Bókin Kjarval – málarinn sem fór sínar eigin leiðir eftir Margréti Tryggvadóttur er vegleg bók um frægasta málara Íslands fyrir yngri kynslóðir. Það er mikið fagnaðarefni að bók um listamann og listfræði sé gefin út fyrir börn og unglinga og sár vöntun á slíku efni á Íslandi, og ekki síður vöntun á slíku kennsluefni í grunnskólum. Margrét hefur áður sent frá sér bókina Skoðum myndlist og Íslandsbók barnanna en báðar bækurnar hlutu Fjöruverðlaun og sú síðarnefnda tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur og Íslensku bókmenntaverðlaunana.
Bókin um Kjarval virðist eiga að höfða til barna um og yfir 10–12 ára en textinn ætti einnig að höfða til unglinga og fullorðinna því hér er á ferð afar vel skrifuð og læsileg yfirferð um ævi og störf eins merkasta málara Íslands. …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir