Lífeyrissjóðir búnir að funda tvívegis með Kaupþingi vegna kaupa á Arion banka

Kaupþing hefur þrjú ár til að selja Arion banka. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa áhuga og hafa fundað með slita­stjórn Kaup­þings vegna mögu­legra kaupa.

For­svars­menn stærstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins, sem leiða mögu­leg kaup líf­eyr­is­sjóða lands­ins á Arion banka, hafa fundað tví­vegis með aðilum frá slita­stjórn Kaup­þings vegna kaupanna. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans áttu fund­irnir tveir sér ann­ars vegar stað mánu­dag­inn 16. nóv­em­ber og hins vegar í síð­ustu viku. Viðræður eru ekki orðnar form­legar heldur er um þreif­ingar að ræða. Því er of snemmt að segja til um hvort og þá hvernig slitabú Kaup­þings og líf­eyr­is­sjóðir lands­ins nái saman um kaup á einum af þremur stóru við­skipta­bönkum lands­ins.

Samkvæmt sam­þykktri áætlun stjórn­valda um afnám hafta, sem fjallar m.a. um hvernig eigi að ljúka slita­búum föllnu bank­anna, þurfa slita­stjórnir þeirra að fá stað­fest­ingu dóm­stóla á nauða­samn­ingum sínum fyrir 15. mars 2016. Upp­haf­lega átti slík stað­fest­ing að liggja fyrir í lok þessa árs, ann­ars myndi stöð­ug­leika­skattur leggj­ast á búin. Það þýðir samt ekki að slita­stjórn Kaup­þings þurfi að selja 87 pró­sent hlut sinn í Arion banka fyrir 15. mars. Í áætlun stjórn­valda, og þeim lögum sem hafa verið sam­þykkt til að hrinda henni í áætlun, kemur nefni­lega skýrt fram að slita­stjórnin fái þrjú ár til að selja bank­ann.

Það er því ekki tíma­þrýst­ingur á slita­stjórn Kaup­þings um að selja bank­ann hratt. Eign­ar­hald hans mun ein­fald­lega fær­ast til eign­ar­halds­fé­lags í eigu kröfu­hafa eftir að slitum á búinu lýkur, verði Arion banki óseldur á þeim tíma. Þessi staða litar mjög þær þreif­ingar sem eru nú til staðar milli líf­eyr­is­sjóð­anna og Kaup­þings. Slita­stjórnin hefur ein­fald­lega í mjög mörg önnur horn að líta þessi miss­erin við að tryggja fram­gang nauða­samn­ings síns og mæt­ingu stöð­ug­leika­skil­yrða. Þau verk­efni eru í for­gangi fyrst slita­stjórnin fékk jafn rúman tíma og raun ber vitni til að selja Arion banka.

Hættu við að fara með Virðingu eða Arctica Finance

Kjarninn greindi frá því 14. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins ætli sér að kaupa Arion banka. Þeir ætla ekki að taka þátt í þeim kaup­enda­hópum sem fjár­mála­fyr­ir­tækin Virðing og Arctica Finance hafa verið að reyna að setja saman und­an­farnar vikur, þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing á stærstu sjóði lands­ins um að gera það.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður munu leiða kaupin. Öllum líf­eyr­is­sjóðum lands­ins verður boðið að vera með og gangi kaupin eftir ætla líf­eyr­is­sjóð­irnir að skrá Arion banka á markað strax á næsta ári.

Fyrir liggur að Arion banki verður ekki keyptur af inn­lendum aðilum nema með aðkomu líf­eyr­is­sjóða lands­ins. Umfang kaupanna, sem verður lík­lega um 100 millj­arðar króna, er það mikið að aðrir fjár­festar á íslenska mark­aðnum hafa ekki bol­magn til að ráð­ast í þau án þeirra aðkomu. Þess vegna unnu þau tvö fjár­mála­fyr­ir­tæki sem hafa reyndu að koma saman kaup­enda­hópi að Arion banka fyrr í haust, Arctica Finance og Virðing, mikið að fá stærstu líf­eyr­is­sjóði lands­ins til liðs við sig.

Stjórnir og stjórn­endur stærstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins ákváðu hins vegar í byrjun nóv­em­ber að fara ekki í sam­starf með Virðingu eða Arctica. Þess í stað ætla þeir að bjóða sjálfir beint í 87 pró­sent hlut slita­stjórnar Kaup­þings í Arion banka, án milli­liða á borð við ofan­greind fyr­ir­tæki.

Ljóst er þó að flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins þurfa að vinna saman ef að kaup­unum á Arion á að verða. Stærstu sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, LSR og Gildi, munu taka stóra hluti í bank­anum, allt að tíu pró­sent hvor. Aðeins minni sjóðir munu geta tekið í kringum fimm pró­sent hlut hver og svo koll af kolli. Þannig ætla sjóð­irnir sér að kaupa þann 87 pró­sent hlut slita­stjórnar Kaup­þings sem er til sölu og vera eig­endur bank­ans á móti íslenska rík­inu, sem á 13 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár