Sjávarútvegsfyrirtæki áberandi á meðal þeirra sem styrkja ríkisstjórnarflokkanna

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru áber­andi á meðal þeirra lög­að­ila sem styrktu stjórn­ar­flokk­anna, Fram­sókn­ar­flokk og Sjálf­stæð­is­flokk, með hámarks­fram­lögum í fyrra. Alls styrktu ell­efu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Fram­sókn­ar­flokk­inn með hámarks­fram­lagi á árinu 2014 og átta Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Tvö fyr­ir­tæki úr þeim geira styrkja Sam­fylk­ing­una en ekk­ert hina flokk­anna sem eiga full­trúa á Alþingi.

Þetta er meðal þess sem lesa má úr útdráttum úr árs­reikn­ingum stjórn­mála­flokka sem birtir voru á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag.


Hagnaður hjá Framsókn


Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn skil­aði hagn­aði upp á 7,3 millj­ónir króna í fyrra eftir að hafa tapað 19,1 milljón króna árið 2013. Á tekju­hlið­inni mun­aði mestu um að flokk­ur­inn fékk 81,3 milljón króna í rík­is­fram­lög í fyrra en 55 millj­ónir króna. Ástæða þessa að svona mikil aukn­ing varð á rík­is­fram­lögum er sú að flokk­ur­inn var með mun fleiri þing­menn eftir þing­kosn­ing­arnar 2013 en fyrir þær. Í þeim vann Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stór­sigur og fékk 24,4 pró­sent atkvæða.

Rekstr­ar­kostn­aður flokks­ins dróst einnig umtals­vert saman á milli ára og var 27 millj­ónum krónum lægri árið 2014 en 2013. Ástæður þessa er aukin rekstr­ar­kostn­aður sem fylgir kosn­inga­bar­áttu á kosn­inga­ári. Alls voru rekstr­ar­gjöld í fyrra 108 millj­ónir króna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á eignir sem metnar eru á 198 millj­ónir króna en skuldar 257 millj­ónir króna.

[caption id="attachment_41693" align="alignnone" width="1024"] Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir fá lang­hæstu fram­lögin frá fyr­ir­tækjum. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru áber­andi á meðal styrkt­ar­að­ila þeirra beggja.[/caption]

Í útdrætti Rikisend­ur­skoð­unar má finna yfir­lit yfir þá lög­að­ila sem lögðu Fram­sókn­ar­flokknum til fé á árinu 2014. Slík fram­lög mega að hámarki vera 400 þús­und krónur. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru áber­andi á list­anum yfir þá lög­að­ila sem lögðu Framsókn til hámarks­fram­lag. Þeir sem slíkt gerðu voru Brim, BÚR, Bláa Lónið, Gjögur hf., HB Grandi hf., Hrað­frysti­húsið Gunnvör, Hvalur hf., Icelandic Water Holdings, Ísfélag Vest­manna­eyja, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, Mannvit hf., N1, Samskip, Skinney- Þinganes hf., Skipti hf. (áður móð­ur­fé­lag Símans), Sól­stjarna ehf., Ursus ehf., Vinnslu­stöðin, Vísir og Þorbjörn.

Af 20 fyr­ir­tækjum sem greiddu Fram­sókn­ar­flokknum 400 þús­und krónur í fyrra voru því ell­efu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Alls fékk flokk­ur­inn 18 millj­ónir króna frá lög­að­ilum á árinu 2014. Auk þess greiddu ein­stak­lingar 10,5 millj­ónir króna í fram­lög og félags­gjöld og flokk­ur­inn hafði 14,4 millj­ónir króna í aðrar rekstr­ar­tekjur.

Tap hjá Sjálfstæðisflokknum


Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skil­aði tapi upp á 36,7 millj­ónir króna í fyrra. Það er tölu­vert minna tap en var hjá flokknum kosn­inga­árið 2013, þegar hann tap­aði 127 millj­ónum króna. Tekj­urnar voru tíu millj­ónum krónum hærri í fyrra en árið áður en mik­ill sam­dráttur var í rekstr­ar­út­gjöldum milli ára.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á eignir sem metnar eru á 766,5 millj­ónir króna en skuldar um 409 millj­ónir króna.

Þeir sem greiddu 400 þús­und krónur til Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fyrra voru Brim, Bygg­inga­fé­lag Gylfa og Gunnars, Eykt ehf., GAM Mana­gement, Gjögur, HB Grandi, Hóp­bíla­leigan ehf., Hrað­frysti­húsið Gunnvör, Hvalur hf., Icelandair Group, Juris, Klapp­arás ehf., KPMG, Leigu­garðar ehf., Lýsi hf., Mannvit, MP banki, N1, Reginn, Samherji, Síminn, Skelj­ungur, Straumur fjár­fest­inga­banki, Trygg­inga­mið­stöðin, Tækni­vörur, Urriða­holt ehf., Vest­ur­garður ehf., Vísir og Þorbjörn.

Af 29 lög­að­ilum sem greiddu hámarks­fjár­hæð í fram­lag til Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru átta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Auk þess greiddu fjöl­mörg sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lægri upp­hæð til flokks­ins. Samtals fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 28,9 millj­ónir króna frá lög­að­ilum í fyrra. Hann hafði auk þess 78,8 millj­ónir króna í tekjur af öðrum toga (aðal­lega leigu­tekjur, aug­lýs­ingar og seld þjón­usta) og fékk 39,3 millj­ónir króna í greidd félags­gjöld eða í formi fram­laga undir 200 þús­und krónum frá ein­stak­lingum.

Mikill samdráttur í ríkisframlögum til Samfylkingar


Sam­fylk­ingin skil­aði hagn­aði upp á 2,6 millj­ónir króna í fyrra eftir 55 milljón króna tap árið 2013. Þar skipti reyndar mestu máli að matsvirði fast­eignar í eigu Sam­fylk­ing­ar­innar var hækkað um 10,2 millj­ónir króna. Rík­is­fram­lög flokks­ins dróg­ust saman um 53 millj­ónir króna eftir kosn­ing­arnar 2013, þar sem flokk­ur­inn beið afhroð. Framlög ein­stak­linga juk­ust hins vegar umtals­vert í fyrra, úr 16,2 millj­ónum króna í 27,4 millj­ónir króna. Eignir Sam­fylk­ing­ar­innar voru metnar á 166 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót en skuldir hennar voru 121,4 millj­ónir króna.

[caption id="attachment_38996" align="alignnone" width="750"] Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.[/caption]

Samtals fékk Sam­fylk­ingin 8,4 millj­ónir króna í fram­lög frá lög­að­ilum á árinu 2014. Þar af greiddu eft­ir­far­andi fyr­ir­tæki hámarks­fram­lag upp á 400 þús­und krónur: Bergur Huginn, Bláa lónið, HB Grandi, Icelandair Group, Mannvit, Miðeind, N1, Skipti (fyrrum móð­ur­fé­lag Símans), Straumur fjár­fest­inga­banki, Reyktal þjón­usta, GAM Mana­gement og Hof­garðar. Í hópnum eru tvö sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Engin önnur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lögðu fé til Sam­fylk­ing­ar­innar í fyrra.

Alls námu fram­lög ein­stak­linga og félags­gjöld 27,4 millj­ónum króna. Þær Björk Vil­helms­dóttir og Marta Sig­urð­ar­dóttir gáfu mest, sitt­hvorar 400 þús­und krón­urnar. Sam­fylk­ingin hafði auk þess 12,4 millj­ónir króna í aðrar tekjur. Um helm­ingur þeirra voru leigu­tekjur.

Eignarsala hjá Vinstri grænum


Rekstur Vinstri grænna var jákvæður um 18,4 millj­ónir króna í fyrra eftir 42,7 millj­óna króna rekstr­ar­tap árið 2013. Tekjur flokks­ins dróg­ust saman um 34 millj­ónir króna á síð­asta ári í kjöl­far þess að þing­flokkur hans minnk­aði eftir þing­kosn­ingar, en rekstr­ar­kostn­aður lækk­aði um 75 millj­ónir króna. Sú lækkun skil­aði jákvæðri rekstr­ar­nið­ur­stöðu. Vinstri grænum tókst einnig að vinna vel á skuldum sínum á síð­asta ári. Þær lækk­uðu úr 82 millj­ónum króna í 16,2 millj­ónir króna. Þetta var gert með því að losa um eignir. Nú á flok­ur­inn 11,2 millj­ónir króna en átti eignir metnar á 53,2 millj­ónir króna í lok árs 2013.

Samtals námu fram­lög frá lög­að­ilum 1.335 þús­und krónum. Þrír aðilar, Icelandair, Mannvit og N1 gáfu hámarks­fjár­hæð, 400 þús­und krónur. Ekkert sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki styrkti flokk­inn. Þá greiddu ein­stak­lingar sam­tals 10,7 millj­ónir króna í fram­lög og félags­gjöld.

Björt Framtíð skil­aði 10 millj­óna króna rekstr­ar­hagn­aði eftir að hafa tapað 11 millj­ónum króna árið 2013. Tekjur flokks­ins juk­ust um 24 millj­ónir króna á milli ára, aðal­lega vegna auk­ins rík­is­fram­lags í kjöl­far síð­ustu kosn­inga, þegar flokk­ur­inn fékk sex þing­menn kjörna. Alls námu fram­lög lög­að­ila til Bjartrar fram­tíðar 777.534 krónur í fyrra. Hæstu fram­lögin voru upp á 150 þús­und krónur. Flokk­ur­inn fékk auk þess 1,9 millj­ónir króna í félags­gjöld. Ekkert sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki styrkti flokk­inn.

[caption id="attachment_41694" align="alignnone" width="1024"] Píratar fengu 300 þús­und krónur í styrk frá lög­að­ilum í fyrra.[/caption]

Spútnik­flokkur Pírata, sem nýtur lang­mest fylgis allra stjórn­mála­flokka um þessar mundir sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, hagn­að­ist um tíu millj­ónir króna í fyrra. Árið áður hafði hann hagn­ast um 3,9 millj­ónir króna. Flokk­ur­inn fékk sam­tals 300 þús­und krónur í fram­lög frá lög­að­ilum. Þar af komu 200 þús­und krónur frá For­vörnum og eft­ir­liti. Ein­stak­lingar gáfu flokknum tæpa eina milljón króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár