Mynd: Samsett

Laun bankastjóranna á bilinu 3,6 til 4,7 milljónir króna á mánuði

Banka­stjórar rík­is­bank­anna tveggja eru með mán­að­ar­laun sem eru í kringum fjórar millj­ónir króna á mán­uði. Banka­stjóri Arion banka er með enn hærri laun og aðstoð­ar­banka­stjór­inn hans toppar alla æðstu stjórn­end­urna.

Fyrir ári síðan lék allt á reiði­skjálfi í sam­fé­lag­inu vegna launa banka­stjóra rík­is­bank­anna tveggja, og launa­hækk­ana ann­arra rík­is­for­stjóra sem fjöl­miðlar höfðu opin­berað. Á þeim tíma stóð yfir harð­vítug kjara­bar­átta þar sem ný og her­ská for­ysta stærstu stétt­ar­fé­laga lands­ins krafð­ist kjara­bóta fyrir sitt fólk sem ráða­menn og atvinnu­lífið töldu úr öllum takti við stöðu efna­hags­lífs­ins á þeim tíma. 

Miklar launa­hækk­anir, oft um tugi pró­senta, til ýmissa for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja og emb­ætt­is­manna vegna ákvarð­ana Kjara­ráðs hleyptu mjög illu blóði í kjara­deil­urnar. For­ystu­menn stétt­ar­fé­lag­anna bentu á að það virt­ist sem svo að það mætti „leið­rétta“ laun þeirra sem væru með hæstu launin um tugi pró­senta en að það þætti stór­skað­legt að gera slíkt fyrir þá sem áttu í vand­ræðum með að ná endum saman.

Mesti hit­inn var í kringum launa­kjör banka­stjóra rík­is­bank­anna tveggja, Íslands­banka og Lands­bank­ans en him­inhá laun þáver­andi banka­stjóra Arion banka voru líka ítrekað dregin inn í umræð­una.

Með­al­mað­ur­inn á íslenskum vinnu­mark­aði vann sér inn um 21 þús­und krónur á mán­uði miðað við mið­gildi heild­ar­launa á árinu 2018. Það tók hann 224 daga að vinna sér mán­að­ar­laun banka­stjóra Arion banka, 202 daga að vinna sér inn mán­að­ar­laun banka­stjóra Íslands­banka og 171 dag að vinna sér inn mán­að­ar­laun banka­stjóra Lands­bank­ans. Þótt laun banka­stjóra allra bank­anna þriggja hafi lækkað á síð­asta ári í sam­an­burði við árið áður eru þau enn mjög há. Banka­stjóri ann­ars rík­is­bank­ans er til að mynda með rúm­lega 70 pró­sent hærri laun en hún var með þegar hún var ráðin og hin rík­is­banka­stjór­inn er með rúm­lega tvisvar sinnum þau laun sem kjara­ráð ákvað að hún ætti að vera með á árinu 2017.

Lækkaði lítillega að meðaltali á milli ára

Íslands­banki var að mestu í eigu kröfu­hafa Glitnis fyrstu árin eftir hrun. Í stöð­ug­leika­samn­ing­unum sem gerðir voru árið 2015 var hins vegar samið um að eign­ar­hald hans myndi fær­ast til íslenska rík­is­ins. Það gerð­ist svo form­lega í upp­hafi árs 2016. Við það færð­ist ákvörðun um laun Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, frá stjórn bank­ans og til kjara­ráðs.

Birna hafði verið með 4,2 millj­ónir króna á mán­uði árið 2015 í laun og frammi­stöðu­tengdar greiðslur og því ljóst að hún gat búist við kjara­rýrnun. Þegar árs­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2016 var birtur kom hins vegar í ljós að laun hennar juk­ust milli ára og voru 4,85 millj­ónir króna. Raunar úrskurð­aði kjara­ráð ekki um laun Birnu fyrr en snemma árs 2017, þegar búið var að taka ákvörðun um að færa ákvörðun um laun hennar frá kjara­ráði, en áður en sú ákvörðun tók gildi. Samkvæmt þeim úrskurði áttu laun Birnu að vera tvær millj­ónir króna á mán­uði.

Miklar kjaradeilur hafa staðið yfir á Íslandi undanfarin misseri. Á meðal þess sem gagnrýnt er eru miklar launaleiðréttingar stjórnenda innan ríkisfyrirtækja sem eru fyrir með há laun á íslenskan mælikvarða.
Miklar kjara­deilur hafa staðið yfir á Íslandi und­an­farin miss­eri. Á meðal þess sem gagn­rýnt er eru miklar launa­leið­rétt­ingar stjórn­enda innan rík­is­fyr­ir­tækja sem eru fyrir með há laun á íslenskan mæli­kvarða.

Stjórn bank­ans taldi sig ekki þurfa að fram­fylgja þeim úrskurði þar sem Birna væri með tólf mán­aða upp­sagn­ar­frest sem næði langt fram yfir þann tíma sem ákvörð­un­ar­vald yfir launum hennar færð­ist aftur til stjórnar Íslands­banka. Þegar árs­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2017 var birtur kom í ljós að Birna var með 4,8 millj­ónir króna í laun að með­al­tali það árið.

Til við­bótar fékk hún eina milljón króna á mán­uði í mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóð. Á árinu 2018 voru laun hennar 5,3 millj­ónir króna en hún óskaði sjálf eftir því að lækka laun sín seint á því ári. Í fyrra voru laun hennar 4,2 millj­ónir króna að með­al­tali auk þess sem hún fékk áfram eina milljón króna á mán­uði í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð. Til sam­an­burðar getur lands­maður sem er með með­al­tal heild­ar­launa búist við því að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda hans í líf­eyr­is­sjóð sé í kringum 80 þús­und krónur á mán­uði. Það tekur því með­al­mann­inn því um 149 mán­uði að safna saman sama mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð og Birna fær greitt árlega frá rík­is­banka.

Friðrik Soph­us­son, stjórn­ar­for­maður Íslands­banka, sem verður 77 ára síðar á þessu ári og hefur því verið á eft­ir­launa­aldri í að minnsta kosti ára­tug, fékk að með­al­tali 940 þús­und krónur greiddar í laun fyrir stjórn­ar­setu á síð­asta ári.

Með yfir 70 prósent hærri laun en við ráðningu

Banka­stjóri Lands­bank­ans, Lilja Björk Ein­ars­dóttir, var með tæp­lega 2,1 milljón króna í laun á mán­uði þegar hún var ráðin í starfið, en hún hóf störf 15. mars 2017.

Laun hennar voru skömmu síðar, eða um mitt ár 2017, hækkuð í 3,25 millj­ónir króna og á árinu 2018 upp í 3,8 millj­ónir króna. Laun Lilju höfðu því hækkað um 82 pró­sent.

Bankaráð Lands­bank­ans sagði í bréfi sem það sendi ráð­herra að launin hefðu verið hækkuð svona mikið vegna þess að þau hefðu dreg­ist „langt aftur úr þeim launum sem greidd voru fyrir sam­­bæri­­leg störf“ á árunum 2009 til 2017. Þetta hefði gert það að verkum að laun banka­­stjór­ans hafi ekki verið sam­keppn­is­hæf og ekki í sam­ræmi við starfs­kjara­­stefnu bank­ans. Þá taldi banka­ráðið sig hafa sýnt bæði hóf­­semi og var­kárni þegar samið var um að hækka laun banka­­stjór­ans.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, brást við bréfum frá stjórnum rík­is­bank­ana í fyrra, þar sem þær vörðu launa­hækk­anir æðstu stjórn­enda, með því að senda bréf til Banka­sýslu rík­is­ins þar sem hann óskaði eftir því að hún komi því með afdrátt­ar­lausum hætti á fram­færi við stjórnir rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans að „ráðu­neytið telji að bregð­ast eigi við þeirri stöðu sem upp er komin með taf­ar­lausri end­ur­skoðun launa­á­kvarð­ana og und­ir­bún­ingi að breyt­ingum á starfs­kjara­stefn­um, sem lagðar verði fram á kom­andi aðal­fundum bank­anna.“

Laun Lilju Bjarkar voru um 3,6 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði í fyrra. Það er um 200 þús­und krónum lægri laun en hún var með að með­al­tali 2018 en 71 pró­sent hærri laun en Lilja Björk hafði þegar hún var ráðin í starfið 2017. Auk þess fékk hún 683 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði í líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur frá Lands­bank­anum. Til sam­an­burðar getur lands­maður sem er með með­al­tal heild­ar­launa búist við því að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda hans í líf­eyr­is­sjóð sé í kringum 80 þús­und krónur á mán­uði. Það tekur því með­al­mann­inn því um 103 mán­uði að safna saman sama mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð og Birna fær greitt árlega frá rík­is­banka.

Helga Björk Eiríks­dóttir, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, var með 11,7 millj­ónir króna í laun og hlunn­indi frá bank­anum í fyrra fyrir stjórn­ar­setu, eða 975 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Hún fékk auk þess 1,4 millj­ónir króna í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð.

Hæstu launin í Arion banka

Hæst laun­aði banka­stjóri lands­ins er Benedikt Gíslason, sem stýrir Arion banka, eina stóra bank­ans á land­inu sem er í einka­eigu. Arion banki er einnig sá banki sem skil­aði lök­ustu afkomu þriggja stærstu bank­anna á síð­asta ári.

Á þeim sex mán­uðum sem hann sat í stóli banka­stjóra í fyrra þáði hann að með­al­tali 4,7 millj­ónir króna á mán­uði í laun. Laun hans eru umtals­vert lægri en laun Hösk­uldar H. Ólafs­sonar, fyr­ir­renn­ara hans í starfi, voru undir lok starfs­tíma hans. Á árinu 2018 var Hösk­uldur með 6,2 millj­ónir króna að með­al­tali í laun. Til­kynnt var um það í apríl í fyrra að Hösk­uldur hefði sagt starfi sínu hjá Arion banka lausu. Starfs­lok hans kost­uðu Arion banka 150 millj­ónir króna, en sú greiðsla sam­an­stóð ann­­ars vegar af upp­­sagn­­ar­fresti og hins vegar samn­ingi um starfs­­lok.

Höskuldur H. Ólafsson, sem er hér til hægri á myndinni að hringja bjöllunni í Kauphöllinni þegar Arion banki var skráður á markað sumarið 2018, yfirgaf bankann í apríllok í fyrra. Mynd: Nasdaq OMX Iceland
Hösk­uldur H. Ólafsson, sem er hér til hægri á mynd­inni að hringja bjöll­unni í Kaup­höll­inni þegar Arion banki var skráður á markað sum­arið 2018, yfir­gaf bank­ann í apr­íl­lok í fyrra. Mynd: Nasdaq OMX Iceland

Benedikt fékk þó ágæt­lega greitt á öðrum vett­vangi í fyrra. Kjarninn greindi frá því í októ­ber í fyrra að Stjórn Kaup­þings, sem taldi fjóra til fimm ein­stak­linga, hafi 1,2 millj­arð króna í laun á árinu 2018. Bene­dikt Gísla­son hætti í stjórn­inni í ágúst 2018 og tók þess í stað sæti í stjórn Arion banka, sem þá var að að stóru leyti enn í eigu Kaup­þings. Bene­dikt var svo ráð­inn banka­stjóri Arion banka í fyrra­sum­ar. Því verður að gera ráð fyrir að greiðslur til Bene­dikts fram að þeim tíma sem hann hætti hjá Kaup­þingi telj­ist með í heild­ar­upp­hæð launa­greiðslna til stjórn­ar.

Ásgeir H. Reyk­fjörð Gylfason var ráð­inn aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka í fyrra og hóf störf 5. sept­em­ber. Hann starf­aði auk þess sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­inga­banka­sviðs frá 26. sept­em­ber. Laun Ásgeirs voru að með­al­tali hærri en laun banka­stjór­ans, en alls fékk hann greiddar 22,5 millj­ónir króna í fyrra fyrir tæp­lega fjög­urra mán­aða störf. Það þýðir að með­al­laun hans á mán­uði voru um 5,6 millj­ónir króna.

Stefán Pét­urs­son, fjár­mála­stjóri Arion banka, er líka með ágætis laun, eða um fjórar millj­ónir króna á mán­uði.

Mót­fram­lag Arion banka í líf­eyr­is­sjóð stjórn­enda hans er ekki til­greint í árs­reikn­ingi.

Brynjólfur Bjarna­son var kjör­inn stjórn­ar­for­maður Arion banka í mars í fyrra. Hann fékk sam­tals greitt 16,3 millj­ónir króna í laun á síð­asta ári. Þar er um sam­tölu þess að fá greitt fyrir stjórn­ar­setu og greiðslur fyrir setu í nefndum á vegum stjórnar. Alls voru laun Brynj­ólfs, sem er 74 ára gam­all og hefur því verið á eft­ir­launa­aldri í nokkur ár, tæp­lega 1,3 millj­ónir á mán­uði að með­al­tali.

Á aðal­fundi Arion banka 2019 var sam­þykkt að stjórn­ar­menn með búsetu utan Íslands myndu fá tvö­föld laun stjórn­ar­manna sem búsettir eru á Íslandi. Á árinu 2019 fékk stjórn­ar­mað­ur­inn Steinunn Kristín Þórð­ar­dóttir, sem búsett er erlendis, því aft­ur­virka leið­rétt­ingu vegna þessa ákvæðis. Hún fékk alls 22,1 millj­ónir króna greiddar í stjórn­ar­laun í fyrra. Það þýðir að, að teknu til­liti til hinnar aft­ur­virku leið­rétt­ingar, að hún var með 1,8 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár