Bjarni Benediktsson: Gera ekki ráð fyrir því að ríkið eignist Arion banka

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gerir ekki ráð fyrir því að slita­stjórn Kaup­þings muni leggja til að ríkið eign­ist hlut hennar í Arion banka. Það sé heldur ekki fram­tíð­ar­lausn að ríkið eigi allt hlutafé í Íslands­banka og Lands­bank­anum. Þetta kemur fram á mbl.is.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi frá sér tilkynn­ingu klukkan 4:10 í nótt þar sem til­kynnt var að íslenska ríkið væri að fara að eign­ast annan banka, Íslands­banka, að öllu leyti. Fyrir á ríkið Lands­bank­ann. Eini stóri við­skipta­bank­inn sem verður ekki nán­ast að fullu í rík­i­s­eigu að loknu slita­ferli gömlu bank­anna verður því Arion banki. Þetta var nið­ur­staða funda sem ráð­gjafar stærstu kröfu­hafa Glitnis, núver­andi eig­anda 95 pró­sent hlutar í Íslands­banka, og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta áttu á tíma­bil­inu 25. sept­em­ber til 13. októ­ber vegna breyt­inga á stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­haf­anna.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um tíð­indi næt­ur­innar í frétta­skýr­ingu í morgun.

Ekki framtíðarlausn að ríkið eigi Íslandsbanka


Bjarni segir við mbl.is að til­laga kröfu­hafa Glitnis sé mjög jákvætt mál. Það sé ekki komið að því að ríkið taki við bank­anum, en ef það ger­ist munu ráða­menn taka sér góðan tíma til að fara yfir stöð­una. "Ég sé það ekki fyr­ir mér sem fram­tíð­ar­lausn að ríkið fari með allt eign­ar­hald bæði í Lands­bank­an­um og Íslands­banka. Það ligg­ur bein­ast við að vinda sér strax í áætlan­ir um það hvernig fram­tíðar­eign­ar­haldi verður háttað. Ég hef ekki áhyggj­ur af því þótt ríkið eigi veru­leg­an hlut í ein­hvern tíma, en mér finnst mik­il­vægt að við kynn­um áform um það hvernig ríkið hyggst losa um eign­ar­hlut sinn sem fyrst og við verðum að vanda vel til und­ir­bún­ings að því".

Eftir þær breyt­ingar sem kynntar voru í morgun telur fram­kvæmda­hópur um losun hafta að slitabú Glitnis sé að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda og því séu for­sendur fyrir und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum fyrir hendi. Og eftir þessa breyt­ingu er íslenska ríkið orðið eig­andi að tveimur af þremur stærstu bönkum lands­ins.

Ekki liggur fyrir um hversu mikið end­an­legt stöð­ug­leika­fram­lag mun hækka við þessa breyt­ingu. Það kemur ekki í ljós fyrr en ríkið selur Íslands­banka, ef það ákveður að gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár