Seðlabankinn veitir slitabúum undanþágu - Bjarni styður niðurstöðuna

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur fengið afhent stað­fest­ing­ar­bréf frá Seðla­banka Íslands þar sem fram kemur að bank­inn telji það rétt að veita slita­búum Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að ljúka gerð nauða­samn­inga þeirra.

Bjarni hefur lýst því yfir að hann styðji þá nið­ur­stöðu sem Seðla­bank­inn hefur kom­ist að. Bréf Seðla­bank­ans til Bjarna voru send á mánu­dag. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Seðla­bank­ans og fram­kvæmda­nefndar um losun fjár­magns­hafta sem stendur nú yfir.

Í grein­ar­gerð sem Seðla­banki Íslands hefur birt á vef sínum kemur fram að : "Kaupþing hf., Glitnir hf. og LBI hf. greiða sam­tals 491 ma.kr. til stjórn­valda í formi stöð­ug­leika­fram­lags, skatt­greiðslna auk end­ur­heimta ESÍ frá umræddum þremur aðilum. Þær end­ur­heimtur renna að lokum til rík­is­sjóðs í sam­ræmi við reglur um fjár­hags­leg sam­skipti Seðla­banka Íslands og rík­is­ins". Þar segir einnig að fyr­ir­liggj­andi drög að nauða­samn­ingum slita­bú­anna þriggja upp­fylli kröfur laga um gjald­eyr­is­mál um að efndir nauða­samn­ing­anna "ásamt fyr­ir­hug­uðum mót­væg­is­ráð­stöf­unum leiða hvorki til óstöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum né raska fjár­mála­stöð­ug­leika, að mati Seðla­banka Íslands".

Beint stöð­ug­leika­fram­lag verður hins vegar 379 millj­arðar króna.

Slitabúin fá lengri frest

Lögð hefur verið fram laga­breyt­ing­ar­til­laga á þingi sem veitir slita­bú­unum frek­ari frest til 15. mars til að ljúka sínum málum. Í máli fund­ar­manna kom fram að þetta væri til að tryggja að ekki yrði of mikið álag á dóm­stólum. Búin áttu upp­runar­lega að ljúka ferl­inu fyrir árs­lok, ann­ars átti að falla á þau 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur.

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði í erindi sínu á fund­inum að meg­in­nið­ur­staða máls­ins væri sú að slita­búin muni reiða fram stöð­ug­leika­fram­lög, lengt verði í gjald­eyr­is­inn­lánum og lán greidd upp. Allar end­ur­heimtir sem ríkið fær vegna þessa muna renna til Eigna­safns Seðla­banka Íslands, dótt­ur­fé­lag Seðla­bank­ans. Heild­ar­um­fang aðgerð­anna nú er metið á um 660 millj­arða króna en ef fyrri aðgerðir Seðla­bank­ans, eins og lengin láns til Lands­bank­ans, eru taldar með á umfang aðgerð­anna að ná yfir 850 millj­arða króna.

Seðla­banki Íslands hefur birt grein­ar­gerð um mat sitt á vef­síðu sinni.

Már tók sér­stak­lega fram í erindi sínu að skulda­staða Íslands verði það góð eftir að ferl­inu lýkur að hún hafi ekki verið betri síðan á síldar­æv­in­týr­is­ár­unum á sjö­unda ára­tugnum. Í grein­ar­gerð Seðla­bank­ans segir: "Hrein skulda­staða Íslands batnar veru­lega í kjöl­far upp­gjörs á grund­velli stöð­ug­leika­skil­yrða. Hreinar erlendar skuldir lækka um 3.740 ma.kr. og und­ir­liggj­andi erlend staða batnar um 360 ma.kr. beint vegna slit­anna en þegar tekið er til­lit til ann­arra þátta og vaxtar nafn­virðis lands­fram­leiðslu er gert ráð fyrir að skulda­staðan fari úr tæp­lega þriðj­ungi af lands­fram­leiðslu á þessu ári niður fyrir 10% í lok næsta árs. Þá er ekki búið að taka með í reikn­ing­inn lækkun skulda­stöð­unnar sem mun verða vegna fyr­ir­hug­aðs útboðs aflandskróna en ekki er hægt nú að segja til um hversu mikil hún verður. Jafn hag­stæð skulda­staða gagn­vart útlöndum hefur ekki þekkst í ára­tugi".

Heildarumfang sagt 856 milljarðar

Sigurður Hann­es­son, sem fer fyrir fram­kvæmda­nefnd um losun fjár­magns­hafta, opn­aði kynn­ingu sína á því að heild­ar­um­fang aðgerð­anna væri 856 millj­arðar króna. Alls myndu slita­búin greiða 491 millj­arði króna í stöð­ug­leika­fram­lag, skatta og end­ur­greiðslur. Á meðal ann­arra aðgerða sem talin eru til eru end­ur­greiðslur á lána­fyr­ir­greiðslum vegna lána sem stjórn­völd veittu nýju bönk­unum árið 2009 upp á 74 millj­arða króna. Þá taki slita­búin á sig fjár­mögnun nýju bank­anna til langs tíma upp á 226 millj­arða króna.

Í grein­ar­gerð Seðla­bank­ans kemur fram að stöð­ug­leika­skattur hefði, að teknu til­liti til nýj­ustu upp­gjöra slita­bú­anna og geng­is­breyt­inga, numið 770 millj­örðum króna. Bankinn telur rétt að leggja áherslu á að fjár­hæðir stöð­ug­leika­fram­lags og stöð­ug­leika­skatts séu ósam­bæri­legar.

Þar segir einnig: "Leið nauða­samn­inga á grund­velli stöð­ug­leika­skil­yrða er mun áhættu­minni en skatta­leiðin, þar sem girt er fyrir áhættu með marg­vís­legum ráð­stöf­unum og áhætta vegna dóms­mála verður mun minni".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár