Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar þurfa ekki lengur háskólapróf

Nú þarf gott orð­spor í stað óflekk­aðs mann­orðs.

Samkvæmt nýjum reglum um hæf­is­mat fram­kvæmda­stjóra og stjórn­ar­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja er það ekki lengur skil­yrði að stjórn­ar­maður eða fram­kvæmda­stjóri í slíkum fyr­ir­tækjum þurfi að hafa háskóla­próf sem nýt­ist í starfi. Stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins saþykkti nýju regl­urnar á fundi sínum þann 8. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Áfram verður þó gerð krafa um að þeir sem sinni umræddum störfum hafi þekk­ingu og reynslu eða að þeir hafi lokið námi sem nýt­ist í starfi. Þá er sér­stak­lega til­greint að stjórn­ar­menn og fram­kvæmda­stjórar skuli hafa þekk­ingu á áhættu­þáttum í starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækis.

[adspot]

Önnur breyt­ing sem gerð var á regl­unum er sú að nú er sett fram skil­yrði um gott orð­spor í stað óflekk­aðs mann­orðs og að stjórn­ar­maður hafi ekki sýnt af sér hátt­semi sem gefur til­efni til að draga í efa hæfni hans.

Hinar nýju reglur taka mið af þeim laga­breyt­ingum sem hér um ræðir, reynslu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins af beit­ingu eldri reglna, þróun og fyr­ir­myndum frá Evrópu sem og þeim athuga­semdum sem fram komu í umsagn­ar­ferli. Regl­urnar voru birtar í Stjórn­ar­tíð­indum þann 23. febr­úar 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár