Ríkið reiknar með að fá 71 milljarð króna fyrir tæpan þriðjung í Landsbankanum

Íslenska ríkið reiknar með því að fá um 71 millj­arð króna fyrir 30 pró­sent hlut sinn í Lands­bank­anum. Þetta kemur fram í fjárlaga­frum­varpi árs­ins 2016. Þar stendur: „Hlutafé, eign­ar­hlutir í fyr­ir­tækjum og stofn­unum og erlent stofnfé í árs­lok 2014 nam 351 mia.kr. og áætlað er að þessar eignir verði svo til óbreyttar í lok árs 2015 eða 352 mia.kr. Á árinu 2016 er gert ráð fyrir að þessar eignir lækki um 71 mia.kr. og nemi 281 mia.kr. í lok árs­ins. Lækkun frá yfir­stand­andi ári skýrist af sölu á hluta af eign­ar­hluta rík­is­sjóðs í Lands­bank­anum.“

Heimild til að selja hlut í Lands­bank­anum hefur verið í lögum frá því á árinu 2011. Ljóst er að mik­ill vilji hefur verið hjá hluta af núver­andi rík­is­stjórn, sér­stak­lega Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að nýta þá heim­ild. Í fjár­lögum fyrir árið 2015 var gert ráð fyrir að 15 pró­sent hlutur í bank­anum yrði seldur fyrir lok yfir­stand­andi árs og önnur 15 pró­sent um mitt ár 2016.

Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016 kemur fram að und­ir­bún­ingur söl­unnar hafi taf­ist „af ýmsum ástæðum“ og hefur áformum um sölu allt að 30 pró­sent hlutar verið frestað fram á seinni hluta árs 2016.

Samhliða stendur til að skrá Lands­bank­ann aftur á hluta­bréfa­markað, en for­veri hans var skráður þar áður en hann fór á hlið­ina í októ­ber 2008. Miðað við það verð sem ríkið reiknar með að fá fyrir 30 pró­sent hlut í bank­anum má ætla að mark­aðsvirði bank­ans sé um 237 millj­arðar króna að mati stjórn­valda. Það er nán­ast sama upp­hæð og Lands­bank­inn á í eigin fé, en um mitt þetta ár var eigið fé hans 240 millj­arðar króna.

Vill borða kökuna og eiga hana


Bjarni var spurður út í söl­una á Lands­bank­anum á Alþingi í gær og hvort honum væri alvara með því að rétt væri að hefja einka­væð­ingu á Lands­bank­anum á ný. Í svari sínu sagði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að hann hefði aldrei lagt það til að ríkið drægi sig alveg út sem eig­anda í Lands­bank­anum. Hann sæi fyrir sér að ríkið yrði áfram aðal­eig­andi í Lands­bank­anum um langa fram­tíð. Bjarni hefur áður látið hafa eftir sér að hann sjái fyrir sér að ríkið muni í fram­tíð­inni eiga 40 pró­sent hlut í bank­anum.

[caption id="attachment_9185" align="alignnone" width="640"] „Það var enda alltaf hug­myndin frá því að end­ur­reisn Lands­bank­ans stóð fyrir dyrum að ríkið myndi draga úr eigna­hlut sínum.“ Þannig væri hægt að bæði borða kök­una og eiga hana. „Við verðum áfram ber­andi, ráð­andi hlut­hafi," sagði Bjarni Bene­dikts­son á Alþingi í gær.[/caption]

Í þing­inu í gær sagði Bjarni það geta verið Íslend­ingum til hags­bóta að draga úr hlut rík­is­ins í bank­anum og hægt væri að nýta sölu­and­virðið til að borga niður skuldir og létta á vaxta­kostn­aði rík­is­ins. „Það var enda alltaf hug­myndin frá því að end­ur­reisn Lands­bank­ans stóð fyrir dyrum að ríkið myndi draga úr eigna­hlut sínum.“ Þannig væri hægt að bæði borða kök­una og eiga hana. „Við verðum áfram ber­andi, ráð­andi hlut­hafi.“

Ágóðinn verður notaður til að greiða niður skuldabréfaflokk


Í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir því að ágóð­inn af sölu á 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum verði greiddur inn á ákveð­inn rík­is­skulda­bréfa­flokk, sem heitir RIKH18. Sá flokkur var gef­inn út til að fjár­magna eig­in­fjár­fram­lag íslenska rík­is­ins til nýja Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka eftir banka­hrunið 2008. Flokk­ur­inn er á gjald­daga árið 2018 og sem stendur nemur útistand­andi fjár­hæð hans rúm­lega 213 millj­örðum króna.

Í frum­varp­inu segir beinum orðum að „upp­greiðsla skulda­bréf­anna er veru­lega íþyngj­andi í end­ur­greiðslu­ferli lána rík­is­sjóðs og því er gert ráð fyrir að nýta sölu­and­virði eign­ar­hluta rík­is­sjóðs í Lands­bank­anum á árinu 2016 til þess að greiða inn á þennan skulda­bréfa­flokk. Vaxta­gjöld af RIKH 18 eru veru­legur hluti vaxta­gjalda rík­is­sjóðs eða um 13 pró­sent á yfir­stand­andi ári en með sölu á hluta af eign­ar­hlut rík­is­sjóðs í bank­anum væri unnt að lækka þann kostnað um allt að 2 mia.kr. á ári frá og með árinu 2017.“

Miðað er við að eft­ir­stöðvar skulda­bréfa­flokks­ins nemi 141,5 millj­örðum króna í lok árs 2016, þegar búið verður að ráð­stafa sölu­and­virði á 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum inn á hann, alls 71 millj­arði króna.

Ein stærsta einkavæðing Íslandssögunnar


Salan á 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum verður ein stærsta einka­væð­ing Íslands­sög­unnar. Einungis salan á Símanum, sem fór fram árið 2005, var stærri í krónum talið. Kaup­endur Símans, Exista, og við­skipta­legir með­reið­ar­sveinar þess áður stór­tæka fjár­fest­ing­ar­fé­lags, keyptu Símann af íslenska rík­inu undir hatti félags sem fékk nafnið Skipti á upp­hæð sem í dag myndi vera um 140 millj­arðar króna.

Til sam­an­burðar má nefna að 24 millj­arðar króna feng­ust fyrir Bún­að­ar­bank­ann þegar hann var seldur S-hópnum í jan­úar 2003. Á verð­lagi dags­ins í dag er sú upp­hæð um 46 millj­arðar króna. Þegar ríkið seldi Samson-hópnum 45,8 pró­sent síðla árs 2003 var kaup­verðið 12,3 millj­arðar króna, eða jafn­virði um 24 millj­arða krona í dag að teknu til­liti til verð­bólgu­þró­unar.

Óvissa um hvernig salan fer fram


Íslend­ingar eru nokkuð brenndir af einka­væð­ing­ar­ferlum. Salan á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum og Lands­bank­anum skömmu eftir ald­ar­mót hefur alla tíð verið gagn­rýnd fyrir spill­ingu, ógegn­sæi og ófag­leg­heit. Með henni voru tvö stærstu fjár­mála­fyr­ir­tæki lands­ins seld til manna sem höfðu litla sem enga reynslu af fjár­mála­starf­semi og annar hóp­ur­inn, sá sem fékk að eign­ast Bún­að­ar­bank­ann, var meðal ann­ars skip­aður mönnum úr innsta valda­kjarna Fram­sókn­ar­flokks­ins á þeim tíma.

Því skiptir miklu máli að vel tak­ist til nú þegar sala á rík­is­eignum er að hefj­ast á ný. En óvissa virð­ist uppi um hvernig salan muni fara fram, þótt fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi sagt að hann vilji skrá bank­ann á markað og að vinna við það muni fara fram í vetur.

Ástæða þess að óvissa er uppi er sú að til er stofnun sem heitir Banka­sýsla rík­is­ins. Hún var sett á fót af rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna og hlut­verk hennar er að halda á hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, meðal ann­ars Lands­bank­anum.

[caption id="attachment_16744" align="alignnone" width="597"] Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, sendi bréf til ráð­herra þar sem hann boðar til­lögu um sölu­með­ferð á hlut í Lands­bank­anum.[/caption]

Bankasýslan lögð niður og hlutir færðir beint undir ráðherra


Í vor lagði Bjarni Bene­dikts­son fram frum­varp til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum þar sem gert er ráð fyrir því að Banka­sýslan verði lögð niður. Þess í stað verða eign­ar­hlut­irnir í bönk­unum færðir undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem setur sér­staka eig­enda­stefnu vegna þeirra, skipar þriggja manna ráð­gjafa­nefnd, án til­nefn­inga, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra eign­ar­hluta.

Samkvæmt frum­varp­inu eiga Rík­is­kaup síðan að ann­ast sölu­með­ferð­ina og skila ráð­herr­anum rök­studdu mati á því hvaða til­boð sé best. Hann á hins vegar einn að taka ákvörðun um hvort að taka eigi til­boði í við­kom­andi eign­ar­hlut í banka eða ekki.

Frum­varp­inu var vísað til fjár­laga­nefndar í maí eftir fyrstu umræðu og afgreitt þaðan í júní. Stefnt er að því að það verði að lögum fyrir árs­lok. Gangi það eftir munu lögin taka gildi um næstu ára­mót.

Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016 er gengið út frá því að umrætt frum­varp verði að lögum og að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður. Henni eru því ætl­aðar núll krónur á fjár­lögum næsta árs. Þar segir síðan orð­rétt: „Breyt­ingin er til þess fallin að styrkja eig­enda­hlut­verk ráðu­neyt­is­ins gagn­vart fjár­mála­fyr­ir­tækjum og öðrum hluta­fé­lögum sem og félögum utan rík­is­ins. Fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag á stjórn­sýslu á þessu sviði verður áfram til skoð­unar í haust og gert er ráð fyrir að nið­ur­staða þeirrar skoð­unar muni liggja fyrir við loka­af­greiðslu frum­varps­ins.“

Bankasýslan vill ekkert verða lögð niður


Vilji fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og sam­flokks­manna hans er því nokkuð ljós í þessu máli. Það á að leggja niður Banka­sýsl­una og færa yfir­ráð yfir hlutum í bönkum beint undir ráð­herr­ann.

Það kom þess vegna nokkuð á óvart þegar for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar sendu ráð­herr­anum bréf, dag­sett 9. sept­em­ber 2015, þess efnis að stofn­unin muni skila af sér til­lögu um sölu­með­ferð á 30 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum fyrir 31. jan­úar 2016. Sú til­laga gæti því borist 31 degi eftir að Banka­sýslan verður lögð niður með lögum.

Í bréfi þeirra Jóns G. Jóns­sonar, for­stjóra Banka­sýsl­unnar, og Lárusar L. Blöndal, stjórn­ar­for­manns hennar, segir að stofn­unin muni fram að 31. jan­úar ræða mögu­lega útfærslu á sölu við Lands­bank­ann við stærstu stofn­ana­fjár­festa inn­an­lands eins og líf­eyr­is­sjóði og fjár­fest­inga­sjóði, og alþjóð­lega fjárfeestingarbanka, sem stofn­unin kann svo að kalla til ráð­gjafar við form­legt sölu­ferli. „Banka­sýsla rík­is­ins mun leggja ríka áherslu á að upp­lýsa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið með reglu­bundnum hætti um fram­vindu máls­ins og að eiga fram­úr­skar­andi gott sam­starf við alla hags­muna­að­ila, sem munu þurfa að koma að ferl­inu,“ segir í lok bréfs­ins.

[caption id="attachment_39620" align="alignnone" width="1024"] Rík­is­stjórnin virð­ist ekki ganga í takti þegar kemur að sölu á hlut í Lands­bank­anum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur sam­þykkt ályktun á flokks­þingi sem er bein­línis í and­stöðu við þær hug­myndir að skrá bank­ann á markað.[/caption]

Framsókn vill samfélagsbanka – í andstöðu við skráningu


Nokkuð ljóst er að ekki er ein­ing milli stjórn­ar­flokk­anna um hver fram­tíð Lands­bank­ans eigi að vera. Á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í apríl síð­ast­liðnum var eft­ir­far­andi ályktun sam­þykkt: „Lands­bank­inn verði sam­fé­lags­banki í eigu þjóð­ar­innar með það mark­miði að þjóna sam­fé­lag­inu í stað þess að hámarka hagnað. Til að bregð­ast við fákeppni á banka­mark­aði er nauð­syn­legt að Lands­bank­inn hafi þann til­gang að bjóða góða þjón­ustu á bestu kjörum til að efla sam­keppni í banka­þjón­ustu á lands­vísu. Lands­bank­inn verði bak­hjarl spari­sjóða­kerf­is­ins.“

Í við­tali í sjón­varps­þætt­inum Þjóð­braut, á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut, í sumar sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, meðal ann­ast að leita þyrfti leiða til að end­ur­vekja kröft­uga spari­sjóða­starf­semi í land­inu og sagði hann í því efni vert að skoða hug­myndir flokks­bróður síns, Frosta Sig­ur­jóns­sonar um að breyta Lands­bank­anum í svo­kall­aðan sam­fé­lags­banka.

Í frétt Hring­brautar um við­talið segir: „Almennt taldi hann [Sig­mundur Davíð] að það sæist ekki á starf­semi Lands­bank­ans að hann væri að meg­in­hluta í eigu rík­is­ins, en ill­fært væri fyrir stjórn­mála­menn að ráða þar nokkru um vegna arm­lengd­ar­innar sem menn hefðu kosið að hafa á milli stjórn­mál­anna og fjár­mála­kerf­is­ins, en því væri samt ekki að leyna að stundum hin seinni miss­erin hefði það óneit­an­lega verið svo að sér hefði fund­ist nauð­syn­legt að geta gripið inn í atburða­rás­ina í banka­kerf­inu hér á landi. En hann væri bara ekki í færum til þess, mætti það ekki.“

Ályktun flokks­þings Fram­sókn­ar­flokks­ins frá því í apríl, sem for­maður flokks­ins hefur tekið undir opin­ber­lega, er í beinni and­stöðu við það að skrá Lands­bank­ann á hluta­bréfa­markað og selja allt að 60 pró­sent hlut í honum til fjár­festa, til dæmis líf­eyr­is­sjóða, sem munu gera arð­sem­is­kröfu til hans og ekki sætta sig við að Lands­bank­inn sinni sam­fé­lags­legu hlut­verki umfram það að hámarka hagnað. Það er bein­línis and­stætt lögum um fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða að

Ýmislegt gæti því enn gengið á áður en að hlutur í Lands­bank­anum verður seldur til einka­að­ila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár