Andrés Breta­prins Her­tog­inn af Jórvík, hér með móður sinni, Elísabet annarri drottn­ingu. Mynd: Shutterstock

Viðtalið sem felldi prins

Andrés Breta­prins hefur dregið sig í hlé frá öllum opinberum störfum í fyrir­sjáanlegri framtíð eftir að hann veitti umdeilt sjónvarps­viðtal um vinskap sinn við bandaríska barna­níðinginn Jeffrey Epstein. Epstein fannst látinn í fanga­klefa á dögunum og hafa tveir fanga­verðir verið hand­teknir vegna málsins. Stúlka, sem segir Andrés og Epstein hafa brotið gegn sér ítrekað, hvetur prinsinn til að gefa sig fram við yfirvöld í Banda­ríkjunum.

Jeffrey Epstein var fjár­festir og auðkýfingur sem fékk snemma það orðspor að hafa áhuga á ungum stúlkum og villtu djammi. Hann átti valda­mikla vini og þrálátur orðrómur var uppi um að hann útvegaði þeim ólögráða stúlkur í einka­samkvæmum.

Árið 2008 var Epstein sakfelldur eftir langa lögreglu­rannsókn. 17 vitni voru yfirheyrð, þar af fimm brota­þolar, og þótti ljóst að hann hafi vitað að stúlkurnar væru undir lögaldri. Ákæran var alls 53 blaðsíður að lengd og hefði mjög sennilega getað orðið til þess að Epstein yrði dæmdur í ævilangt fangelsi á sínum tíma. Af einhverjum ástæðum féllst saksókn­arinn hins vegar á mála­miðlun sem kom í veg fyrir alla frekari rannsókn málanna. Epstein slapp með 13 mánaða fangelsi sem hann afplánaði að stærstum hluta utan fangelsis­múranna og samverka­menn hans sluppu með skrekkinn.

Síðar kom í ljós að rann­sakendur ræddu við að minnsta kosti 36 stúlkur sem sögðu sömu sögu af samskiptum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár