COVID-19 leysir ekki loftslagsvanda en sýnir hvað hægt er að gera

Þó að sam­komu- og ferða­tak­mark­anir hafi orðið til þess að losun koltví­oxíðs hefur dreg­ist saman á heims­vísu í ár hefur það lítil sem engin áhrif á upp­söfnun loft­teg­und­ar­innar í loft­hjúpi jarðar. En það má margt læra af far­aldr­inum.

Fjallið Namsan í Seúl í Suður-Kóreu milli daga þar sem mengun í borginni er mikil og lítil.
Fjallið Namsan í Seúl í Suður-Kóreu milli daga þar sem mengun í borg­inni er mikil og lítil.

Aðgerðir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa haft lítil áhrif á magn koltví­oxíðs í and­rúms­loft­inu. Þó að losun koltví­oxíðs hafi minnkað umtals­vert í ár hefur það að mati vís­inda­manna við Alþjóð­legu veð­ur­stofn­un­ina (WMO) aðeins haft smá­vægi­leg áhrif á upp­söfnun loft­teg­und­ar­innar.

Gróð­ur­húsa­loft­teg­undir sem los­aðar eru, s.s. koltví­oxíð og metan, safn­ast upp í loft­hjúpi jarðar. Það hafa þær gert í gegnum ára­tug­ina og þó að losun drag­ist tíma­bundið saman hefur það lítið að segja.

Með Par­ís­ar­sátt­mál­anum skuld­bundu þjóðir heims sig til að draga úr losun þess­ara loft­teg­unda sem m.a. fara út í and­rúms­loftið með bruna jarð­efna­elds­neytis. Gróð­ur­húsa­loft­teg­undir gleypa varma­geislun frá jörðu og hita þannig yfir­borð hennar. Þessi gróð­ur­húsa­á­hrif valda hlýnun jarðar og ógna mat­væla­fram­leiðslu, hækka yfir­borð sjávar og ýta undir öfga­full veð­ur­fyr­ir­bæri á borð við hvirf­il­bylji, þurrka og flóð.

[adspot]

Magn koltví­oxíðs í and­rúms­loft­inu jókst meira á milli áranna 2017 og 2018 en að með­al­tali allan ára­tug­inn á undan. Í ár hefur losun loft­teg­und­ar­innar dreg­ist saman um 17 pró­sent frá síð­asta ári en vís­inda­menn telja að það muni hafa lítil áhrif á heild­ar­magn hennar í and­rúms­loft­inu og að sveiflan sé innan þeirra marka sem hún oft er frá nátt­úr­unnar hendi milli ára.

[links]Fram­kvæmda­stjóri Alþjóða veð­ur­stofn­un­ar­innar, Petteri Taalas, segir að áhrif sam­komu- og ferða­tak­mark­ana eru aðeins „lít­ill dep­ill“ á lofts­lagskúrf­unni til lengri tíma litið. „Við verðum að halda áfram að fletja hana út,“ segir hann, svo að árangur af sam­drætti í losun komi í ljós.

Veð­ur­stöðvar sem mæla magn koltví­oxíðs í and­rúms­loft­inu hafa margar hverjar sýnt að það hefur haldið áfram að aukast í ár þrátt fyrir tak­mark­anir á athöfnum manna í far­aldr­inum. Ein mik­il­væg­asta veð­ur­stöðin sem safnar slíkum gögnum er á Hawaii og sam­kvæmt henni er aukn­ingin í ár miðað við það síð­asta tölu­verð. Sömu sögu er að segja frá mæl­ingum stöðvar sem stað­sett er í Tasmaníu utan við Ástralíu. Magn ann­arra gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, s.s. met­ans, hefur einnig auk­ist.

Þrátt fyrir að aðgerðir í far­aldr­inum hafi ekki minnkað magn þess­ara gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, þar sem þær hafa langan líf­tíma í and­rúms­loft­inu, telur Taalas reynsl­una sem fékkst á fyrstu mán­uðum árs­ins skipta máli.

„Faraldur COVID-19 er ekki lausnin á lofts­lags­vand­anum,“ segir hann við BBC. Hins vegar hafi hann sýnt hvaða áhrif algjör breyt­ing á iðn­aði okkar, orku­nýt­ingu og sam­göngum getur haft og til hvaða metn­að­ar­fullu aðgerða þurfi að grípa til að draga úr los­un­inni. „Þær breyt­ingar sem þarf að ráð­ast í eru efna­hags­lega og tækni­lega mögu­legar og myndu aðeins hafa smá­vægi­leg áhrif á hvers­dags­líf okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár