Varaseðlabankastjóri hefur áhyggjur af skuldsetningu heimila á breytilegum vöxtum

Íslensk heim­ili hafa flykkst í tökur á óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum á breyti­legum vöxtum síð­ustu mán­uði, eftir skarpar vaxta­lækk­anir. Seðla­bank­inn hefur áhyggjur af því hvað ger­ist þegar vextir hækka að nýju.

Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri.
Rannveig Sig­urð­ar­dóttir vara­seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

„Það sem maður hefur áhyggjur af, bæði út frá pen­inga­stefn­unni og fjár­mála­stöð­ug­leika, er að heim­ilin séu að skuld­setja sig of mikið á breyti­legum vöxtum. Vonandi verðum við ekki með svona lága vexti til fram­tíðar. Það er kannski það sem maður hefur mestar áhyggjur af í dag varð­andi miðl­un­ina til heim­ila.“

Þetta sagði Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­mála í Seðla­banka Íslands, á blaða­manna­fundi sem hald­inn var á mið­viku­dag í til­efni af nýlegri stýri­vaxta­á­kvörðun.

Þar vís­aði Rannveig til þess að gríð­ar­leg aukn­ing hefur orðið á töku óverð­tryggðra hús­næð­is­lána á breyti­legum vöxtum síð­ustu mán­uði, eftir að Seðla­bank­inn lækk­aði stýri­vexti sína í eitt pró­sent.

Stýrivextir aldrei verið lægri

Stýri­vextir, sem stýra því hver vaxta­kjör eru á hús­næð­is­lánum, hafa lækkað hratt á Íslandi und­an­farið rúmt ár til að bregð­ast fyrst við ætl­aðri mjúkri lend­ingu efna­hags­kerf­is­ins en síðan miklum sam­drætti vegna áhrifa af heims­far­aldri COVID-19. Alls hafa stýri­vextir lækkað um 3,75 pró­sent frá því í maí 2019 og eru í dag eitt pró­sent. Þeir hafa aldrei verið jafn lágir á Íslandi.

Vaxta­lækk­anir Seðla­bank­ans eru til þess fallnar að örva eft­ir­spurn í hag­kerf­inu við þær erf­iðu aðstæður sem eru þar uppi nú. Lægri vextir gera það ódýr­ara að fá pen­inga lán­aða og það hjálpar til við að halda hjólum atvinnu­lífs­ins gang­andi á meðan að far­ald­ur­inn stendur yfir.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sagði á fund­inum á mið­viku­dag að það hefði gengið mjög vel að miðla vaxta­lækk­unum bank­ans til heim­ila. Viðbrögð þeirra við hvata til frek­ari lán­töku á skap­legri kjörum hefði verið meiri en bank­inn átti von á. Það ýti undir einka­neyslu. „Það hefur verið framar vonum.“

[adspot]Verr hafi hins vegar gengið að miðla vaxta­lækk­unum til fyr­ir­tækja af ýmsum ástæðum og Seðla­bank­inn er að skoða leiðir til að bæta úr því.

Eðlisbreyting á lánamarkaði

Skýrasta birt­ing­ar­mynd þess að þessi miðlun vaxta­lækk­ana til heim­ila hefur gengið vel er sú að óverð­tryggðir hús­næð­is­vextir sem við­skipta­bank­arnir bjóða upp á urðu skyndi­lega mun hag­stæð­ari en þorri þeirra lána­kjara sem líf­eyr­is­sjóðir bjóða sjóðs­fé­lögum sínum upp á.

Sá við­snún­ingur hófst í maí og felur í sér eðl­is­breyt­ingu á hús­næð­is­mark­aði, en líf­eyr­is­sjóð­irnir höfðu sam­fellt boðið upp á mun betri kjör frá haustinu 2015 og lán­tak­endur sam­hliða flykkst til þeirra.

Breyti­legir óverð­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum Lands­bank­ans og Íslands­banka eru nú til að mynda 3,5 pró­sent. Á sam­­bæri­­legum lánum hjá Arion banka verða vext­irnir 3,54 pró­­sent. Einu lánin í þessum flokki sem bera lægri vexti eru, eins og áður seg­ir, hjá Birtu líf­eyr­is­­sjóði. Lán með breyt­i­­legum óverð­­tryggðum vöxtum hjá Birtu eru 2,10 pró­­sent.

Umsvifaminnsti mánuður sjóða frá 2008

Þessi staða hefur skilað áfram­hald­andi hækk­unum á hús­næð­is­verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þrátt fyrir að heims­far­aldur geisi. Í júní­mán­uði juk­ust hrein ný hús­næð­is­lán til heim­ila um 23 pró­sent að raun­virði. Þar af voru ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum 31 millj­arður króna, að frá­dregnum upp­greiðslum.

Þessi aukn­ing átti sér stað milli maí og júní þrátt fyrir að maí­mán­uður hafi verið næst stærsti útlána­mán­uður bank­anna hingað til. Ef júní 2020 er borið saman við sama mánuð í fyrra juk­ust útlán um 207 pró­sent milli ára, sam­kvæmt því sem fram kemur í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS).

Júní­mán­uður var á sama tíma sá umsvifa­minnsti hjá líf­eyr­is­sjóðum í útlánum til sjóðs­fé­laga frá árinu 2008.

Hærri vextir=hærri afborganir

Eitt helsta mark­mið Seðla­banka Íslands er stöðugt verð­lag. Frá 2001 hefur verð­bólgu­mark­mið hans verið 2,5 pró­sent og víki verð­bólga í 1,5 pró­sent í hvora átt frá því ber Seðla­bank­anum að gera rík­is­stjórn Íslands opin­ber­lega grein fyrir ástæðum þess og leita úrbóta.

Helsta tækið sem Seðla­bank­inn hefur til að takast á við vax­andi verð­bólgu eru hækkun á stýri­vöxtum. Ef aðstæður skap­ast þar sem bank­inn telur sig þurfa að hækka vexti þá mun það fljótt hafa áhrif á breyti­lega vexti hús­næð­is­lána til hækk­unar.

Þá kemur í ljós hvort að sá stóri hópur lán­tak­enda sem hefur fært sig í slíkt lána­form á síð­ustu vikum og mán­uðum muni ráða við þær sveiflur sem fylgja því ef afborg­anir af lán­inu hækka hratt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár