Í apríl átti að leggja Bankasýsluna niður - Nú fær hún 97 milljónir og undirbýr bankaeinkavæðingu

Í apríl var lagt fram frum­varp sem gekk út á að færa verk­efni Banka­sýslu rík­is­ins til fjár­mála­ráðu­neytis. Í fjár­laga­frum­varpi 2016 átti hún ekki að fá krónu. Nú stendur til að þre­falda fram­lag til hennar og færa Íslands­banka til Banka­sýsl­unnar.

Banka­sýsla rík­is­ins hefur farið frá því að vera óþörf stofnun í að verða ein áhrifa­mesta stofnun lands­ins á örfáum mán­uðum. Í apríl stóð til að leggja hana niður en sam­kvæmt nýbirtum breyt­ing­ar­til­lögum við fjár­laga­frum­varp næsta árs fær hún þrefalt hærri upp­hæð en á fjár­lögum árs­ins 2015 og á að setja sig í stell­ingar til að taka á móti Íslands­banka, þegar kröfu­hafar föllnu bank­anna afhenda rík­inu hann.

Auk þess er Banka­sýslan á fullu við það að und­ir­búa sölu á allt að 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, hún réð nýverið til sín sér­fræð­inga vegna þeirrar vinnu og ekk­ert far­ar­snið virð­ist vera á henni.

Hvað gerð­ist eig­in­lega?

Í apríl átti að leggja Bankasýsluna niður

Það vakti mikla athygli þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varp til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum þann 1. apríl síð­ast­lið­inn. Samkvæmt lög­unum átti að verða mikil breyt­ing á því skipu­lagi sem hafði verið á eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum eftir hrun, þegar það sat með ansi stóran hlut af banka­kerf­inu í fang­inu.

Samkvæmt frum­varp­inu átti að leggja Banka­sýslu rík­is­ins, sem í dag fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í bönkum, niður og færa eign­ar­hluti í fjár­mála­fyr­ir­tækjum undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann átti auk þess að setja sér­staka eig­enda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjafa­nefnd, án til­nefn­ingar, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra hluta.

Það var því ljóst að færa átti allt sölu­ferli þeirra banka sem ríkið á hlut í og ætlar sér að selja frá Banka­sýslu rík­is­ins og yfir til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Ráð­herr­ann sem réði því hverju sinni gæti þá, að eigin frum­kvæði, eða að feng­inni til­lögu ráð­gjafa­nefndar sem hann einn skipar, stýrt nýju banka­einka­væð­ing­ar­ferli. Þegar slíkt ákvörðun liggur fyrir skal lögð áhersla á „opið sölu­ferli, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni. Með hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­boðs­gjöfum eru sett séu sann­gjörn og að þeir njóti jafn­ræðis. Við sölu skal kapp­kosta að efla virka og eðli­lega sam­keppni á fjár­mála­mark­aði“.

Rík­is­kaup áttu að ann­ast sölu­með­ferð­ina og skila ráð­herr­anum rök­studdu mati á því hvaða til­boð sé best. Ráðherra átti hins vegar einn að taka ákvörðun um hvort að taka eigi til­boði í við­kom­andi eign­ar­hlut í banka eða ekki.

Lögin áttu, sam­kvæmt frum­varpi, að taka gildi í byrjun næsta árs.

Bankasýslan auglýsir eftir fólki

Þrátt fyrir þennan vilja ráð­andi afla, sem birt­ist skýrt í frum­varpi Bjarna, hélt Banka­sýslan áfram að starfa eins og ekk­ert hefði í skorist. Hún gerði áfram ráð fyrir því að hún myndi sjá um sölu á eign­ar­hlutnum í Lands­bank­anum sem til stendur að selja. Það kom m.a. fram í bréfi sem stofn­unin sendi Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í sept­em­ber, þess efnis að stofn­unin myndi skila af sér til­lögu til ráð­herr­ans um sölu­með­ferð á 30 pró­senta eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum fyrir 31. jan­úar á næsta ári.

Í októ­ber aug­lýsti Banka­sýslan svo eftir starfs­fólki í verk­efni tengd fyr­ir­hug­aðri sölu­með­ferð rík­is­ins á eign­ar­hlut í Lands­bank­anum hf. Banka­sýslan óskaði eftir sér­fræð­ingi í eigna­um­sýslu og lög­fræð­ingi og hyggst ráða tvo til þrjá ein­stak­linga í tíma­bundin verk­efni. Seint í nóv­em­ber voru Hrafn Árnason og Þórólfur Heiðar Þor­steins­son ráðnir til Banka­sýsl­unnar í verk­efnið. Hrafn var áður for­stöðu­maður VÍB, eigna­stýr­ing­ar­sviðs Íslands­banka, en Þórólfur Heiðar starf­aði síð­ast sem lög­maður hjá BBA Legal.

Engin ákvörðun verið tekin í október

Kjarninn beindi þeirri spurn­ingu til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í októ­ber hvort enn stæði til að leggja niður Banka­sýsl­una. Þá var ný búið að til­kynna að íslenska ríkið muni eign­ast allt hlutafé í Íslands­banka ef nauða­samn­ingar Glitnis verða sam­þykktir fyrir 15. mars. Þá mun íslenska ríkið eiga tvo af þremur stóru við­skipta­bönkum lands­ins. Eins og lögin eru núna myndi Banka­sýsla rík­is­ins fara með það eign­ar­hald og eftir atvikum und­ir­búa sölu bank­anna.

Í svari ráðu­neyt­is­ins þá kom fram að engin ákvörðun hefði verið tekin um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag þeirra verk­efna sem nú væru á borði Banka­sýslu rík­is­ins. Að óbreyttu yrði Banka­sýslan ekki lögð niður um ára­mót líkt og frum­varpið sem Bjarni lagði fram í apríl gerði ráð fyrir.

Framlög til Bankasýslu þrefölduð

Þrátt fyrir þessa stefnu­breyt­ingu var ekki gert ráð fyrir einni krónu í rekstur Banka­sýslu rík­is­ins á fjár­lögum árs­ins 2016. Þá náði frum­varpið um lög um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum ekki fram að ganga á síð­asta þingi og er ekki á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir yfir­stand­andi þing­vetur.

Því virt­ist staðan vera sú að rík­is­stjórnin ætl­aði ekki að ýta breyt­ingum á þessum mik­il­vægu málum í gegn, en heldur var ekki gert ráð fyrir að fyrri skipu­lag, með Banka­sýslu rík­is­ins sem mið­punkt, myndi halda sér.

Þ.e. þar til að breyt­ing­ar­til­lögur við fjár­laga­frum­varpið fóru að detta inn í kjöl­far þess að það var tekið úr nefnd síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Í einni slíkri kemur fram að Banka­sýslan fái 97 millj­ónir króna á næsta ári. Það er þrisvar sinnum hærri upp­hæð en stofn­unin fékk á fjár­lögum árs­ins 2015. Í stað þess að leggja niður Banka­sýsl­una, vænt­an­lega vegna þess að hún hefur þótt óþörf, hafa fjár­fram­lög til hennar verið þre­földuð.

Bankasýslan mun sjá um stærstu einkavæðingar Íslandssögunnar

Auk þess eru henni falin ný og krefj­andi verk­efni. Í annarri breyt­ing­ar­til­lögu segir að það eigi að „færa eign­ar­hluti í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, sem afhentir kunna að verða sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi, til Banka­sýslu rík­is­ins á grund­velli laga um Banka­sýslu rík­is­ins.“ Það þýðir að Íslands­banki mun fara til Banka­sýsl­unnar þegar kröfu­hafar afhenda rík­inu hann.

Eign­ar­hlutur rík­is­ins í Lands­bank­anum, 98 pró­sent, er sem stendur langstærsta eignin sem er í umsjón Banka­sýsl­unnar. Í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir næsta ár kemur fram að gert er ráð fyrir að sala á allt að 30 pró­senta hlut fari fram á seinni hluta árs­ins, en það verður ein stærsta einka­væð­ing sög­unnar.

Heimild til þess að selja hlut af hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum hefur verið í lögum frá árinu 2011. Í fjar­laga­frum­varpi árs­ins 2016 kemur fram að ríkið geri ráð fyrir því að um 71 millj­arður króna fáist fyrir 30 pró­senta hlut og að ágóð­inn verði greiddur inn á skulda­bréf sem voru gefin út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008. 

Til við­bótar hefur Bjarni Bene­dikts­son ítrekað sagt að það sé ekki fram­tíð­ar­lausn að ríkið eigi allt hlutafé í Íslands­banka. Því má búast við að ríkið muni selja Íslands­banka þegar það eign­ast hann.

Heimild til þess að selja hlut af hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum hefur verið í lögum frá árinu 2011. Í frum­varp­inu kemur fram að ríkið geri ráð fyrir því að um 71 millj­arður króna fáist fyrir 30 pró­senta hlut og að ágóð­inn verði greiddur inn á skulda­bréf sem voru gefin út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár