Segir mikinn erlendan áhuga á Arion banka

Jóhannes Rúnar Jóhansson, sem situr í slitastjórn Kaupþings.
Jóhannes Rúnar Jóhans­son, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings.

Til greina kemur að selja 87 pró­sent hlut slita­stjórnar Kaup­þings í Arion banka í hlutum. Verð­hug­myndir slita­stjórn­ar­innar eru fjarri geng­inu 0,6-0,8 af bók­færðu eigin fé bank­ans, líkt og rætt hefur verið um að hægt yrði að selja íslenska banka á. Hún vill fá meira fyrir Arion banka. Mikill áhugi sé erlendis frá á hlutafé í Arion banka, meðal ann­ars frá Bret­landi og Skand­in­avíu. Sumir þeirra hafa skjal­fest þann áhuga sinn í vilja­yf­ir­lýs­ingum og komið til Íslands vegna áhuga síns. Þetta kemur fram í við­tali við Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem sæti á í slita­stjórn Kaup­þings, í Við­skipta­Mogg­anum í dag.

Ljóst er að mikil upp­stokkun er framundan í íslensku banka­kerfi. Rík­is­sjóður ætlar að selja 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á næsta ári og vilji er til þess að selja Íslands­banka, sem ríkið fær sem hluta af stöð­ug­leika­fram­lagi Glitnis, í náinni fram­tíð. Í sam­komu­lagi slita­stjórnar Kaup­þings við stjórn­völd, sem gerir henni kleift að ljúka slitum á búi bank­ans, er gert ráð fyrir því að selja verði Arion banka innan þriggja ára.

Í við­tal­inu við Jóhannes Rúnar kemur hins vegar fram að slita­stjórnin er ekki að flýta sér að því að selja bank­ann. Hann segir þær verð­hug­myndir sem hafi verið ræddar, að virði bank­ans sé 0,6-0,8 af bók­færðu eigin fé hans, séu að hans mati óraun­hæfar og að í bókum Kaup­þings sé verð­mið­inn allt annar. Þó sé erfitt að finna rétta verð­mið­ann. „Sitt sýn­ist hverjum í því. Arion banki er hins vegar vel rek­inn banki, bæði á íslenskan mæli­kvarða og ekki síður alþjóð­legan. Hann er skip­aður hæfum stjórn­endum sem hafa vakið eft­ir­tekt og góðu starfs­fólki. Hann hefur skilað góðum árangri und­an­farin ár. Hagnaður hefur verið við­un­andi, arð­semi eigin fjár stöðug og góð og það hefur verið vax­andi þróun. Það eru ágætir vaxt­ar­mögu­leikar innan bank­ans, hann er leið­andi á mörgum sviðum banka­starf­semi og inn­an­húss eru margar góðar eignir. Hann er búinn að fara í gegnum end­ur­skipu­lagn­ingu og lána­bókin meðal ann­ars verið tekin í gegn. Þannig að grunn­ur­inn sem bank­inn stendur á er mjög traustur og það hefur auð­vitað áhrif á verðið.“

Jóhannes Rúnar segir að slita­stjórnin hafi hitt flesta stærstu fjár­fest­inga­banka Bret­lands, og víðar frá, vegna áhuga á hlutafé í Arion banka. „Allir þessir aðilar vilja kom­ast að verk­efn­inu og taka þátt í því og allir telja sig geta selt að minnsta kosti hluta bank­ans erlendis. Þessir fundir hafa komið til að frum­kvæði þeirra og þeir hafa í mörgum til­vikum lagt í mjög mikla vinnu við að greina bank­ann og sölu­mögu­leik­ana.“

Gegn áformum lífeyrissjóða

Ljóst er að við­talið við Jóhannes Rúnar er ekki í takt við þær vænt­ingar sem stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa haft gagn­vart því að eign­ast Arion banka. Kjarninn greindi frá því 14. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins ætli sér að reyna að kaupa bank­ann. Þeir ætl­uðu hins vegar ekki að taka þátt í þeim kaup­enda­hópum sem fjár­mála­fyr­ir­tækin Virðing og Arctica Finance höfðu verið að reyna að setja saman, þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing á stærstu sjóði lands­ins um að gera það.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður ætl­uðu þess í stað sjálfir að leiða kaupin. Öllum líf­eyr­is­sjóðum lands­ins hefur verið boðið að vera með og ef kaupin myndu ganga eftir ætl­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir að skrá Arion banka á markað strax á næsta ári. Tveir fundir voru haldnir með slita­stjórn­inni í nóv­em­ber en þeir voru hvor­ugir form­legir og ljóst var á þeim að sala á Arion banka til líf­eyr­is­sjóð­anna, á því verði sem þeir hafa í huga, var ekki for­gangs­mál hjá slita­stjórn­inni. Líf­eyr­is­sjóð­irnir telja að verð­mið­inn á Arion banka ætti að vera í kringum 100 millj­arðar króna, en eigið fé bank­ans var 175 millj­arðar króna í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Það þýðir að líf­eyr­is­sjóð­irnir eru að meta 87 pró­sent hlut Kaup­þings í Arion banka á 0,6-0,7 af bók­færðu eigin fé hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár