Havila á leið í þrot – Íslenskir bankar lánuðu milljarða

Lán íslenskra banka til norsks félags sem þjón­ustar olíu­iðn­að­inn, og voru veitt á árunum 2013 og 2014, eru að mestu töpuð. Félagið, Havila Shipping ASA, rambar á barmi gjald­þrots.

Höskuldur Ólafsson er bankastjóri Arion banka og Birna Einarsdóttir stýrir Íslandsbanka. Báðir bankarnir lánuðu háar fjárhæðir til Havila.
Hösk­uldur Ólafsson er banka­stjóri Arion banka og Birna Ein­ars­dóttir stýrir Íslands­banka. Báðir bank­arnir lán­uðu háar fjár­hæðir til Havila.

Norska félagið Havila Shipping ASA rambar á barmi gjald­þrots. Tillögu um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins var hafnað af hópi kröfu­hafa þess á föstu­dag fyrir viku. Fari svo að Havila fari í þrot mun það hafa bein áhrif á tvo íslenska banka, Arion banka og Íslands­banka, sem lán­uðu félag­inu sam­tals 5,7 millj­arða króna í lok árs 2013 og á árinu 2014.

Havila lagði fram til­lögu til norsku kaup­hall­ar­innar þann 9. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sem fól í sér að sam­komu­lag hefði náðst við stærstu lán­veit­endur og hlut­hafa félags­ins um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu. Sam­komu­lagið fól í sér um 15 pró­sent end­ur­heimtur krafna og kaup­rétt á hlutafé. Óveð­tryggðir skulda­bréfa­eig­endur Havila höfn­uðu hins vegar því sam­komu­lagi fyrir rúmri viku.Í til­kynn­ingu sem Havila sendi frá sér 14. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kemur fram að ef þeim snú­ist ekki hugur blasi við gjald­þrot.

Lán­uðu millj­arða til Havila á síð­ustu tveimur árum

Íslenskir bankar hafa ekki verið mikið í þvi að lána til­ er­lendra fyr­ir­tækja frá hruni, enda bundnir í höftum og að langstærstu leyt­i fjár­magn­aðir með inn­lánum almenn­ings sem færðir voru til þeirra með handafli neyð­ar­lag­anna haustið 2008.

Í lok árs 2013 barst hins veg­ar til­kynn­ing um að Íslands­banki hefði tekið þátt í rúm­lega sjö millj­arða króna ­sam­banka­láni til Havila. Nokkrum mán­uðum síðar til­kynnti Arion banki að hann hefði sömu­leiðis lánað norska félag­inu umtals­verða fjár­hæð, um 4,5 millj­arða króna. Óljóst er hvað olli því að norskt félag á mark­aði sem hafði gengið mjög vel árum saman fóru að leita til íslenskra banka til að fá fjár­mögn­un. Vextir eru að jafn­aði lægri í Nor­egi en hér­lendis þar sem norskir bankar geta fjár­magnað sig á alþjóða­mörk­uðum á hag­stæð­ari kjörum en íslenskir bank­ar.

Havila, sem á 27 ­skip sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó, hefur verið eitt af leið­and­i ­fé­lögum í geir­anum á und­an­förnum árum. Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur fallið úr um 115 dölum á tunnu í tæpa 47 dali frá sumr­inu 2014. Lægst fór það í rétt rúm­lega 30 dali. Til­ að vinnsla á olíu í Norð­ur­sjó borgi sig er talið að verðið þurfi að vera um 60 dalir á tunnu.

Lánin færð niður í bókum íslensku bankanna

Íslands­banki hefur ekki viljað upp­lýsa um hvert ætlað tap bank­ans á lánum til Havila er. Í árs­reikn­ingi bank­ans, sem birtur var í febr­úar 2016, kom fram að bank­inn hefði bók­að virð­is­rýrnun á stöðu sína á lánum til fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Ljóst er að sú rýrnun snýr að ann­ars vegar að lánum til Havila og hins vegar til íslenska félags­ins Fáfnis Offs­hore. Í reikn­ingnum kom fram að eitt pró­sent af útlána­safni bank­ans var til fyr­ir­tækja ­sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Alls voru útlán til við­skipta­vina 665,7 millj­arð­ar­ króna um síð­ustu ára­mót og því námu lán til geirans tæpum sjö millj­örðum króna.

Í árs­reikn­ingi Arion banka fyrir árið 2015 kom fram að bank­inn hafði fært veru­lega var­úð­ar­nið­ur­færslu á lán til­ er­lendra fyr­ir­tækja í þjón­ustu­starf­semi tengdri olíu­leit, í kjöl­far erf­ið­leika á þeim mark­aði, á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015. Ekki var til­greint um hversu mikið lánið var fært niður en þar kom hins vegar fram að hrein virð­is­breyt­ing lána var 3,1 millj­arður króna á árinu. Í af­komutil­kynn­ingu Arion banka sagði að nið­ur­færsl­urnar séu að mestu vegna láns­ins til Havila og á lánum sem bank­inn ­yf­ir­tók frá AFL –spari­sjóði á árinu 2015.

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi voru lánin sem komu frá AFLi færð ­niður á öðrum árs­fjórð­ungi síð­asta árs. Um þriggja millj­arða króna var­úð­ar­nið­ur­færsla var færð á efna­hags­reikn­ing bank­ans á fjórða árs­fjórð­ungi. Sú ­nið­ur­færsla er því að mestu leyti vegna láns­ins til Havila og ljóst að bank­inn ­reiknar með miklum afföllum vegna þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár