Kröfuhafar gætu fengið hundruð milljarða um jólin

Rúmum sjö árum eftir banka­hrunið stefnir í að slitum föllnu bank­anna ljúki á allra næstu dögum eða vikum. Stöð­ug­leika­fram­lög verða lík­lega greidd fyrir ára­mót og kröfu­hafar fá sínar greiðslur um svipað leyti. Það er þó ekki ein­ing um nið­ur­stöð­una.

Einum stærsta eft­ir­stand­andi anga hruns­ins mun brátt ljúka þegar slitabú Glitnis, Land­bank­ans og Kaup­þings ljúka nauða­samn­ingi sínum. Við það munu þau breyt­ast í venju­leg end­ur­skipu­lögð eign­ar­halds­fé­lög og greiða kröfu­höfum sínum, að mestu banda­rískum fjár­fest­inga- og vog­un­ar­sjóðum, út hund­ruð millj­arða króna. Á sama tíma mun rík­is­sjóður fá greidd stöð­ug­leika­fram­lög úr slita­bú­unum sem notuð verða til að greiða niður skuldir rík­is­ins, og þar af leið­andi skuldir allra lands­manna. Það verður jóla­gjöfin í ár.

Þótt þessi nið­ur­staða sé mjög skammt undan, og allt bendi til þess að kröfu­haf­arnir fái greitt í kringum kom­andi jóla­há­tíð, þá verður ekki sagt að það ríki ein­ing í sam­fé­lag­inu um þá nið­ur­stöðu sem er nú að verða að veru­leika.

Þvert á móti.

Fordæmalausar aðgerðir

Í júní síð­ast­liðnum var hald­inn kynn­ing­ar­fundur þar sem for­dæma­lausar aðgerðir stjórn­valda til að losa um fjár­magns­höft voru kynntar. Á þeim fundi var svo­kall­aður stöð­ug­leika­skattur upp á 39 pró­sent kynntur og sagt að hann myndi leggj­ast á slita­búin ef þau klár­uðu ekki nauða­samn­ing sinn fyrir ára­mót. Áður en fund­ur­inn hófst höfðu öll slita­búin lagt fram til­lögur um hvernig þau væru til­búin að mæta svoköll­uðum stöð­ug­leika­fram­lögum stjórn­valda til að fá að klára nauða­samn­ings­gerð sína. Til­lög­urnar voru afrakstur við­ræðna milli stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna og fram­kvæmda­hóps um losun hafta sem höfðu staðið yfir frá því í lok febr­úar 2015. Búið var að sam­þykkja til­lög­urnar með fyr­ir­vara áður en kynn­ing­ar­fund­ur­inn hófst.

Lyk­il­at­riði við að klára málið var að Seðla­banki Íslands kláraði grein­ingu á greiðslu­jöfn­uði og fjár­mála­stöð­ug­leika til að tryggja að greiðslur úr slita­bú­unum myndu ekki ógna þeim. Á end­anum þurfti að gera breyt­ingar á stöð­ug­leika­fram­lagi slita­bú­anna, sem fólu að mestu í sér að Íslands­banki, nú í eigu Glitnis, verður afhentur rík­inu í heilu lagi. Áður stóð til að selja bank­ann og skipta ágóð­anum á milli kröfu­hafa Glitnis og rík­is­sjóðs.

Seðla­banki Íslands sam­þykkti breyttar til­lögur slita­búa föllnu bank­anna um stöð­ug­leika­fram­lag í lok októ­ber síð­ast­lið­ins. Samkvæmt kynn­ingu sem fram fór 28. októ­ber síð­ast­lið­inn áttu bein stöð­ug­leika­fram­lög slita­bú­anna að vera sam­tals 379 millj­arðar króna. Sú tala breyt­ist þó dag frá degi, meðal ann­ars vegna geng­is­breyt­inga íslensku krón­unnar. Samkvæmt nýj­ustu fréttum mun Glitnir greiða um 223 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag.

Þurfa að fá samþykki dómstóla

Frá því að þessi kynn­ing­ar­fundur var haldin hafa slita­búin unnið hörðum höndum að því að klára slit sín. Búið er að fá sam­þykki kröfu­hafa fyrir nauða­samn­ingi þeirra allra. Það var gert á fundum sem haldnir voru síð­ari hluta nóv­em­ber­mán­aðar og nán­ast allir kröfu­hafar allra bank­anna þriggja sem greiddu atkvæði sam­þykktu þá.

Næsta skref var að leggja nauða­samn­ing­inn fyrir hér­aðs­dóm Reykja­víkur til stað­fest­ingar. Glitnir lagði sinn samn­ing fram til sam­þykktar 4. des­em­ber síð­ast­lið­inn og fimm dögum síðar var dóm­stóll­inn búin að sam­þykkja nauða­samn­ings­frum­varp bank­ans. Síðdegis á mánu­dag rann síðan út kæru­frestur vegna hans.

Nauða­samn­ingur Kaup­þings var tek­inn fyrir í hér­aðs­dómi á þriðju­dag í síð­ustu viku en mál­inu var þá frestað. Ástæðan var sú að það vant­aði íslenska þýð­ingu á skjölum sem Kaupþing lagði fram. Sú við­bót­ar­þýð­ing var lögð fram dag­inn eftir þegar málið var tekið aftur fyrir. Frum­varpið var svo sam­þykkt í gær. Lands­bank­inn lagði sitt nauða­samn­ings­frum­varp fram fyrir hér­aðs­dóm til sam­þykktar í gær, 15. des­em­ber. Ekki er búist við öðru en að nauða­samn­ings­frum­varp Lands­bank­ans verði sam­þykkt á nokkuð skömmum tíma, líkt og gerð­ist hjá Glitni og Kaup­þingi.

Ferlinu er þó ekki að fullu lokið þá.

Stöðugleikaframlög greidd fyrir áramót

Þegar Glitnir, Kaupþing og Lands­bank­inn fengu greiðslu­stöðvun haustið 2008 hlaust sjálf­krafa laga­leg vernd gagn­vart fjár­námi og öðru slíku í Evrópu, á grund­velli til­skip­anna sem Ísland hefur inn­leitt í lög á grund­velli EES-samn­ings­ins. Þar sem íslensku bank­arnir gáfu einnig út skulda­bréf í Banda­ríkj­unum þurfti hins vegar einnig að sækja um svo­kallað Chapter 50 þar í landi og í kjöl­farið að fá við­ur­kenn­ingu á íslensku slita­með­ferð­inni fyrir banda­rískum dóm­stólum.

Áður en að hægt verður að klára nauða­samn­ing slita­bú­anna verða þau að upp­lýsa banda­ríska dóm­stóla um að slita­með­ferð sé lokið og að greiðslur til kröfu­hafa séu á næsta leyti. Glitnir gerði það fyrst íslenska slita­bú­anna í gær og hin tvö slita­búin munu gera það í kjöl­farið.

Þá vantar end­an­lega und­an­þágu Seðla­banka Íslands frá gjald­eyr­is­höftum,sem hann hefur þegar sagt að hann muni veita, til að hægt verði að heim­ila útgreiðslur úr slita­bú­unum. Í til­felli Glitnis, sem er nokkrum dögum á undan í sínu ferli en hin slita­búin, gætu slíkar útgreiðslur haf­ist strax og þing­haldi fyrir banda­rískum dóm­stólum er lokið, en það verður lík­ast til í þess­ari viku. Eignir Glitnis voru 981,1 millj­arður króna um mitt þetta ár. Miðað við áætlað stöð­ug­leika­fram­lag má ætla að um 758 millj­arðar króna renni á end­anum til kröfu­hafa bank­ans. Til að byrja með verður allt laust fé bús­ins, um 400 millj­arðar króna, greitt út. Þeir munu allt í allt fá um 32 pró­sent af kröfum sínum greiddar. Það er meira en vænt­ingar kröfu­hafa gerðu ráð fyrir framan af þessu ári, ef mið er tekið af verði skulda­bréfa á Glitni, sem ganga kaupum og sölum. Samkvæmt því voru áætl­aðar end­ur­heimtir í voru 27 til 29 pró­sent. Þorri eigna Glitnis, eða um 73 pró­sent þeirra, er reiðufé eða ígildi þess.

Kaupþing mun lík­ast til þurfa að greiða um 127 millj­arða króna í stöðu­leika­fram­lag og gamli Lands­bank­inn um 23 millj­arða króna. End­ur­heimtir kröfu­hafa Kaup­þings eru í efri mörkum þess sem þeir hafa búist við á und­an­förnum árum og end­ur­heimtir kröfu­hafa Lands­bank­ans verður hærra en vænt­ingar kröfu­hafa stóðu til.

Stöð­ug­leika­fram­lögin verða greidd áður en að kröfu­höfum verður greitt út. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði á kynn­ing­ar­fundi vegna stýri­vaxt­ar­á­kvörð­unar Seðla­banka Íslands í síð­ustu viku að greiðsla á stöð­ug­leika­fram­lögum gæti átt sér stað fyrir ára­mót. Starfs­menn Íslands­banka geta því farið að búa sig undir rík­is­starfs­manna­brand­ara á sinn kostnað strax á nýju ári.

Í kjöl­farið verða slita­stjórn­irnar lagðar niður og stjórnir sem helstu kröfu­hafar hafa valið taka við stjórn end­ur­skipu­lagðra eign­ar­halds­fé­laga sem munu halda á þeim eignum sem slita­búin eiga enn.

Gagnrýni úr mörgum áttum

Ljóst er að það er ekki ein­ing um þá leið sem valið hefur verið að fara. InDefence-sam­tökin hafa til dæmis gagn­rýnt stjórn­völd harð­lega fyrir sam­komu­lag þeirra við stjórn­völd og sagt að kröfu­hafar séu að fá ódýra leið út úr íslenskum höftum. Þau hafa einnig gagn­rýnt stjórn­völd fyrir að setja fram vill­andi fram­setn­ingu á stöð­ug­leika­fram­lag­inu sem fellur rík­is­sjóði í skaut. Í umsögn InDefence um mat á und­an­þágu­beiðnum slita­búa sagði m.a.: „Þessi vandi bygg­ist á því að kröfu­höfum slita­bú­anna verður hleypt út úr höftum með allt að 500 millj­arða króna í erlendum gjald­eyri. Fyrir vikið sitja almenn­ingur, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóðir á Íslandi eftir með mikla efna­hags­lega áhættu og verða að treysta á bjart­sýna hag­vaxt­ar­spá Seðla­banka Íslands. Standist hún ekki, munu lífs­kjör á Íslandi skerð­ast og áfram­hald­andi fjár­magns­höft til margra ára. Það er óásætt­an­legt að fyr­ir­hug­aðar aðgerðir tryggi hags­muni kröfu­hafa, en skapi efna­hags­lega áhættu fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki á Íslandi.“

Stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa einnig gagn­rýnt stjórn­völd fyrir lausn þeirra á mál­efnum slita­bú­anna. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði m.a. að stjórn­völd hefðu búið til „þykjustu­mynd“ sem sýndi gríð­ar­háar fjár­hæðir í stöð­ug­leika­fram­lag og sagt að erlendir kröfu­hafar sleppi létt frá höftum.

Hin stórkostlega ritdeila

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina einnig vegna máls­ins í grein sem hann skrif­aði í Frétta­blaðið á fimmtu­dag í síð­ustu viku. Þar sagði Kári m.a. að hann vilji að ríkið sæki 150 millj­arða króna til við­bótar frá slita­búum þeirra banka sem settu sam­fé­lagið á hlið­ina og setji í heil­brigð­is­kerfið. „Fyrr á árinu gáfu Sig­mundur og Bjarni það í skyn að ríkið myndi sækja allt að 850 millj­arða króna í þrota­búin en þegar upp er staðið virð­ist það ætla að verða um 300 millj­arðar. Ekki hafa feng­ist hald­góðar skýr­ingar á því hvers vegna þeir sætta sig við svo skarðan hlut en eitt er víst að 500 millj­arð­arnir sem á milli ber hefðu gert gott betur en að laga íslenskt heil­brigð­is­kerfi. Það lítur helst út fyrir að nægju­semi flokks­for­ingj­anna tveggja eigi rætur sínar í því að þeir hafi ekki viljað taka þá áhættu að styggja aðra kröfu­hafa í þrota­búin með því að taka meira. Það er dap­ur­legt að sitja uppi með korn­unga leið­toga sem ættu aldur síns vegna að vera hungr­aðir, kraft­miklir og hug­rakkir en þora ekki að taka það sem við þurfum og eigum skilið. [...]Og Sig­mundur og Bjarni standa hoknir í hnjánum fyrir framan kröfu­haf­ana sem eru full­trúar hins erlenda auð­valds, og eru hreyknir yfir því að þeir kvört­uðu ekki undan dílnum sem þeir fengu og virð­ast ekki gera sér grein fyrir því að það voru ekki bara kröfu­haf­arnir sem glöt­uðu allri virð­ingu fyrir þeim þegar bux­urnar þeirra fóru að blotna heldur hið alþjóð­lega sam­fé­lag allt og ekki síst íslensk þjóð.“

Sig­mundur Davíð svar­aði Kára reiður í aðsendri grein á föstu­dag og sagði að ávirð­ingar Kára um að upp­gjör slita­búa föllnu bank­anna og losun fjár­magns­hafta skili bara 300 millj­örðum króna í rík­is­sjóð en ekki 850, likt og boðað hafi verið, sé „eitt ómerki­leg­asta bull þeirra sem gremst að stjórn­völdum skuli hafa tek­ist það sem áður var sagt ómögu­legt við losun hafta og upp­gjör bank­anna[...]Þótt losun hafta sé flókið mál vita flestir sem hafa gefið sér 5 mín­útur eða svo í að kynna sér málið að þetta er ósatt. Stöð­ug­leika­skattur myndi m.v. núver­andi gengi skila um 622 millj­örðum í fjár­fram­lögum, auk ann­arra ráð­staf­ana, en stöð­ug­leika­fram­lag skilar um 500-600 millj­örðum (og meiru ef með þarf) í formi pen­inga og eigna auk ann­arra ráð­staf­ana upp á nokkur hund­ruð millj­arða sem styrkja stöðu efna­hags­lífs­ins og rík­is­sjóðs. Sú leið tryggir að fram­lögin verða næg til að takast á við vand­ann, sem þeim er ætlað að leysa, sama hversu stór hann reyn­ist.“

Baráttan um bankana eftir

Ef fram fer sem horfir mun þess­ari bar­áttu þó ljúka á for­sendur rík­is­stjórn­ar­innar og við mun taka önnur bar­áttu, í þetta sinn um eign­ar­hald á end­ur­reistu bönk­unum. Rík­is­stjórnin hefur þegar gert það ljóst að til standi að selja 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á árinu 2016. Samhliða stendur til að skrá Lands­bank­ann á markað.

Þá hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lýst því yfir að það sé ekki heilla­væn­legt að ríkið eigið Íslands­banka til lengri tíma. Það má því telja nokkuð öruggt að hann verði settur í sölu­ferli í náinni fram­tíð.

Slagur er þegar haf­inn um Arion banka, þrátt fyrir að Kaupþing, eig­andi 87 pró­sent hlutar í honum, hafi þrjú ár til að selja hann. Sá slagur hófst fyrir ára­mót þegar Virðing og Arctica Finance reyndu að mynda hóp til að kaupa bank­ann og tók óvænta beygju þegar líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, með þrjá stærstu sjóð­ina í fara­broddi, til­kynntu að þeir ætl­uðu bara að kaupa bank­ann án aðkomu milli­liða.

Þeir hefðu þó betur borið áform sín undir slita­stjórn Kaup­þings því Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem situr í henni og mun sitja í stjórn Kaup­þings eftir að slitum verður lokið, sagði í við­tali við Morg­un­blaðið í vik­unni að sá verð­miði á Arion banka sem hafi verið í umræð­unni sé mun lægri en Kaupþing meti bank­ann á. Jóhannes Rúnar sagði mik­inn erlendan áhuga á Arion banka og að til greina kæmi að selja hann í hlutum.

Ljóst er að almenn­ingur mun fylgj­ast náið með þessu sölu­ferli, enda mjög brenndur af einka­væð­ingu banka frá því að slík var fram­kvæmd síð­ast hér­lendis, á árunum 2002 og 2003. Í könnun sem birt var í Frétta­blað­inu í dag kom fram að 61,4 pró­sent lands­manna treysta ekki Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum til að selja hluti rík­is­ins í þeim bönkum sem það á. Einungis 21,5 pró­sent treysta stjórn­ar­flokk­unum vel fyrir verk­efn­inu en 17,2 pró­sent svara hvorki né. Háskóla­mennt­aðir treysta þeim minnst ásamt íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og yngra fólki, í ald­urs­hópnum 25 til 34 ára.

Óljóst hver myndi selja bankana

Það er ekki bara kaup­enda­hliðin sem hefur verið á reiki þegar kemur að sölu bank­anna. Mjög óljóst hefur verið hver það er sem muni sjá um sölu þeirra. Í apríl var lagt fram frum­varp sem gekk út á að færa verk­efni Banka­sýslu rík­is­ins til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis. Ráðherra þess átti í kjöl­farið að setja sér­staka eig­enda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjafa­nefnd, án til­nefn­ingar, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra hluta. Lögin áttu, sam­kvæmt frum­varpi, að taka gildi í byrjun næsta árs.
Í fjár­laga­frum­varpi 2016 átti banka­sýslan ekki að fá krónu. Eitthvað mikið hefur hins vegar breyst í milli­tíð­inni því sam­kvæmt nýbirtum breyt­ing­ar­til­lögum við fjár­laga­frum­varp næsta árs fær hún þrefalt hærri upp­hæð en á fjár­lögum árs­ins 2015 og á að setja sig í stell­ingar til að taka á móti Íslands­banka, þegar kröfu­hafar föllnu bank­anna afhenda rík­inu hann.

Banka­sýsla rík­is­ins hefur farið frá því að vera óþörf stofnun í að verða ein áhrifa­mesta stofnun lands­ins á örfáum mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár