Bankasýslan auglýsir eftir starfsfólki til að selja Landsbankann

Banka­sýsla rík­is­ins aug­lýsir í dag eftir starfs­fólki í verk­efni tengd fyr­ir­hug­aðri sölu­með­ferð rík­is­ins á eign­ar­hlut í Lands­bank­anum hf. Banka­sýslan óskar eftir sér­fræð­ingi í eigna­um­sýslu og lög­fræð­ingi og hyggst ráða tvo til þrjá ein­stak­linga í tíma­bundin verk­efni.

Banka­sýslan gerir því greini­lega ráð fyrir því að hún muni sjá um sölu á eign­ar­hlutnum í Lands­bank­anum sem til stendur að selja, líkt og kom raunar fram í bréfi sem stofn­unin sendi Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í sept­em­ber, þess efnis að stofn­unin myndi skila af sér til­lögu til ráð­herr­ans um sölu­með­ferð á 30 pró­senta eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum fyrir 31. jan­úar á næsta ári.

Bjarni gerir hins vegar ekki ráð fyrir því að Banka­sýslan fá neitt fé til þess að reka sig á næsta ári, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu sem hann hefur lagt fram á Alþingi. Gengið er út frá því í frum­varp­inu að Banka­sýslan verði lögð niður um ára­mótin, eins og Bjarni lagði til í öðru frum­varpi sem hann lagði fram á síð­asta þingi, um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Það mál náði ekki fram að ganga, en sam­kvæmt því átti að leggja niður Banka­sýsl­una og færa eign­ar­hluti rík­is­ins í bönk­unum beint undir fjár­mála­ráð­herr­ann.

[caption id="attachment_41313" align="alignnone" width="801"] Aug­lýs­ingin birt­ist meðal ann­ars í Við­skipta­blað­inu í morgun.[/caption]

Þar var gert ráð fyrir því að fjár­mála­ráð­herra setti sér­staka eig­enda­stefnu, skip­aði þriggja manna ráð­gjafa­nefnd til að veita honum ráð­gjöf og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins. Rík­is­kaup áttu síðan að ann­ast sölu­með­ferð­ina og skila mati á því hvaða til­boð séu best. Það verði hins vegar ráð­herr­ans eins að taka ákvörðun um það hvort taka eigi til­boðum eða ekki.

Þetta frum­varp er ekki að finna í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir þing­vet­ur­inn í ár. Þrátt fyrir það segir í fjár­laga­frum­varp­inu nú að tekið sé mið af því og gert sé ráð fyrir því að stofn­unin verði lögð niður „og er því ekki gert ráð fyrir fjár­heim­ild vegna stofn­un­ar­innar í frum­varp­inu.“

Enn­fremur segir þar að „breyt­ingin er til þess fallin að styrkja eig­enda­hlut­verk ráðu­neyt­is­ins gagn­vart fjár­mála­fyr­ir­tækjum og öðrum hluta­fé­lögum sem og félögum utan rík­is­ins. Fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag á stjórn­sýslu á þessu sviði verður áfram til skoð­unar í haust og gert er ráð fyrir að nið­ur­staða þeirrar skoð­unar muni liggja fyrir við loka­af­greiðslu frum­varps­ins.“

Gert ráð fyrir 71 milljarði fyrir 30 prósenta hlut


Eign­ar­hlutur rík­is­ins í Lands­bank­anum, 98 pró­sent, er langstærsta eignin sem er í umsjón Banka­sýsl­unnar. Í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir næsta ár kemur fram að gert er ráð fyrir að sala á allt að 30 pró­senta hlut fari fram á seinni hluta árs­ins, en það verður ein stærsta einka­væð­ing sög­unnar.

Heimild til þess að selja hlut af hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum hefur verið í lögum frá árinu 2011. Í frum­varp­inu kemur fram að ríkið geri ráð fyrir því að um 71 millj­arður króna fáist fyrir 30 pró­senta hlut og að ágóð­inn verði greiddur inn á skulda­bréf sem voru gefin út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008.

Þrátt fyrir vilja fjár­mála­ráð­herr­ans til að selja hlut í Lands­bank­anum er hins vegar ljóst að ekki er ein­ing milli stjórn­ar­flokk­anna um hver fram­tíð Lands­bank­ans eigi að vera. Á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í apríl síð­ast­liðnum var eft­ir­far­andi ályktun sam­þykkt: „Lands­bank­inn verði sam­fé­lags­banki í eigu þjóð­ar­innar með það mark­miði að þjóna sam­fé­lag­inu í stað þess að hámarka hagnað. Til að bregð­ast við fákeppni á banka­mark­aði er nauð­syn­legt að Lands­bank­inn hafi þann til­gang að bjóða góða þjón­ustu á bestu kjörum til að efla sam­keppni í banka­þjón­ustu á lands­vísu. Lands­bank­inn verði bak­hjarl spari­sjóða­kerf­is­ins.“ Þá hafa stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn gagn­rýnt áform um söl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár