Það dropar á glerþakið milli kvenna og peninga en fáar sprungur myndast

Sjöunda árið í röð fram­kvæmdi Kjarninn úttekt á því hver kynja­hlut­föll séu á meðal þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi. Þrátt fyrir miklar hrær­ingar, þar sem meðal ann­ars var skipt um for­stjóra hjá átta skráðum félögum, er nið­ur­staðan sú sama og áður.

Í sept­em­ber 2013 tóku að fullu gildi lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi. Upp­haf­lega voru lögin sam­þykkt 2010. Frum­varpið var þá sam­þykkt með atkvæðum 32 þing­manna úr öllum flokkum sem sæti áttu á þingi nema Sjálf­stæð­is­flokki. Ellefu þing­menn greiddu ekki atkvæði.

Samkvæmt lög­unum ber fyr­ir­tækjum með 50 eða fleiri starfs­menn að tryggja að hlut­fall hvors kyns í stjórnum sé ekki undir 40 pró­sentum.

Það var ekki að ástæðu­lausu að ráð­ist var í slíka laga­setn­ingu. Árið 2007 var hlut­fall kvenna í stjórnum slíkra fyr­ir­tækja 12,7 pró­sent.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu, sem þáver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra lagði fram, sagði að mark­mið þess værið að stuðla að jafn­ari hlut­föllum kvenna og karla í áhrifa­stöðum í hluta­fé­lögum og einka­hluta­fé­lögum með auknu gagn­sæi og greið­ari aðgangi að upp­lýs­ingum“.

Það mark­mið hefur aldrei náðst.

Sjö úttektir en litlar breytingar

Fyrst ber að nefna að hlut­fall kvenna í stjórnum stórra fyr­ir­tækja á Íslandi hefur aldrei náð því að verða 40 pró­sent. Í árs­lok 2017 var það 32,6 pró­sent. Síðla árs 2018 birti Félag kvenna í atvinnu­rekstri nið­ur­stöðu grein­ingar sem Deloitte vann fyrir það sem sýndi að hlut­fall kvenna í fram­kvæmda­stjórnum 100 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins var ein­ungis 26 pró­sent. Konur voru tíu pró­sent for­stjóra og 19 pró­sent stjórn­ar­for­manna.

Sam­an­dregið þá benda allar tölur til þess að lög­gjöfin um kynja­kvóta í stjórnum hafi hvorki skilað því að 40 pró­sent stjórn­ar­manna í stórum fyr­ir­tækjum séu konur né að það skili sér í því að mun fleiri konur séu ráðnar til að stýra fjár­magni á Íslandi.

Litlar breytingar á sjö árum

Kjarninn hefur fram­kvæmt úttekt á því hvers kyns þeir sem stýra fjár­magni á Íslandi eru árlega frá 2014. Úttektin nú er því sú sjö­unda sem fram­kvæmd hefur verið.

Í ár nær hún til 96 æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, raf­eyr­is­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða.

Nið­ur­staðan nú er sú að 83 þeirra eru karlar en þrettán eru konur. Konum fjölgar um þrjár á milli ára en körlum um fjóra, vegna ýmissa breyt­inga sem orðið hafa á eft­ir­lits­skyldum aðilum á árinu. Hlutfall kvenna á meðal helstu stjórn­enda fjár­magns á Íslandi fer með því úr 11,1 pró­sent í 13,5 pró­sent milli áranna 2019 og 2020.

Þessi hópur sem fellur undir úttekt­ar­skil­yrðin stýrir sam­tals þús­undum millj­arða króna og velur í hvaða fjár­fest­ingar þeir pen­ingar rata hverju sinni.

Frá því að Kjarninn gerði úttekt sína fyrst hefur kon­unum sem hún nær til fjölgað um helm­ing, farið úr sex í tólf. Körlunum hefur hins vegar líka fjölgað, alls um tvo, og eru nú líkt og áður sagði 84. Og hlut­falls­lega bilið milli þeirra ekki lækkað sem neinu nemur.

Ef 16 af stærstu einka­fjár­festum lands­ins eru einnig taldir með þá breyt­ist myndin aðeins. Körlunum fjölgar í 100 en kon­urnar eru 16. Hlutfall kvenna fer því upp í 16 pró­sent.

Því er ljóst að þótt dropi á gler­þakið, þá virð­ist langt í að það mynd­ist sprungur í því.

Miklar sviptingar á árinu 2019

Árið 2019 var þrátt fyrir allt ár mik­illa breyt­inga. Fyrst ber að nefna að fram­kvæmda­stjóri Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR), stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins, ákvað að hætta störfum. Það vakti mikla athygli þegar Harpa Jóns­dóttir, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, var ráðin í starfið. Þar með varð hún fyrsta konan til að stýra einum af „fjórum stóru“ líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, en sá hópur telur líka Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna, Gildi og Birta.

Samkvæmt nýbirtri sam­an­tekt fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands námu eignir LSR 1.019 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót, eignir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna 867 millj­örðum króna, Gildis 657 millj­örðum króna og Birtu 430 millj­örðum króna. Sam­an­lagt eru eignir þess­ara fjög­urra sjóða nálægt þrjú þús­und millj­örðum króna eða um 57 pró­sent af líf­eyri lands­manna.

Harpa Jónsdóttir tók við stjórnartaumunum hjá stærsta lífeyrissjóði landsins á síðasta ári.
Harpa Jóns­dóttir tók við stjórn­ar­taumunum hjá stærsta líf­eyr­is­sjóði lands­ins á síð­asta ári.

Það voru líka tölu­verðar breyt­ingar í banka­heim­inum. Bæði Arion banki og Kvika skiptu um banka­stjóra. Þar voru þó ráðnir tveir karlar í stað tveggja karla. Vert er að taka fram að tvær konur stýra tveimur af fjórum stærstu bönkum lands­ins, þær Birna Ein­ars­dóttir í Íslands­banka og Lilja Björk Ein­ars­dóttir í Lands­bank­anum. Það vekur þó athygli að kon­urnar starfa báðar í bönkum sem eru í rík­i­s­eigu.

Átta félög skiptu um forstjóra og átta karlar tóku við

Fyrir utan Arion banka og Kviku, sem báðir eru skráðir á aðal­l­ista Kaup­hallar Íslands, þá hafa sex önnur skráð félög um for­stjóra á síð­ast­liðnu ári. Það þýðir að átta af þeim 20 félögum sem skráð eru á aðal­l­ista, eða 40 pró­sent þeirra, skiptu um ein­stak­ling í brúnni.

Í öllum til­fellum var karli skipt út fyrir karl, enda stýra engar konur skráðu félagi á Íslandi. Þannig hefur það raunar verið frá því að Sigrúnu Rögnu Ólafs­dóttur var sagt upp hjá VÍS í ágúst 2016.

Á Íslandi eru fjórir spari­sjóðir enn starf­andi. Þremur þeirra er stýrt af körlum en einum af konu. Það er Spari­sjóður Suður-Þing­ey­inga sem er stýrt af spari­sjóðs­stjór­anum Gerði Sig­tryggs­dóttur.

Þá lúta alls fjögur skil­greind lána­fyr­ir­tæki eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Einu þeirra, Lykli, er styrt af konu, Lilju Dóru Hall­dórs­dóttur, en að öðru leyti halda karl­menn um þræð­ina innan þeirra. Um að ræða stór fyr­ir­tæki og stofn­anir. Hin fjögur eru Borgun, Lána­sjóður sveit­ar­fé­laga og Byggða­stofnun.

Fram­tíðin lána­sjóður er skráður eft­ir­lit­skyldur lán­veit­andi. Í byrjun mars 2018 var kona, Vala Hall­dórs­dóttir, ráð­inn sem fram­kvæmda­stjóri hans í stað karls. Þegar Fram­tíðin færð­ist yfir til Kviku frá GAMMA, þegar bank­inn keypti fjár­mála­fyr­ir­tækið, tók Rósa Krist­ins­dóttir við af Valgerði.

Þá eru tvö hagn­að­ar­drif­inn leigu­fé­lög í land­inu, Almenna leigu­fé­lagið og Heima­vellir. Öðru er stýrt af konu, Maríu Björk Ein­ars­dóttur, en hinu karli.

Karlægni allsráðandi hjá verðbréfafyrirtækjunum

Að venju er kynja­staðan verst hjá verð­bréfa­fyr­ir­tækjum og rekstr­ar­fé­lögum verð­bréfa­sjóða, þeirra sem hagn­ast af því að flytja pen­inga frá þeim sem eiga þá og í þau við­skipta­tæki­færi sem skap­ast, og þiggja þókn­ana­tekjur fyrir. Stærstu við­skipta­vinir flestra þeirra eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Samkvæmt yfir­lits­lista Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eru níu verð­bréfa­fyr­ir­tæki starf­andi á Íslandi. Þau eru ALM Verðbréf, Arctica Finance, Arev verð­bréfa­fyr­ir­tæki, Centra Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf, Fossar mark­aðir, Íslensk verð­bréf, Íslenskir fjár­festar, Jöklar-Verbréf og T Plús. Öllum er stýrt af körlum. Og þorri starfs­manna þeirra allra eru líka karlar.

Rekstr­ar­fé­lög verð­bréfa­sjóða eru líka níu tals­ins. Þau heita Akta sjóðir, GAMMA, Íslands­sjóðir, ÍV sjóðir, Júpíter rekstr­ar­fé­lag, Lands­bréf, Rekstr­ar­fé­lag Virð­ingar, Stefnir og Summa rekstr­ar­fé­lag. Þrjú þeirra skiptu um æðsta yfir­mann á síð­asta ári. Í öll skiptin var karl ráð­inn í stöð­una. Öllum rekstr­ar­fé­lögum verð­bréfa­sjóða er því áfram sem áður stýrt af körlum.

Hjá inn­heimtu­að­ilum (Aur app, Fjár­vakur, Inkasso, Momentum, Motus og Premium) er staðan þannig að stjórn­end­urnir eru Þrír karlar og tvær konur. Önnur þeirra, Eva Sóley Guð­björns­dóttir, er fram­kvæmda­stjóri Icelandair en Fjár­vakur var fært úr því að vera sjálf­stæð ein­ing og undir sviðið í fyrra.

Einn skipti­mark­aður með sýnd­arfé er eft­ir­lits­skyldur á Íslandi, fyr­ir­tækið Skipti­mynt ehf. Því er stýrt af karli. Þá eru tvær skráðar greiðslu­stofn­anir, Korta­þjón­ustan og Valitor. Báðum var stýrt af körlum þar til nýverið þegar for­stjóri Valitor sagði upp. Herdís Fjelsted, stjórn­ar­for­maður Valitor, tók við stöð­una tíma­bundið og telst Valitor því vera stýrt af konu, þrátt fyrir að að ráðn­ing Herdísar sé yfir­lýst tíma­bundin.

Herdís Fjelsted er starfandi forstjóri Valitor. Hún er líka stjórnarformaður félagsins og situr í stjórn Arion banka, sem á Valitor.
Herdís Fjelsted er starf­andi for­stjóri Valitor. Hún er líka stjórn­ar­for­maður félags­ins og situr í stjórn Arion banka, sem á Valitor.

Herdís stýrði áður Fram­taks­sjóði Íslands, sem var umsvifa­mik­ill umbreyt­ing­ar­fjár­festir á Íslandi á eft­ir­hrunsár­unum, og þá í eigu líf­eyr­is­sjóða og um tíma rík­is­banka. Þótt hlut­verki Fram­taks­sjóðs­ins sé að mestu lokið þá er hann enn starf­andi, lýtur eft­ir­lits­skyldu og er stýrt af karli.

Þá eru átta orku­fyr­ir­tæki í land­inu. Lengi vel var þeim öllum stýrt af körlum en 2018 var Berglind Rán Ólafs­dóttir ráðin fram­kvæmda­stjóri Orku Nátt­úr­unnar í kjöl­far mik­illa átaka innan þess fyr­ir­tækis vegna meintrar kyn­ferð­is­legrar áreitni.

Stjórnmál og stjórnsýsla

Þegar horft er víðar á áhrifa­stöður í sam­fé­lag­inu, þar sem pen­ingum er auð­vitað stýrt, en þó með öðrum hætti en í við­skipta­líf­inu, hallar víða enn á konur. Í rík­is­stjórn er kynja­hlut­fallið til að mynda enn körlum í hag. Þar sitja sex karlar og fimm konur. For­sæt­is­ráð­herra er hins vegar konan Katrín Jak­obs­dóttir. Það er í annað sinn í lýð­veld­is­sög­unni sem kona situr í því emb­ætti. Sú fyrsta var Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir sem var for­sæt­is­ráð­herra 2009-2013.

Þá er seðla­banka­stjóri karl en af þremur vara­seðla­banka­stjórum eru tvær konur, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir og Unnur Gunn­ars­dóttir.

Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir eru varaseðlabankastjórar annars vegar peningastefnu og hins vegar fjármálaeftirlits. Mynd: Samsett
Rannveig Sig­urð­ar­dóttir og Unnur Gunn­ars­dóttir eru vara­seðla­banka­stjórar ann­ars vegar pen­inga­stefnu og hins vegar fjár­mála­eft­ir­lits. Mynd: Samsett

Á Alþingi eru 24 kjörnar konur. Þær dreifast ójafnt á flokka. Mið­flokk­ur­inn, nú stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokkur lands­ins, sam­anstendur til að mynda af átta körlum og einni konu. Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum eru tólf karlar og fjórar konur.Hjá Pírötum eru karl­arnir fjórir en kon­urnar tvær og hjá Sam­fylk­ingu eru karl­arnir fjórir en kon­urnar þrjár. Kynja­hlut­fallið í tveimur minnstu þing­flokk­unum, hjá Viðreisn og Flokki fólks­ins sem sam­an­lagt eru með sex þing­menn, eru jafnt.

Einungis tveir þing­flokkar eru með fleiri konur inn­an­borðs en karla: ann­ars vegar Vinstri græn, þar sem kon­urnar eru sex og karl­arnir fimm, og hins vegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, þar sem kon­urnar eru fimm en karl­arnir þrír. Allir karl­arnir þrír hjá Fram­sókn­ar­flokknum eru þó í mjög áhrifa­miklu stöðum: tveir eru ráð­herrar og sá þriðji for­maður fjár­laga­nefndar, áhrifa­mestu þing­nefndar Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár