Mynd: 123rf.com

Forstjórar í Kauphöll voru með 4,7 milljónir á mánuði að meðaltali

Í Kauphöll Íslands ráða 20 karlar 20 félögum. Með­al­laun þeirra í fyrra voru rúm­lega sjö sinnum hærri en mið­gildi heild­ar­launa lands­manna á árinu 2018.

Það voru vend­ingar í Kauphöll Íslands í fyrra. Alls skiptu átta af þeim 20 félögum sem skráð eru á aðal­l­ista hennar um mann í brúnni á árinu 2019. Í öll skiptin tók karl­maður við starf­inu af karl­manni, enda eru allir for­stjórar skráðra félaga á Íslandi karl­menn. Þannig hefur staðan verið frá því í ágúst 2016.

Síðasta ár var heilt yfir gott í Kaup­höll­inni. Tvö ný félög, Kvika banki og Iceland Seafood, bætt­ust á aðal­l­ist­ann, heild­ar­við­skipti voru sam­tals 612 millj­arðar króna sem var veltu­aukn­ing upp á 21,3 pró­sent frá árinu 2018. Mark­aðsvirði allra skráðra hluta­bréfa, líka í þeim fjórum félögum sem skráð eru á First North mark­að­inn, var 1.251 millj­arðar króna í árs­lok 2018. Úrvals­vísi­talan, sem er sam­an­sett úr gengi þeirra tíu félaga sem hafa mestan selj­an­leika, hækk­aði um 31,4 pró­sent.

Bréf alls 13 félaga hækk­uðu á árinu og bréf í tveimur til við­bót­ar lækk­uðu undir eitt pró­sent. Þau félög sem fóru verst út úr árinu og lækk­uðu umtals­vert voru Hagar (um 6,0 pró­sent), Sýn (um 16,3 pró­sent), Eim­skip (um 16,9 pró­sent) og Icelandair Group, sem lækk­aði mest allra eða um 21,2 pró­sent.

Þessi staða hefur breyst hratt í ár. Einungis tvö félög hækk­uðu í verði á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020. Annað er smá­söluris­inn Hagar. Hitt er leigu­fé­lagið Heima­vellir, sem er í yfir­töku­ferli. Öll önnur félög hafa lækkað í verði. Tvö, Arion banki og Eimskip, hafa misst rúm­lega þriðj­ung af mark­aðsvirði sínu og eitt, Icelandair, hefur rúm­lega helm­ing­ast í verði.

Svipað meðaltal og í fyrra

Meðaltal launa for­stjóra í Kaup­höll­inni lækk­uðu lít­il­lega milli áranna 2018 og 2019. Þau voru 4,8 millj­ónir króna árið 2018 en 4,7 millj­ónir króna í fyrra, sam­kvæmt sam­an­tekt Kjarnans á upp­lýs­ingum um launa­greiðslur úr árs­reikn­ingum allra félag­anna 20. Árið 2017 voru þau líka 4,7 millj­ónir króna þannig að með­al­launin hafa hald­ist nokkuð jöfn síð­ast­lið­inn þrjú ár. Til sam­an­burðar má nefna að mið­gildi heild­ar­launa á Íslandi var 632 þús­und krónur árið 2018. Það þýðir að helm­ingur þjóð­ar­innar var með laun undir þeirri tölu á mán­uði. Með­al­laun for­stjór­anna eru því næstum 7,5föld mið­gild­is­launin.

Lang­hæstu launin hafði Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel, en mán­að­ar­laun hans voru 12,3 millj­ónir króna í fyrra. Það er 2,5 millj­ónum krónum meira en hann hafði á mán­uði árið áður. Marel hækk­aði lang­mest allra félaga á árinu 2019, eða um 65,9 pró­sent. Mark­aðsvirði félags­ins í lok árs var 473,4 millj­arðar króna. Ekk­ert annað félag í Kaup­höll­inni kemst nálægt því að vera svo verð­mætt.

Í öðru sæti eru for­stjórar smá­sölurisanna sem skráð eru á markað, Eggert Þór Krist­ó­fers­son hjá Festi og Finnur Árnason hjá Högum. Þeim voru báðir með 6,1 milljón krónur á mán­uði í laun. Vert er að taka fram að launa­kjör Finns eru fyrir rekstr­ar­árið 2018/2019, en Hagar eru með ann­ars konar upp­gjörsár en önnur félög. Það hefst 1. mars, ekki 1. febr­úar. Bæði Eggert og Finnur voru með 6,1 milljón krónur í mán­að­ar­laun á síð­ustu heilu birtu rekstr­ar­árum félag­anna sem þeir stýra. Festi rekur meðal ann­ars bens­ín­stöðvanet N1 og Krónuna á meðan að Hagar reka meðal ann­ars Olís-stöðv­arnar og Bónus-versl­an­irnar.

Heild­ar­laun Eggerts hækk­uðu um eina milljón króna milli ára og inni­halda reglu­leg laun, hlunn­indi og árang­urstengd laun. Laun og hlunn­indi Eggerts stóðu nán­ast í stað milli ára en árang­urstengd laun hækk­uðu um tólf millj­ónir króna milli ára. Laun Finns hækk­uðu um 200 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali.

Hinir sem hækkuðu

Laun Garðar Hannesar Frið­jóns­sonar, for­stjóra Eikar fast­eigna­fé­lags­ins hækk­uðu úr rúm­lega 3,1 millj­ónum króna að með­al­tali á mán­uði 2018 í 3,6 millj­ónir króna í fyrra. Þá hækk­uðu laun Helga Bjarna­sonar, sem stýrir VÍS, úr 4,4 millj­ónum króna í tæp­lega 5,3 millj­ónir króna milli ára.

Finnur Oddsson sem stýrir Origo fékk líka væna launa­hækkun, en með­al­laun hans á mán­uði fóru úr fjórum millj­ónum króna árið 2018 í 5,1 milljón króna í fyrra. Það er launa­hækkun upp á 27,5 pró­sent.

Þá er Marinó Örn Tryggva­son, sem tók við starfi banka­stjóra Kviku banka í byrjun júní í fyrra, með umtals­vert hærri með­al­laun á mán­uði en fyr­ir­renn­ari hans Ármann Þor­valds­son, sem ákvað að færa sig til innan bank­ans og sinna öðrum störum sem fælu ekki í sér jafn miklar stjórn­un­ar­legar skyldur í fyrra­sumar. Ármann hafði verið með 3,5 millj­ónir króna á mán­uði en með­al­laun Marinós voru 4,4 millj­ónir króna á mán­uði, eða 26 pró­sent hærri.

Þrátt fyrir að gengi Sýnar hafi ekki verið sér­stakt um langt skeið, og mark­aðsvirði félags­ins ein­ungis um níu millj­arðar króna, þá eru laun Heiðars Guð­jóns­sonar, sem tók við for­stjóra­starf­inu í apríl í fyrra, hærri en fyr­ir­renn­ara hans. Árið 2018 hafði Stefán Sig­urðs­son 3,8 millj­ónir króna að með­al­tali í laun en með­al­laun Heiðars í fyrra voru 4,4 millj­ónir króna á mán­uði.

Bankastjóralaunin lækkuðu umtalsvert

For­stjóra­launin lækka sums staðar veru­lega milli ára. Þannig var Hösk­uldur Ólafsson með 6,2 millj­ónir króna í laun á mán­uði fyrir að gegna starfi banka­stjóra Arion banka árið 2018. Hann lauk störfum fyrir bank­ann snemma árs í fyrra og Benedikt Gíslason tók við starf­inu í byrjun júlí. Mán­að­ar­laun hans voru 4,7 millj­ónir króna á síð­asta ári. eða 76 pró­sent af því sem Hösk­uldur hafði.

Þess má þó geta að Ásgeir H. Reyk­fjörð Gylfason, sem var ráð­inn aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka í fyrra og hóf störf 5. sept­em­ber, var að með­al­tali með hærri laun en banka­stjór­inn, en alls fékk hann greiddar 22,5 millj­ónir króna í fyrra fyrir tæp­lega fjög­urra mán­aða störf. Það þýðir að með­al­laun hans á mán­uði voru um 5,6 millj­ónir króna. Vert er að taka fram að Ásgeir starf­aði líka sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­inga­banka­sviðs Arion banka frá 26. sept­em­ber sam­hliða aðstoð­ar­banka­stjóra­stöð­unni.

For­stjóra­launin hjá Eimskip lækk­uðu enn meira á milli ára. Gylfi Sig­fús­son, sem var sagt upp síðla árs 2018, hafði verið með 6,5 millj­ónir krónur á mán­uði í laun. Vilhelm Már Þor­steins­son, sem tók við starfi hans í lok jan­úar 2019, var hins vegar með 3,9 millj­ónir króna á mán­uði, eða 60 pró­sent af því sem Gylfi hafði fengið greitt.

Laun for­stjóra Icelandair hafa líka lækkað umtals­vert. Björgólfur Jóhanns­son hafði verið með 5,7 millj­ónir króna á mán­uði, en hann hætti í lok ágúst 2018. Bogi Nils Bogason, sem var ráð­inn form­lega sem eft­ir­maður hans í des­em­ber 2018, var með 4,6 millj­ónir króna í fyrra. Þann fyr­ir­vara verður þó að setja á laun for­stjóra Icelandair að þau inni­halda líka við­bót­ar­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði, en hjá flestum öðrum for­stjórum í Kaup­höll­inni bæt­ast slíkar greiðslur við launin. Bogi sam­þykkti auk þess í síð­asta mán­uði að lækka laun sín um 30 pró­sent vegna þess ástands sem nú ríkir vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Frá því var greint á sama tíma og Icelandair sagði upp 240 manns og setti 92 pró­sent eft­ir­stand­andi starfs­manna á hluta­bætur.

Laun for­stjóra Skelj­ungs lækk­uðu líka milli ára. Hendrik Egholm, sem hætti í júlí 2019, hafði verið með 4,8 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun árið 2018 en Árni Pétur Jónsson, sem tók við for­stjóra­stöð­unni um miðjan ágúst í fyrra, fær 3,8 millj­ónir króna á mán­uði.

Þeir sem stóðu nokkurn veginn í stað

Lægstu laun allra for­stjóra í Kaup­höll­inni er hjá Heima­völlum, sem nú eru í miðju yfir­tökutil­boði. Guð­brandur Sig­urðs­son var með 2,9 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun á árinu 2018 en hann hætti störfum 1. apríl í fyrra. Við tók Arnar Gauti Reyn­is­son og var hann með sömu mán­að­ar­laun á síð­asta ári. Hann er eini for­stjór­inn í Kauphöll Íslands sem var með undir þremur millj­ónum króna á mán­uði í laun. Sá sem er honum næstur er Bjarni Ármanns­son, for­stjóri Iceland Seafood, sem var með 3,2 millj­ónir króna á mán­uði á árinu 2019.

Hermann Björns­son, for­stjóri Sjóvá, fór úr því að vera með um 4,1 milljón króna á mán­uði í að vera með 4,2 millj­ónir króna og Orri Hauksson, for­stjóri Símans, hækk­aði um sam­tals 200 þús­und krónur á árs­grund­velli í launum og er með 4,6 millj­ónir króna í laun og hlunn­indi.

Guð­mundur Krist­jáns­son var með um 3,8 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra fyrir að vera for­stjóri Brim. Hann er líka stærsti eig­andi og stjórn­ar­maður í félag­inu.

Guðjón Auð­uns­son, for­stjóri Reita, fór úr 3,5 millj­ónum í 3,3 millj­ónir króna milli ára og Helgi S. Gunn­ars­son, for­stjóri Regins, stóð nán­ast í stað með 3,4 millj­ónir króna á mán­uði.

Laun Sigurðar Við­ars­sonar, for­stjóra TM, lækk­uðu úr 4,6 millj­ónum króna í 4,3 millj­ónum króna á mán­uði í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár