Stöðugleikaframlag samtals 379 milljarðar - Glitnir greiðir 229 milljarða af þeirri upphæð

Bjarni Benediktsson áætlunina. Már Guðmundsson fylgist með.
Bjarni Bene­dikts­son áætl­un­ina. Már Guð­munds­son fylgist með. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls mun stöð­ug­leika­fram­lag slita­búa föllnu bank­anna nema tæp­lega 379 millj­örðum króna. Þar af er stöð­ug­leika­fram­lag Glitnis 229 millj­arðar króna, Kaup­þings um 127 millj­arðar króna og gamla Lands­bank­ans um 23 millj­arða króna. Auk þess verður ráð­stöfun krónu­eigna búanna í skatta, kostnað og fleira um 46 millj­arða króna. Þetta kemur fram í grein­ar­gerð Seðla­banka Íslands um mat á upp­gjöri fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja á grund­velli stöð­ug­leika­skil­yrða og áhrif þeirra á greiðslu­jöfnuð og fjár­mála­stöð­ug­leika.

Auk þess munu skulda­leng­ingar og upp­greiðsla lána­fyr­ir­greiðslu, sem íslenska ríkið veitti nýju við­skipta­bönk­unum árið 2009, nema sam­tals 151 millj­örðum króna. Þá munu end­ur­heimtir krafna sem Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ), dótt­ur­fé­lag Seðla­banka Íslands ,heldur á nema 81 millj­örðum króna, en félagið er stærsti inn­lendi kröfu­hafi föllnu bank­anna. Því reiknar Seðlan­bank­inn út að mót­væg­is­að­gerðir sem gripið hafi verið til, nú og í for­tíð, vegna stöðu slita­bú­anna, nemi 660 millj­örðum króna. Þessi tala gæti hækkað ef end­ur­heimtir af lágt metnum eignum hækka. Ekki er til­greint í grein­ar­gerð Seðla­bank­ans hvaða eignir það gætu verið.

Þegar áætlun stjórn­valda um losun hafta var kynnt í júní kom fram að álagn­ing 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatts á slita­búin, tæk­ist þeim ekki að ljúka nauða­samn­ings­gerð sinni fyrir ára­mót, myndi skila 850 millj­örðum króna.

Í kynn­ingu sem haldin var í dag var ítrekað bent á að heild­ar­um­fang aðgerð­anna væri 856 millj­arðar króna. Þar voru taldar með allar aðgerðir í for­tíð og nútíð gagn­vart slita­bú­unum, stöð­ug­leika­fram­lag, skattar, end­ur­greiðslur, end­ur­heimtir ESÍ, end­ur­greiðslur á lánum sem íslenska ríkið veitti við­skipta­bönk­unum árið 2009 og fjár­mögnun sem slita­búin hafa samið um að veita íslenskum við­skipta­bönkum.

Bjarni og Seðlabankinn styðja stöðugleikaframlag

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í dag þá hefur Seðla­banki Íslands kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að nauða­samn­ingar, og síðan slit slita­búa Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans, muni ekki valda greiðslu­ó­jöfn­uði né ógna íslensku fjár­mála­kerfi. Bankinn kynnti þessa nið­ur­stöðu fyrir Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, á mánu­dag. Bjarni greindi frá því í dag, í fyrsta sinn, að hann styðji þá nið­ur­stöðu sem Seðla­bank­inn hefur kom­ist að. Þ.e. að upp­gjör slita­bú­anna verði klárað með stöð­ug­leika­fram­lagi en ekki álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts.

Á kynn­ing­ar­fundi sem hald­inn var í dag kom einnig fram að slita­búin munu fá lengri frest en til ára­móta til að klára upp­gjör slita­bú­anna. Sá frestur verður til 15. mars 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár