Fjórtán hrunmál fullrannsökuð og bíða ákvörðunar um saksókn

Alls eru fjórtán svokölluð hrun­mál full rann­sökuð hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og bíða þess að ákvörðun verði tekin um hvort sak­sótt verði í þeim eða ekki. Til við­bótar eru 24 slík mál í rann­sókn, og mörg þeirra mjög langt komið. Búist er við ákvörðun um hvort ákært verði í flestum mál­anna á þessu ári.

Þetta kemur fram í svari emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um stöðu ýmissa mála hjá því.

Enginn sótti upphaflega um


Embætti sér­staks sak­sókn­ara var sett á fót eftir banka­hrunið. Upp­haf­lega var aug­lýst eftir sér­stökum sak­sókn­ara í des­em­ber 2008. Enginn sótti um. Ólafur Þór Hauksson, þá sýslu­maður á Akranesi, var skip­aður í emb­ættið í jan­úar 2009 eftir að aug­lýst var aftur.

Embættið átti upp­haf­lega að rann­saka grun um refsi­verða hátt­semi í aðdrag­anda, tengslum við og í kjöl­far atburða sem leiddu til banka­hruns­ins. Eftir birt­ingu skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis í apríl 2010 var ljóst að af ýmsu yrði að taka hjá emb­ætt­inu. Árið 2011 var efna­hags­brota­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra síðan sam­einuð emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og við það flutt­ist rann­sókn og sak­sókn allra efna­hags­brota­mála, líka þeirra sem höfðu ekk­ert með hrunið að gera, til þess.

Hrunmálin voru 200


Síðan þá hafa 667 mál komið inn á borð emb­ætt­is­ins. Af þeim eru um 200 svokölluð hrun­mál. Alls hefur 139 þeirra verið vísað frá, hætt við rann­sókn þeirra eða málin sam­einuð öðrum málum.

Í dag eru 64 mál í rann­sókn hjá sér­stökum sak­sókn­ara og 50 til við­bótar í því ferli að ákveða hvort sak­sótt verði í þeim eða ekki. Alls bíða 29 mál sem hafa verið kærð til emb­ætt­is­ins úthlut­unar í rann­sókn og í fjórum málum er verið að greina sak­ar­efnið.

[caption id="attachment_17071" align="align­right" width="300"] Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, ásamt Stefáni Eiríks­syni, fyrrum lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.[/caption]

Af þessum fjölda eru 43 hrun­mál. Þrjú þeirra eru skráð í bið, tvö eru í grein­ingu, 24 í rann­sókn ( mörg þeirra langt komin) og fjórtán bíða ákvörð­un­ar­töku um sak­sókn.

Til við­bótar eru nokkur hrun­mál þegar fyrir dóm­stólum. Alls eru sjö mál í dóms­með­ferð fyrir hér­aðs­dómi og sjö mál eru í áfrýjun til Hæsta­réttar. Í þeim sex hrun­málum sem dæmd hafa verið í í Hæsta­rétti hefur verið sak­fellt í fimm. Eina málið sem var sýknað í fyrir Hæsta­rétti var Vafn­ings­málið svo­kall­aða.

Ekki hægt að manna allar rannsóknir


Í lok síð­asta árs var til­kynnt að emb­ættið hefði lokið rann­sókn á meintum umboðs­svikum fyrrum stjórn­enda og eig­enda trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvá. Nið­ur­staðan er að eng­inn verður ákærður og málið látið niður falla. Ákvörðun þess efnis var tekin skömmu fyrir jól. Þeir sem voru til rann­sóknar í mál­inu höfðu þá verið með stöðu grun­aðs manns í 65 mán­uði.

Fjár­fram­lög til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara voru skorin umtals­vert niður í fjár­lögum árs­ins 2015. Embættið fær 291,4 millj­ónir króna á þessu ári en það fékk 561 milljón króna í fyrra. Ólafur Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, segir að skert fjár­fram­lög muni mögu­lega gera það að verkum að hætt veri við rann­sókn mála án þess að þau verði full rann­sökuð. Auk þess mun rann­sókn mála sem þegar eru í rann­sókn mögu­lega drag­ast. „Á fjórtán mán­aða tíma­bili hefur fækkað um meira en helm­ing starfs­manna og að sama skapi hefur sér­fræð­ingum sem vinna við emb­ættið í verk­töku verið fækkað líka. Þetta mikil skerð­ing mun hafa áhrif þótt enn sé nokkuð snemmt að segja til hvers hún leiðir á end­anum. Ljóst er þó að ekki hefur reynst unnt að manna allar þær rann­sóknir sem emb­ættið hefur með höndum eins og sakir standa nú.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár