Icelandair búið að ná samkomulagi við Boeing, og alla hina kröfuhafana

Icelandair Group er búið að ná sam­komu­lagi við alla kröfu­hafa sína. Félagið fær að falla frá kaupum á fjórum Boeing vélum sem það hafði skuld­bundið sig til að kaupa.

Icelandair Group er búið að und­ir­ritað samn­inga við alla kröfu­hafa sína og er auk þess búið að ná end­an­legu sam­komu­lagi við banda­ríska flug­véla­fram­leið­and­ann Boeing vegna kyrr­setn­ingar MAX flug­véla. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sem send var út í kvöld.

Félagið til­kynnti fyrir nokkru að búið væri að semja við flesta kröfu­hafa og að þeir sem væru eftir myndu klár­ast í síð­ustu viku. Nú liggur fyrir að því mark­miði er náð, en það var for­senda þess að Icelandair gæti ráð­ist í hluta­fjár­út­boð síðar í þessum mán­uði.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni segir að efn­is­at­riði sam­komu­lags­ins við Boeing sé trún­að­ar­mál en það feli í meg­in­dráttum í sér að félagið fellur frá kaupum á fjórum vélum og áætlun um afhend­ingu sex MAX véla sem eru útistand­andi hefur verið breytt. „Gert er ráð fyrir að þær verði nú afhentar á tíma­bil­inu frá öðrum árs­fjórð­ungi 2021 fram til fyrsta árs­fjórð­ungs 2022. Þá felur sam­komu­lagið í sér frek­ari bætur fyrir stóran hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna og verða þær greiddar út að mestu fyrir lok ann­ars árs­fjórð­ungs 2021. Sam­komu­lagið styrkir lausa­fjár­stöðu Icelandair Group og stuðlar að auknum sveigj­an­leika þegar kemur að skipu­lagi flota­mála á næstu árum.“

[links]Til við­bótar við sam­komu­lagið við Boeing hefur félagið náð sam­komu­lagi við kröfu­hafa um skil­mála­breyt­ingar. Samn­ingar við kröfu­hafa taka mið af því að laga afborg­anir að væntu sjóð­streymi frá rekstri. Þeir eru háðir því að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár og geri samn­ing um lána­línu með rík­is­á­byrgð, sem unnið er að slíkum samn­ingi með aðkomu rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans.

Í til­kynn­ing­unni segir að við­ræður við stjórn­völd um útfærslu lána­lín­unnar séu langt komnar. Félagið gerir ráð fyrir að birta fjár­festa­kynn­ingu með ítar­legum upp­lýs­ingum fyrir fjár­festa og þátt­tak­endur í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði og tíma­línu á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár