Flokkarnir spýta í lófana fyrir kosningar

Flokk­arnir á Alþingi þurfa að flýta allri vinnu í ljósi kom­andi kosn­inga. Búist er við dag­setn­ingu haust­kosn­ing­anna á næst­unni. Þing­flokks­for­maður Fram­sóknar vill ekki full­yrða að kosið verði í haust.

Krafan um kosningar hefur verið hávær síðan fréttir úr Panamaskjölunum birtust. Búist er við því að dagsetning haustkosninganna verði ákveðin á næstunni.
Krafan um kosn­ingar hefur verið hávær síðan fréttir úr Panama­skjöl­unum birt­ust. Búist er við því að dag­setn­ing haust­kosn­ing­anna verði ákveðin á næst­unni. Mynd: Birgir Þór

Alþing­is­kosn­ingum verður flýtt til hausts­ins. Búist er við því að rík­is­stjórnin komi fram með ákveðna dag­setn­ingu á næst­unni. Forysta stjórn­ar­and­stöð­unnar átti fund með Sigurði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra í morgun þar sem hann ítrek­aði áform stjórn­ar­flokk­anna um að flýta kosn­ingum.

Það verður þó meira en að segja það fyrir flokk­ana að demba sér í kosn­ingar eftir hálft ár. Framundan eru stór og erfið mál á Alþingi, sögu­legar for­seta­kosn­ingar og fleiri birt­ingar úr Panama­skjöl­unum, og allt getur þetta haft áhrif á athygli stjórn­mála­flokk­anna.

En hvar eru flokk­arnir staddir fyrir kom­andi kosn­ingar?

Sjálfstæðisflokkur - 26,7% fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi

Tilbúin í kosningar

Mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins kom saman um helg­ina þar sem vend­ingar síð­ustu daga voru ræddar. Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, full­yrðir að kosið verði í haust. Hún segir mið­stjórn­ina taka ákvörðun hvort flýta skuli lands­fundi í ljósi þess, en sá síð­asti var hald­inn síð­ast­liðið haust. Þá hafa flokks­ráðs­fundir og fundir for­manna sjálf­stæð­is­fé­lag­anna einnig verið boð­aðir.

„Við höfum alltaf sagt að við erum reiðu­búin í kosn­ingar. Við erum til­búin til að leggja þau verk sem við höfum unnið að í rík­is­stjórn á borðið fyrir kjós­endur og þau verk sem við viljum vinna í náinni fram­tíð,” segir Ragn­heiður. Vinnan sé í fullum gangi.

„Það hefur verið verk­lag innan flokks­ins árum saman að þegar ár er í kosn­ingar erum við byrjuð að skipu­leggja hvernig við ætlum að leggja í þá vinnu,” segir hún. „Það skiptir ekki höf­uð­máli hvort kosið verði níu mán­uðum fyrr. Við erum til­búin í kosn­ingar í haust.”

Framsóknarflokkur - 6,9% fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi

Ef kosningum verður flýtt taka stofnanir flokksins við

„Ef kjör­dagur verður annar en ráð­gert var í apríl 2017, taka stofn­anir flokks­ins við. Ég hef engar áhyggjur af öðru en að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé til­bú­inn í kosn­ingar, hvort sem þær verða í haust eða á næsta ári,” segir Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Spurður hvort hann sé óviss um að kosið verði til Alþingis í haust svarar hann:

„Það liggur ljóst fyrir að við erum að fara að ræða ákveðin mál sem þarf að klára á Alþingi. Þegar það liggur fyrir með hvaða hraða er hægt að afgreiða þau, er hægt að negla niður kjör­dag. Það er ljóst að rík­is­stjórnin vill halda sam­starf­inu áfram til að klára þessi mál og það er sú vinna sem liggur fyrir og eftir það er hægt að sam­ræma þau sjón­ar­mið með því að flýta kosn­ingum. Það á að vera hægt að sam­ræma þetta.”

Ásmundur segir Fram­sókn­ar­flokk­inn fyrst og fremst ætla að ein­beita sér að því að klára þau mál sem liggja fyrir í þing­inu. Það sé númer eitt, tvö og þrjú. Skipulag og annað tengt kosn­ing­unum verði í höndum Land­stjórnar, sem fundar í þess­ari viku eða næstu. Land­stjórn skipu­leggur síðan mið­stjórn­ar­fund og ákveður hvenær flokks­þing verður haldið. Eftir á að koma í ljós hvort stofn­anir Fram­sókn­ar­flokks­ins munu halda próf­kjör eða stilla upp á lista.

Samfylking - 9% fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi

Formaðurinn vill persónukjör

Sam­fylk­ingin kýs sér nýja for­ystu í byrjun júní. Í febr­úar var ákveðið að flýta lands­fundi og for­manns­kjöri til að for­ystan hefði góðan tíma og full­gilt umboð fyrir kom­andi kosn­ingar.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir þetta líka hafa kosti í för með sér.

„Þetta er ekki kjör­staða, en gerir það að verkum að for­maður flokks­ins, hver sem hann verður, kemur með traust og öruggt umboð inn í kosn­ingar,” segir hann. Flokk­ur­inn sé á margan hátt á góðum stað til að fara í kosn­ingar í haust.

„Ég vil viðra það við aðra flokka hvort laga­frum­varp Val­gerðar Bjarna­dóttur um per­sónu­kjör verði sett fram með nýstár­legri hætti en áður. Ég væri til í að sjá að þeir flokkar, sem vilja nýta sér per­sónu­kjör, gætu gert það,” segir hann.

Vinstri græn - 19,8% fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi

Allri vinnu flýtt

Stjórn flokks­ins og þing­flokks­ins fór yfir stöð­una sem upp er komin á fundi í gær. Katrín Jak­obs­dóttir for­maður segir að næstu skref séu stefnu­vinna og mótun kosn­inga­ár­herslna.

„Það þarf aug­ljós­lega að flýta þeirri vinnu,” segir Katrín. „Siðan er það í höndum kjör­dæm­is­raða hvernig er valið á lista, hvort það verði for­val, upp­still­ing eða hvað. Kjör­dæmin fá nú til­mæli til að und­ir­búa sig undir það að kosn­ingar verði í haust og þau þurfa að fara að flýta þeirri vinnu.”

Björt framtíð - 5% fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi

Skerpt á grunnprinsippum

Björt fram­tíð ætlar sér að bjóða fram í næstu kosn­ingum. Óttarr Proppé segir skýrar reglur um hvernig raðað er á lista.

„Það er ljóst á umræðum í flokknum og bak­land­inu að sterk trú á okkar mál­efna­stöðu og hlut­verk okkar eigi erindi í íslenska póli­tík, þannig að við látum ekki deigan síga,” segir Óttarr. „Grunn­prinsippin eru skýr og þau hafa ekki breyst, nema það hefur verið skerpt á þeim. Atburð­ar­rásin núna hefur sýnt fram á hvað þau skipta miklu máli.”

Óttarr segir að fyrsta skrefið sé að fá á hreint hvenær verði kosið. Ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um að skipta út for­manni fyrir næstu kosn­ingar, en for­maður er kos­inn á árs­fundi. Óttarr tók við sæt­inu af Guðmundi Stein­gríms­syni síð­ast­liðið haust.

Píratar - 29,3% fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi

Ekki vandamál að manna lista

Prófkjör Pírata verða haldin á næst­unni. Erna Ýr Öldu­dóttir, for­maður fram­kvæmda­ráðs Pírata, segir aðild­ar­fé­lög flokks­ins til­búin með fólk í þau próf­kjör.

„Fyrst þarf að halda aðal­fund og svo eru for­seta­kosn­ingar þannig að það er mikið að ger­ast,” segir Erna Ýr. „Ég held að það verði ekki gott að halda próf­kjör á sama tíma og það havarí er í gangi, en það eru ýmsir komnir fram og svo verður aug­lýst eftir fleira fólki.” Erna Ýr segir að á næst­unni munu senni­lega fleiri stíga fram og vilja taka þátt í starfi Pírata.

„Ég held að þetta verði ekki vanda­mál,” segir hún. Píratar eru komnir með tíu aðild­ar­fé­lög víðs­vegar um landið og að sögn Ernu eru tvö í far­vatn­inu til við­bótar. Það verða engin sæti í próf­kjör­inu, en fólki er frjálst að lækka sig um sæti eftir að nið­ur­stöður eru kunn­gerðar.

Viðreisn - 2,7% í nýjasta Þjóðarpúlsi

Nýr veruleiki eftir Kastljósþáttinn

Viðreisn ætlar að bjóða fram sem nýr flokkur í næstu Alþing­is­kosn­ingum og er nú í fyrsta sinn að mæl­ast í skoð­ana­könn­unum. Benedikt Jóhann­es­son, tals­maður Við­reisnar, segir stöð­una hafa gjör­breyst á einni nóttu.

„Við bjuggum okkur undir kosn­ingar næsta vor og fórum því rólega, en ákveðið, af stað,” segir Benedikt. Verið sé að stofna nefndir og nú vinna sex mál­efna­hópar skipu­lagt að stefn­unni í nýju hús­næði flokks­ins. „Við höfum hisst nær dag­lega síðan á mánu­deg­inum eftir Kast­ljós­þátt­inn.“

Viðreisn verður form­lega stofnuð sem stjórn­mála­flokkur í byrjun sum­ars. Tímara­mm­inn fyrir mönnun á lista flokks­ins hefur þó verið skertur niður í fimm mán­uði úr tólf.

„Þetta er alveg nýr veru­leiki,” segir Benedikt. „Við erum strax byrjuð að und­ir­búa fundi um allt land og erum að fara á fullt. Svo er bara það sem skiptir öllu máli fyrir kjós­endur: Að þetta sé flokkur með góða stefnu og góðu fólki sem fylgir henni eftir á Alþingi. Ég er full­viss um að við náum því. Við fáum sterka kandídata, lítið þekkt fólk og reynd­ara fólk, karla og konur. Það eru spenn­andi tímar framundan.”

Flokk­ur­inn hefur ekki verið stofn­aður form­lega, hann verður stofn­aður í seinni hluta maí, byrjun júní. Það verður ekki flókið hír­arkí í því. Við sjáum það á öðrum flokkum að það má ekki vera of mikið los.

*Fréttin var upp­færð 14. apríl með til­liti til nýrrar skoð­ana­könn­unar Gallup sem birt var á RÚV að kvöldi 13. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár