sem fyr­ir­tæki geta dregið frá skatt­stofni sínum.

Píratar mæl­ast langstærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins og fylgi þeirra hefur mælst yfir 30 pró­sent í flestum könn­unum frá því í byrjun árs 2015. Í nýj­ustu könnun MMR, sem fram­kvæmd var dag­ana 12-20 jan­úar 2016, mæld­ist fylgi flokks­ins 37,8 pró­sent og hefur aldrei mælst hærra.Meira en helm­ingur ungs fólks, á aldr­inum 18 til 29 ára segj­ast myndu kjósa Pírata í næstu Alþing­is­kosn­ingum, eða 54 pró­sent.

Kostar ríkissjóð 3 til 5 milljarða á ári

Þunn eig­in­fjár­mögnun snýst um það þegar fyr­ir­tæki er fjár­magnað að mestu, eða öllu leyti, með lánsfé. Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins er lítið eða ekk­ert. Lánin sem fyr­ir­tæki sem þessi fá eru oft frá tengdum fyr­ir­tækjum, þ.e. innan sömu sam­stæðu. Fyr­ir­komu­lagið er þekkt og víða notað. Til­gangur þess er að koma í veg fyrir að það mynd­ist tekju­skatt­stofn þar sem allur hagn­aður fer í vaxta­kostnað af lánum.

Þunn eig­in­fjár­mögnun er víð­ast hvar bönnuð í iðn­væddum ríkjum. Í grein­ar­gerð sem fylgir álykt­un­inni sem Píratar hafa nú sam­þykkt er rifjað upp að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi lagt til við íslensk stjórn­völd eftir hrunið að tekið yrði fyrir hana „en af ein­hverjum ástæðum sáu stjórn­völd ekki ástæðu til að fara að þeirri ráð­legg­ingu, og hefur rík­is­sjóður orðið af miklum tekjum vegna þessa eða milli 3 og 5 millj­arða á ári“.

Fá sex mánuði til að semja, annars leggst á orkuskattur

Í stefnu Pírata er lagt til að lög­fest skuli tak­mörk á þær vaxta­greiðslur sem fyr­ir­tæki geti dregið frá skatt­stofni við 30 pró­sent af hagn­aði fyrir fjár­magnsliði, skata, afskriftir fasta­fjár­muna og um nið­ur­færslur. „Þannig verði 70 pró­sent af EBITDA ávallt skatt­stofn, óháð vaxta­greiðslum fyr­ir­tæk­is­ins“.

Einnig vilja Pírata að leitað verði end­ur­skoð­unar fjár­fest­inga­samn­inga við þau fyr­ir­tæki sem „með slíkum samn­ingum hafa und­an­þegið sig eðli­legum tekju­skatts­greiðslum“. Í end­ur­skoð­uðum samn­ingum verði eðli­legar skatt­tekjur tryggðar og einnig séð til þess að upp­safnað tap fyrri ára verði ekki notað til að koma í veg fyrir eðli­legar tekju­skatts­greiðslur fyr­ir­tækj­anna fram­vegis.

Í stefnu Pírata segir að ef samn­ingar tak­ist ekki um end­ur­skoðun fjár­fest­inga­samn­inga innan sex mán­aða frá upp­hafi við­ræðna verði lagður á sér­stakur orku­skattur sem skili þjóð­fé­lag­inu sömu eða hærri upp­hæðum og ef fyr­ir­tækin væru ekki und­an­þegin almennum reglum um tekju­skatt.

Sú aðferð­ar­fræði minnir nokkuð á þá sem sitj­andi rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks beitti í áætlun sinni um losun hafta. Þar var kröfu­höfum föllnu bank­anna boðið að semja um stöð­ug­leika­fram­lag innan til­tek­ins tímara­mma. Ef samn­ingar tækjust ekki, og slit búa þeirra í kjöl­farið kláruð, myndi leggj­ast á stöð­ug­leika­skattur.

Ekki að finna upp hjólið

Píratar eru ekki að finna upp hjólið með því að leggja til að lögum verði breytt til að taka á þess­ari stöðu.

Í októ­ber 2013 lögðu Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og þing­menn­irnir Svandís Svav­ars­dóttir og Stein­grímur J. Sig­fús­son fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um tekju­skatt „í þeim til­gangi að lög­festa reglur um þunna eig­in­fjár­mögnun og að auki eru lagðar til nokkrar nauð­syn­legar breyt­ingar á tekju­skattslög­unum svo taka megi regl­urnar upp í lögin“. Á meðal þeirra breyt­inga sem lagðar voru til í frum­varp­inu er sama breyt­ing og nú er orðin að stefnu Pírata, um að vaxta­greiðslur sem fyr­ir­tæki geti dregið frá skatt­stofni við 30 pró­sent af hagn­aði fyrir fjár­magnsliði, skata, afskriftir fasta­fjár­muna og um nið­ur­færslur. Í frum­varpi þeirra var hins vegar engin til­laga um orku­skatt.

Vert er að taka fram að öll þrjú höfðu setið í rík­is­stjórn fram á vor­daga 2013. Sú rík­is­stjórn beitti sér ekki fyrir breyt­ingu á lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir að þunn eig­in­fjár­mögnun.

Málið fékk efn­is­lega með­ferð í þing­inu og hefur farið í gegnum tvær umræður. Föstu­dag­inn 16. maí 2014, fyrir einu og hálfu ári síðan, kusu þing­menn um að vísa mál­inu til rík­is­stjórn­ar­innar til frek­ari með­ferðar, að lok­inni annarri umræðu. 53 þing­menn sam­þykktu þá ráð­stöfun. Enginn var á móti.

Síðan hefur lítið heyrst af fram­vindu máls­ins. Katrín Jak­obs­dóttir beindi fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um málið í lok árs 2015. Þar spurði Katrín hvort unnið væri að breyt­ingum á lögum um tekju­skatt varð­andi þunna eig­in­fjár­mögnun á grund­velli frum­varps­ins sem vísað var til rík­is­stjórn­ar­innar og ef svo er, hvenær ráð­herr­ann ætl­aði að kynna til­lögur á grund­velli vinn­unnar.

Í svari Bjarna kom fram að ráðu­neytið fylgd­ist grannt með sér­stöku verk­efni sem unnið er á vegum OECD undir enska heit­inu Base Erosion and Profit Shifting sem á íslensku gæti lagst út sem Rýrnun og til­færsla skatt­stofna. „Sú vinna miðar meðal ann­ars að því að leita leiða til að hamla gegn mis­notkun skatta­reglna til und­an­skota frá skatti, þar með talið óhóf­legum eða jafn­vel óeðli­legum frá­drætti vaxta­kostn­aðar,[...] þess er þó vart að vænta að frum­varp um mögu­lega tak­mörkun vaxta­frá­dráttar eða þunna eig­in­fjár­mögnun liggi fyrir á þessu þingi nema þá til kynn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár