Líklegt að Theresa May verði orðin forsætisráðherra síðar í vikunni

Andrea Leadsom hefur dregið sig úr for­manns­kjör­inu í Íhalds­flokknum og skilið sviðið eftir fyrir Theresu May. Flokk­ur­inn þarf að stað­festa May, en lík­legt þykir að hún verði orðin for­sæt­is­ráð­herra á næstu dögum.

Andrea Leadsom hefur dregið sig út úr for­manns­kjör­inu í Íhalds­flokknum í Bret­landi. Þetta til­kynnti hún fjöl­miðlum fyrir utan heim­ili sitt rétt í þessu. Hún lýsti yfir óskor­uðum stuðn­ingi sínum við Theresu May sem næsta for­mann og for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.

Graham Brady, for­maður 1922-nefnd­ar­innar sem hefur umsjón með for­manns­kjör­inu, sagði í kjöl­farið að Theresa May væri því eini fram­bjóð­and­inn sem eftir er. Ekki verður fund­inn annan fram­bjóð­andi til að keppa við hana, eins og ein­hverjir höfðu velt upp. Nú þarf að stað­festa May sem næsta leið­toga flokks­ins, og farið verður yfir málið á næst­unni, áður en frek­ari yfir­lýs­ingar eru gefnar. Hann vildi ekki lýsa hana form­lega sem for­mann flokks­ins, en það er nokkuð aug­ljóst að hún verður það.

Leadsom sagð­ist í morgun hafa boðið sig fram til for­manns með hags­muni Bret­lands í huga, en hún studdi úrsögn Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Leadsom las upp bréf sem hún hafði sent Brady í morgun. Þar kemur fram að Theresa May sé með yfir 60% stuðn­ing meðal þing­manna og hún sé í kjör­stöðu til þess að fylgja úrsögn­inni eftir. Það væri ekki ákjós­an­leg staða að horfa fram á níu vikna for­manns­bar­áttu í Íhalds­flokknum, heldur væri þörf á sterkum leið­toga. Sterk rík­is­stjórn þurfi að vinna hratt og hlutir þurfi að vera skýrir.

Hún sagði jafn­framt að hún væri þakk­lát fyrir stuðn­ing­inn sem hún hefði fengið í for­yst­una, en engu að síður hefði stuðn­ingur við hana aðeins verið um 25%. Jafnvel þótt hún hefði unnið á end­anum gæti for­maður með svo lít­inn stuðn­ing þing­manna aldrei stýrt sterkri rík­is­stjórn.

Samkvæmt breskum fjöl­miðlum hefur for­sæt­is­ráðu­neytið gefið til kynna að David Cameron, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, muni ekki standa í vegi fyrir því að Theresa May taki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu eins fljótt og auðið er. Líklegt þykir að hún verði því orðin for­sæt­is­ráð­herra á allra næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár