Samherji malaði gull við strendur Vestur-Sahara

Samherji hagn­að­ist á fisk­veiðum við Afr­íku­strendur sem kall­aðar voru rányrkja. ESB hefur á ný heim­ilað veið­arnar í trássi við ákvörðun Dómstóls Evr­ópu­sam­bands­ins. „Þetta er í raun síð­asta nýlendan í Afríku,“ segir einn for­svars­manna Vina­fé­lags Vestur-Sahara.

Samherji malaði gull við strendur Vestur-Sahara
Vestur-Sahara Hernám Marokkó hefur staðið yfir í ára­tugi. Hér sjást sjó­menn í borg­inni Daklha í Vestur-Sahara, 21. júní 2014. Mynd: Shutterstock

Samherji var meðal þeirra útgerða sem stund­uðu veiðar við strendur Vestur-Sahara án þess að arð­ur­inn af þeim skil­aði sér til íbúa svæð­is­ins. Talið var að hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins af veið­unum árin 2007 til 2011 hafi verið á þriðja millj­arð króna, eða um þriðj­ungur af heild­ar­hagn­aði Samherja á tíma­bil­inu.

Vestur-SaharaStaðsett örskammt frá Kanarí-eyjum.

Veið­arnar fóru fram á grund­velli samn­inga Evr­ópu­sam­bands­ins við Marokkó og voru gríð­ar­lega umdeildar. Fjallaði DV ítar­lega um veið­arnar árið 2012. Land­svæði Vestur-Sahara er hernumið af Marokkó, en rúm­lega hálf milljón íbúa á svæð­inu hefur barist fyrir sjálf­stæði und­an­farna ára­tugi. Samherji seldi svo Kötlu Seafood, dótt­ur­fé­lag sitt sem stund­aði þessar veiðar, til rúss­neska útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Murmansk Trawl Fleet fyrir 7,7 millj­arða árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár