Bankasýsla ríkisins ekki lögð niður um áramót

Engin ákvörðun hefur verið tekin um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag þeirra verk­efna sem nú eru á borði Banka­sýslu rík­is­ins. Að óbreyttu verður Banka­sýslan ekki lögð niður um ára­mót líkt og frum­varp sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram á síð­asta þingi gerði ráð fyrir. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varp til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum 1. apríl síð­ast­lið­inn. Samkvæmt frum­varp­inu átti að leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins verður og færa eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum undir fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Hann átti í einnig að setja sér­staka eig­anda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjaf­ar­nefnd, án til­nefn­inga, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra eign­ar­hluta.

Í nótt var til­kynnt um að íslenska ríkið muni eign­ast allt hlutafé í Íslands­banka ef nauða­samn­ingar Glitnis verða sam­þykktir fyrir ára­mót. Þá mun íslenska ríkið eiga tvo af þremur stóru við­skipta­bönkum lands­ins. Eins og lögin eru núna mun Banka­sýsla rík­is­ins fara með það eign­ar­hald og eftir atvikum und­ir­búa sölu bank­anna.

Átti ekki að fá krónu á fjárlögum


Sú áætlun rík­is­stjórn­ar­innar að leggja niður Banka­sýsl­una fékk stoð í því að í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016 er ekki gert ráð fyrir því að stofn­unin fái eina krónu frá rík­is­sjóði. Frum­varpið um lög um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum náði þó ekki fram að ganga á síð­asta þingi og er ekki á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir yfir­stand­andi þing­vetur.

Banka­sýslan hefur hins vegar gert ráð fyrir því að hún muni sjá um sölu á eign­ar­hlutnum í Lands­bank­anum sem til stendur að selja. Það kom m.a. fram í bréfi sem stofn­unin sendi Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í sept­em­ber, þess efnis að stofn­unin myndi skila af sér til­lögu til ráð­herr­ans um sölu­með­ferð á 30 pró­senta eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum fyrir 31. jan­úar á næsta ári. Í síð­ustu viku aug­lýsti Banka­sýslan svo eftir starfs­fólki í verk­efni tengd fyr­ir­hug­aðri sölu­með­ferð rík­is­ins á eign­ar­hlut í Lands­bank­anum hf. Banka­sýslan óskaði eftir sér­fræð­ingi í eigna­um­sýslu og lög­fræð­ingi og hyggst ráða tvo til þrjá ein­stak­linga í tíma­bundin verk­efni.

Íslandsbanki á leið í fang ríkisins


Nú gæti bæst veru­lega við verk­efni Banka­sýsl­unnar. Í nótt var til­kynnt að Glitnir ætli að láta ríkið hafa allt hlutafé í Íslands­banka í tengslum við stöð­ug­leika­fram­lag sitt. Gangi þau áform eftir mun ríkið eiga tvo stóra við­skipta­banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann. Bjarni sagði við mbl.is í dag að það sé ekki fram­tíð­ar­lausn að ríkið eigi allt hlutafé í Íslands­banka og Lands­bank­anum. Því má búast við að ríkið muni selja Íslands­banka ef það eign­ast hann.

Kjarninn beindi þeirri spurn­ingu til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins hvort, og þá hvenær, ríkið ætl­aði sér að selja Íslands­banka. Í svari þess segir: "Tillögur hóps kröfu­hafa Glitnis hf. um stöð­ug­leika­fram­lag Glitnis til rík­is­ins í tengslum við heild­stæða áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta fela ekki í sér end­an­lega ákvörðun stjórn­valda. Af þeim sökum er ótíma­bært að svara nokkru efn­is­lega um til­lögur þær sem borist hafa stjórn­völdum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár