InDefence gagnrýna stjórnvöld harðlega - Villandi framsetning á stöðugleikaframlagi

InDefence sam­tökin segja stjór­völd hafa beitt blekk­ingum þegar þau kynntu nið­ur­stöð­una sem snýr að stöð­ug­leika­fram­lagi slita­búa föllnu bank­anna, í sam­hengi við fram­kvæmd áætl­unar um losun hafta. Þetta kemur fram í umsögn InDefence um mat á und­an­þágu­beiðnum slita­búa.

Gert er ráð fyrir að slita­búin greiði 379 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag, en stjórn­völd hafa þó til­tekið fleiri atriði í sinni kynn­ingu á mál­inu, og meta fram­lagið á 856 millj­arða. Þetta telja InDefence sam­tökin vill­andi. „Þessi vandi bygg­ist á því að kröfu­höfum slita­bú­anna verður hleypt út úr höftum með allt að 500 millj­arða króna í erlendum gjald­eyri. Fyrir vikið sitja almenn­ingur, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóðir á Íslandi eftir með mikla efna­hags­lega áhættu og verða að treysta á bjart­sýna hag­vaxt­ar­spá Seðla­banka Íslands. Standist hún ekki, munu lífs­kjör á Íslandi skerð­ast og áfram­hald­andi fjár­magns­höft til margra ára. Það er óásætt­an­legt að fyr­ir­hug­aðar aðgerðir tryggi hags­muni kröfu­hafa, en skapi efna­hags­lega áhættu fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki á Íslandi,“ segir í umsögn InDefence.

Í umsögn­inni segir að stjórn­völd leggi rang­lega áherslu á meintar tekjur sem stöð­ug­leika­skil­yrðin skila þjóð­ar­bú­inu. „Samkvæmt kynn­ingu stjórn­valda skila stöð­ug­leika­skil­yrðin 856 millj­örðum króna til að takast á við eignir slita­bú­anna upp á 815 millj­arða sem ógna efna­hags­legum stöð­ug­leika á Ísland. Því miður er þetta afar vill­andi fram­setn­ing. Stjórn­völd leggja rang­lega áherslu á meintar tekjur sem stöð­ug­leika­skil­yrðin skila þjóð­ar­bú­inu,“ segir í umsögn­inni.

Þá er bent á það, að for­sendur Seðla­banka Íslands, fyrir veit­ingu und­an­þágu, séu bjart­sýnar og þá ekki síst hag­vaxt­ar­for­sendur. Gert sé ráð fyrir miklum hag­vexti næstu árin, langt umfram alþjóð­lega þróun. Að und­an­förnu hafi hag­vaxt­ar­spár erlendis verið end­ur­skoð­aðar niður á við, og það sé ein­kenni­legt ef Ísland muni standa alveg út úr miðað við þá þróun.

Umsögn InDefence.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár