Morðið á Nedim Yasar

Þann 19. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn var Nedim Yasar skot­inn til bana eftir útgáfu­hóf sitt. Hann var þekktur í und­ir­heimum Kaup­manna­hafnar en bókin hans Rødder fjallar um líf hans þar og þá ákvörðun að snúa baki við und­ir­heima­líf­inu.

Nedim Yasar
Nedim Yasar Mynd: Skjáskot úr frétt TP

Mánu­dags­kvöldið 19. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn var haldið hóf í Kaup­manna­höfn. Tilefnið var útkoma nýrrar bókar, Rødder. Tíu mín­útum eftir að hóf­inu lauk lá höf­undur bók­ar­innar örendur við bíl sinn. Skotinn í höf­uðið.

Nedim Yasar, sem skot­inn var til bana þetta mánu­dags­kvöld, var ekki þekktur rit­höf­undur. Rødder – en gangsters udvej (Rætur – útleið glæpa­manns) var fyrsta og jafn­framt eina bók hans. Hann var hins vegar þekktur í und­ir­heimum Kaup­manna­hafnar en bókin fjallar um líf hans þar og þá ákvörðun að snúa baki við und­ir­heima­líf­inu.

Nedim Yaser fædd­ist í Tyrk­landi árið 1987 en flutt­ist með for­eldrum sínum til Dan­merkur árið 1991. Fjöl­skyldan sett­ist að í Ballerup, skammt norðan við Kaup­manna­höfn. Íbúðin var í blokk og nær allir íbú­arnir þar, og einnig í tveimur öðrum blokkum í næsta nágrenni, tyrk­neskir inn­flytj­endur. Nedim umgekkst nær ein­göngu tyrk­neska stráka sem bjuggu í blokk­unum þremur. Þeir voru, að sögn Nedims, uppi­vöðslu­samir og lentu fljótt upp á kant við kenn­ara og skóla­yf­ir­völd. Mörgum þess­ara stráka var vísað úr skóla, þar á meðal Nedim, þá var hann fimmtán ára. Hann hafði skvett kakói yfir einn kennar­ann. Eitt helsta athvarf strák­anna eftir að skóla lauk á dag­inn var að fara í ung­linga­klúbb­inn í hverf­inu. Nedim segir frá því í bók sinni að eftir að hann var rek­inn úr skól­anum hékk hann heima eða var úti með jafn­öldrum, sem líka hafði verið vísað úr skóla, þangað til ung­linga­klúbb­ur­inn var opn­aður síð­degis. Einn dag­inn þegar þeir félagar komu að dyr­unum á klúbbnum var þeim sagt að þeir fengju ekki að koma inn, hvorki í dag né fram­vegis. Ástæðan var sú að aðrir krakkar væru hræddir við þá tyrk­nesku sem voru yfir­gangs­samir og stríddu þeim yngri.[adspot]

Voru annars flokks borgarar

Í útvarps­við­tali mörgum árum seinna sagði Nedim að litið hefði verið niður á Tyrkina í hverf­inu, þeir hefðu verið kall­aðir ,,fucking perkere“ og sagt að þeir ættu að hypja sig heim til Tyrk­lands. ,,Mamma þorði ekki ein út í búð, vildi alltaf að ég færi með sér.“ En við Tyrkirnir héldum saman og hjálp­uðum hver öðrum. Þetta var ekki skemmti­legt líf og dag­arnir hver öðrum líkir. Við skynj­uðum að við vorum ann­ars flokks borg­arar í Danmörku.“

Sogaðist inn í vafasaman félagsskap

Dag nokkurn, Nedim var ekki orð­inn sextán ára, gáfu nokkrir eldri piltar sig á tal við Nedim og félaga hans. Strák­arnir, sem alltaf voru skít­blankir kunnu vel að meta þessa athygli þeirra eldri sem virt­ust hafa næga pen­inga, áttu meira að segja bíla, svarta kagga eins og sáust í amer­ískum gang­ster­kvik­myndum. ,,Við vorum hissa á þessum vin­gjarn­leg­heitum en veltum því svo sem ekki mikið fyrir okkur. Einn dag­inn kom hins vegar að því að þeir eldri gerðu strák­unum grein fyrir því að þeir skuld­uðu þeim greiða. ,, Við þorðum ekki að mót­mæla, vorum hræddir um að missa félags­skap­inn og yrði hafnað eins og oft hafði gerst. Með þessum hætti sog­uð­umst við inn í afbrota­heim­inn.“

Los Guerreros

Nedim elt­ist og þroskað­ist. Skyndi­lega hafði hann pen­inga milli hand­anna og ók um á svörtum kagga. Pen­ing­ana þén­aði hann á hass­sölu, mikla pen­inga. En hann sá að for­ingj­arnir, þeir sem stjórn­uðu söl­unni þén­uðu marg­falt meira. Átján ára hlaut hann tveggja ára fang­els­is­dóm fyrir lík­ams­árás. Skömmu eftir að hann var lát­inn laus bauðst honum að verða félagi í glæpa­geng­inu Bandidos. En Nedim dreymdi um að verða for­ingi og í stað þess að ganga til liðs við Bandidos varð hann for­ingi Los Guer­reros – Stríðs­mann­anna sem var eins konar stuðn­ings­hópur Bandidos. Nú var hann kom­inn í hóp þeirra sem lokk­uðu til sín unga drengi, með nákvæm­lega sömu aðferðum og not­aðar höfðu verið á hann sjálfan. Yngri bróðir Nedim varð líka félagi í Los Guer­reros. Nedim sagði að móðir sín hefði verið mjög ósátt við þá bræður ,,en okkur var slétt sama um það og að lokum hætti hún alveg að skipta sér af okkur.“

Sneri við blaðinu

Vorið 2012, sat Nedim, þá orð­inn 25 ára, í fang­elsi i Køge. Dag einn sá hann í sjón­varp­inu sagt frá sér­stöku verk­efni á vegum danskra stjórn­valda. Verk­efnið var ætlað þeim sem vildu segja skilið við heim glæpa og afbrota. ,,Ég hafði oft velt því fyrir mér að segja skilið við glæpa­heim­inn og þarna sá ég skyndi­lega mögu­leik­ann“ sagði Nedim í við­tali við danskt dag­blað. Þegar afplán­un­inni lauk skráði hann sig í Exit programmet, eins og verk­efnið nefn­ist. Það var ekki auð­velt, gömlu félag­arnir vildu fá hann aftur í félags­skap­inn og hót­uðu honum ,, ég svaf með hníf undir kodd­anum mán­uðum saman“.

Exit- verk­efnið er sér­sniðið fyrir hvern og einn og áhugi Nedim beind­ist að kennslu og því að starfa með vand­ræðaung­lingum, eins og hann orð­aði það sjálfur. Hann þurfti hins­vegar að ljúka grunn­skóla­námi áður en lengra yrði haldið. Eftir að hafa lokið grunn­skóla­próf­inu sett­ist hann í und­ir­bún­ings­deild kenn­ara­skól­ans Campus Carlsberg í Kaup­manna­höfn og hóf síðan kenn­ara­nám við sama skóla. Meðfram nám­inu var Nedim þátta­stjórn­andi hjá útvarps­stöð­inni Radio24syv, sá ásamt tveimur öðrum um þátt­inn Politiradio. Við þessa þátta­gerð naut Nedim þekk­ingar sinnar á und­ir­heimunum og því sem þar fer fram.

Bókin

Marie Louise Toksvig, sam­starfs­kona Nedim hjá Radio24syv hvatti hann til að skrifa bók um líf sitt. Marie Louise hefur ára­tuga reynslu í blaða­mennsku og hefur skrifað nokkrar bækur, úr varð að hún skrif­aði bók­ina sem ber heitið Rødder – en gangsters udvej. Í bók­inni, sem kom út þriðju­dag­inn 20. nóv­em­ber, segir Nedim frá æsku sinni og upp­vexti, hvernig hann dróst inn í heim glæpa og afbrota og hvernig honum tókst að finna leið­ina til baka til sam­fé­lags­ins, eins og hann komst að orði. Í bók­inni nafn­greinir hann hvorki ein­stak­linga né sam­tök en segir hins­vegar ítar­lega frá ,,vinnu­að­ferðum“ glæpa­gengj­anna eins og hann kynnt­ist þeim.

Bjóst við hinu versta

Að sögn Marie Louise Toksvig vildi Nedim hvorki fara huldu höfði né njóta lög­reglu­verndar. Í bók­inni kemur fram að for­ingjar danskra glæpa­gengja líti nán­ast á það sem dauða­sök að yfir­gefa félags­skap­inn. Marie Louise Toksvig sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að Nedim hefði uppá síðkastið oft talað um að ,,þeir“ kæmu á eftir sér og í við­tali við Ekstra Blaðið vegna útkomu bók­ar­innar sagð­ist hann vita að ekki væru allir fyrr­ver­andi félagar sínir hrifnir af því að hann segði frá aðferðum þeirra. Í síð­ustu viku sýndi DR, danska sjón­varpið, heim­ilda­þátt um Nedim Yasar. Þátt­ur­inn var að miklu leyti byggður á við­tali frétta­manns DR við Nedim en við­talið var tekið fjórum dögum áður en hann dó. Þar sagði hann frá því að fyrir rúmu ári hefði maður vopn­aður hnífi bankað á úti­hurð­ina en lagt á flótta þegar Nedim sner­ist til varnar.

Maðurinn sem skaut Nedim Yasar var einn að verki, að sögn sjón­ar­votta. Eftir að hafa hleypt af tveimur skotum sem bæði hæfðu Nedim hvarf mað­ur­inn út í myrkrið og hefur ekki náðst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár