Ríkið eignast Íslandsbanka að fullu - Mun eiga tvo af þremur stærstu bönkum landsins

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi frá sér tilkynn­ingu klukkan 4:10 í nótt þar sem til­kynnt var að íslenska ríkið væri að fara að eign­ast annan banka, Íslands­banka, að öllu leyti. Fyrir á ríkið Lands­bank­ann. Eini stóri við­skipta­bank­inn sem verður ekki nán­ast að fullu í rík­i­s­eigu að loknu slita­ferli gömlu bank­anna verður því Arion banki.

Þetta var nið­ur­staða funda sem ráð­gjafar stærstu kröfu­hafa Glitnis, núver­andi eig­anda 95 pró­sent hlutar í Íslands­banka, og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta áttu á tíma­bil­inu 25. sept­em­ber til 13. októ­ber vegna breyt­inga á stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­haf­anna. Eftir þessar breyt­ingar telur fram­kvæmda­hóp­ur­inn að slitabú Glitnis sé að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda og því séu for­sendur fyrir und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum fyrir hendi. Og eftir þessa breyt­ingu er íslenska ríkið orðið eig­andi að tveimur af þremur stærstu bönkum lands­ins.

Ekki liggur fyrir um hversu mikið end­an­legt stöð­ug­leika­fram­lag mun hækka við þessa breyt­ingu. Það kemur ekki í ljós fyrr en ríkið selur Íslands­banka, ef það ákveður að gera það.

Kom ekki að öllu leyti á óvart


Til­kynn­ingin kom ekki að öllu leyti á óvart, þótt óvenju­lega mikil þögn hafi ríkt um inni­hald hennar. Kjarninn hefur greint frá því að und­an­förnu að slitabú bæði Kaup­þings og Lands­bank­ans séu langt komin með að sýna fram á að þau séu að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda. Sömu sögu hafi ekki verið að segja af Glitni, sem á að greiða hæsta stöð­ug­leika­fram­lagið og setti fram flókn­ustu for­skrift­ina til að koma fram­lag­inu til skila.

Kjarninn hafði einnig greint frá því að mik­ill titr­ingur hafi verið á meðal kröfu­hafa að und­an­förnu, sér­stak­lega eftir að Seðla­bank­inn frestaði birt­ingu á Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti sínu. Þar átti að vera við­auki um þau stöð­ug­leika­skil­yrði sem slita­búin þurfa að greiða til að kom­ast hjá 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatti og um nauða­samn­ing þeirra. Á kynn­ing­ar­fundi vegna útkomu rits­ins átti líka að opin­bera mat á til­lögum um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem upp­fylla ættu sett stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda. Fjár­mála­stöð­ug­leika­ritið var birt í síð­ustu viku en ekki við­aukin. Og nú er ljóst af hverju birt­ingu hans var frestað.

Þá var greint frá því á Bloomberg í gær að ólík­legt væri að íslensk stjórn­völd myndu taka þeim til­boðum sem stærstu kröfu­hafar slita­búa Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa lagt fram um að mæta settum stöð­ug­leika­skil­yrðum. Þetta hafði Bloomberg eftir tveimur emb­ætt­is­mönnum sem tengj­ast ferl­inu. Ekki var til­greint hvaða til­boð um var að ræða. Í frétt Bloomberg sagði ein­fald­lega að stjórn­völd séu að miða við að stöð­ug­leika­fram­lagið þurfi að vera um 470 millj­arðar króna í útreikn­ingum sínum, og því hafi of mikið borið á milli, en slita­búin hafa þegar sam­þykkt að greiða 334 millj­arða króna.

[caption id="attachment_18324" align="alignnone" width="624"] Steinunn Guð­bjarts­dóttir, for­maður slita­stjórnar Glitnis.[/caption]

Breyting á framlagi liggur ekki fyrir


Samkvæmt þeim til­lögum sem lagðar voru fram af kröfu­höfum Glitnis í aðdrag­anda kynn­ingar á áætlun stjórn­valda um losun hafta í júní var inn­byggður hagur í því fyrir kröfu­haf­ana að selja Íslands­banka til erlenda aðila. Ef aðrir gjald­miðlar en íslensk króna hefðu feng­ist fyrir bank­ann, miðað við bók­fært virði hans, hefði slita­búið fengið 40 pró­sent af kaup­verð­inu og íslenska ríkið 60 pró­sent. Ef sölu­verðið yrði bók­fært virði Íslands­banka átti það að skila rík­is­sjóði 71 millj­arði króna í erlendum gjald­eyri. Það er fé sem ríkið getur notað til að greiða niður skuldir sínar og lækka fjár­magns­kostnað. Til við­bótar átti slitabú Glitnis að greiða rík­is­sjóði 37 millj­arða króna arð­greiðslu til að lækka eigið fé Íslands­banka fyrir sölu.

Ef bank­inn yrði seldur til inn­lendra aðila átti hins vegar að gefa út veð­skulda­bréf til rík­is­ins að and­virði 119 millj­arðar króna. Skulda­bréfið átti að vera til þriggja ára og ber 5,5 pró­sent vexti. Ríkið átti að fá þriðj­ung þess sölu­hagn­aðar sem yrði til á bil­inu 85 til 119 millj­arðar króna. Upphæðin átti síðan að hækka eftir því sem Íslands­banki selst fyrir meira fé. Þótt um sé að ræða hærri upp­hæð í krónum talið en ef Íslands­banki yrði seldur til erlendra aðila var þetta fé ekki jafn „verð­mætt“ fyrir íslensk stjórn­völd vegna þess að það er ekki hægt að nota það til að greiða niður erlendar skuldir, líkt og væri hægt með gjald­eyr­inn sem erlendir kaup­endur myndu borga með.

Samkvæmt þess­ari áætlun taldi slitabú Glitnis að mæt­ing stöð­ug­leika­skil­yrða muni kosta kröfu­hafa þess 205,4 til 254,4 millj­arða króna. Og að lík­leg­ast yrði að kostn­að­ur­inn yrði nær lægri mörk­unum.

Þær breyt­ingar sem ferðar hafa verið á sam­komu­lagi kröfu­hafa Glitnis og stjórn­valda, og kynntar voru í nótt, fela eft­ir­far­andi í sér:


  • Sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi mun Glitnir afsala öllu hlutafé ISB Holding ehf., sem er eig­andi 95 pró­sent hluta­fjár Íslands­banka hf., til stjórn­valda. Vegna þess­arar breyt­ingar falla eft­ir­far­andi þættir í fyrri til­lögum kröfu­hafa Glitnis niður:

  • Afkomu­skipta­samn­ingur um arð­semi hluta­fjár Íslands­banka;

  • Skilyrt skulda­bréf að fjár­hæð 119 millj­arðar króna;

  • Arð­greiðsla Íslands­banka í erlendum gjald­eyri að fjár­hæð 16 millj­arðar króna til Glitnis og aðrar fyr­ir­hug­aðar arð­greiðslur.

  • Framsal lausa­fjár­eigna, reiðu­fjár og ígildi reiðu­fjár, mun sam­kvæmt fram­an­greindri til­lögu lækka um 16 millj­arða króna vegna fyr­ir­hug­aðrar arð­greiðslu í erlendum gjald­eyri til Glitnis, sem ekki verður af, og 36 millj­arða króna vegna ann­arra breyt­inga sem fel­ast í end­ur­skoð­uðum til­lögum kröfu­hafa Glitnis. Umbreyt­ing inn­lána Glitnis í erlendum gjald­eyri í Íslands­banka í staðl­aða skulda­bréfa­út­gáfu mun taka mið af sér­stöku sam­komu­lagi Glitnis og Íslands­banka. Glitnir mun greiða fyrir og eign­ast fyr­ir­greiðslu rík­is­sjóðs við Íslands­banka sem veitt var í formi víkj­andi skulda­bréfs í erlendri mynt á nafn­virði auk greiðslu áfall­inna vaxta.


Ekki er ljóst hversu miklu fé til við­bótar þetta fyr­ir­komu­lag mun skila íslenska rík­inu. Það ræðst vit­an­lega á því hvað fæst fyrir Íslands­banka þegar hann verður seldur.

Lengi staðið til að selja erlendum aðilum


Það hefur lengi staðið til hjá Glitni, og helstu kröfu­höfum bank­ans, að reyna að selja Íslands­banka til erlendra aðila. Viðræður við nokkra hópa höfðu staðið yfir um nokk­urra mán­aða skeið og þeir sem hafa sýnt mestan áhuga koma ann­ars vegar frá löndum við Persaflóa í Mið-Aust­ur­löndum og hins vegar frá Kína. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er um að ræða risa­stór fyr­ir­tæki sem eiga þegar hluti í alþjóð­legum bönkum. Ein­hverjir hópanna rit­uðu undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á bank­anum í febr­úar síð­ast­liðnum. Þá hafa einnig verið kann­aðir mögu­leikar á því að skrá Íslands­banka á markað erlendis, annað hvort í Svíþjóð eða Noregi, og koma að minnsta kosti hluta af eign­ar­haldi hans í erlenda eigu með þeim hætti.

Í júlí var meira að segja til­kynnt um ramma­sam­komu­lag um sam­starf milli Glitnis og Íslands­banka svo að slita­með­ferð þess fyrr­nefnda myndi ná fram að ganga. Í ramma­sam­komu­lag­inu var meðal ann­ars kveðið á um að sala Íslands­banka til íslenskra fjár­festa yrði tak­mörkuð.

Það er líka áhugi hjá stjórn­endum Íslands­banka á því að fá erlenda eig­endur. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, sagði í júní að það væri ágætt ef einn banki væri í erlendri eigu að hluta eða algjör­lega. Hún hafi greini­lega orðið var við áhuga erlendra fjár­festa á Íslands­banka. „Ég hef kynnt bank­ann fyrir utan Ísland og mér finnst ótrú­lega gaman að heyra að það er áhugi á eign­ar­hald­inu frá ýmsum aðilum[…]En auð­vitað er þetta alltaf spurn­ing um verð. Við höfum nátt­úru­lega verið að skoða hvort skrán­ing erlendis kæmi til greina og rætt við fjár­festa tengda því. Ég held að það séu mis­mun­andi hópar, sem hafa velt þessu fyrir sér. Það væri ágætt að einn banki væri í erlendri eigu að ein­hverjum hluta eða algjör­lega. Það myndi auka fjöl­breytn­ina“


Erlent eignarhald á banka umdeilt


Ljóst var þó að sala á Íslands­banka var umdeild og margir leik­endur í íslensku við­skipta­lífi sjá sér hag í að bank­inn verði seldur inn­lendum aðilum. Íslands­banki á gríð­ar­legt eigið fé (185 millj­arða króna um mitt þetta ár), er með mikla mark­aðs­hlut­deild og getu til að vaxa. Því er skilj­an­legt að margir íslenskir fjár­festar horfi hýru auga til bank­ans.

Það hefur einnig verið póli­tísk and­staða. Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook þann 9. júní að honum þætti afar „ein­kenni­legt að það geti sam­rýmst mark­miðum um efna­hags­legan stöð­ug­leika og þjóð­ar­hags­muni að selja erlendum aðilum bank­ana“. Ástæðan væri sú að erlendur kaup­andi gæti sogað hund­ruði millj­arða króna í gjald­eyri út úr hag­kerf­inu í formi arð­greiðslna. Það var reyndar svo, sam­kvæmt sam­þykktri til­lögu Glitnis um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda, að þau geta gert kröfu um tak­mark­anir á arð­greiðslum í gjald­eyri til erlendra eig­enda til að verja greiðslu­jöfnuð.





Slitabú föllnu bank­ana eiga Íslands­banka og Arion banka að mestu leiti og áforma að selja þá á þessu ári ef aðstæður...

Posted by Frosti Sig­ur­jons­son on Tuesday, June 9, 2015

Þá hefur InDefence-hóp­ur­inn

, sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra til­heyrði einu sinni, gagn­rýnt það ferli sem átt hefur sér stað eftir kynn­ingu á áætlun um losun hafta. Hópurinn telur skorta á upp­lýs­inga­gjöf og gagn­sæi og telur kröfu­hafar vera að fá ódýra leið út úr höftum sem muni skerða lífs­kjör almenn­ings.

Hver mun halda á hlutnum?

Nú er ljóst ekk­ert verður af því að Glitnir selji Íslands­banka. Engar upp­lýs­ingar voru um það í til­kynn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem send var út í nótt hvað ríkið mun gera við þessa nýju eign sína. Þ.e. hvort það hygg­ist eiga hann eða hvort hann eigi að selj­ast.

Þá er eign­ar­hald rík­is­ins á nýjum banka einnig athygl­is­vert í ljósi þess að í frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram á síð­asta þingi, var gengið út frá því að Banka­sýsla rík­is­ins, sem heldur á hlutum rík­is­insí fjár­mála­fyr­ir­tækjum, yrði lögð niður um ára­mót og eign­ar­hlutir rík­is­ins í bönk­unum færðir beint undir ráð­herr­ann. Í fjár­laga­frum­varpi næsta árs er enn­fremur ekki gert ráð fyrir því að Banka­sýslan fái eina krónu frá rík­inu.

Þrátt fyrir þetta aug­lýsti Banka­sýsla rík­is­ins eftir starfs­fólki í verk­efni tengd fyr­ir­hug­aðri sölu­með­ferð rík­is­ins á eign­ar­hlut í Lands­bank­anum hf. í lok síð­ustu viku. Banka­sýslan óskaði eftir sér­fræð­ingi í eigna­um­sýslu og lög­fræð­ingi og hyggst ráða tvo til þrjá ein­stak­linga í tíma­bundin verk­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár