Veiran les ekki minnisblöð og reglugerðir

„Veiran les ekki minn­is­blöð sótt­varna­læknis og ekki reglu­gerðir ráðu­neyt­is­ins,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, um gagn­rýni sem fram hefur komið á mis­ræmi til­lagna hans og ákvörð­unar ráð­herra.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn segj­ast finna fyrir sam­stöðu hjá rík­is­stjórn­inni á þær aðgerðir sem gripið hefur verið til síð­ustu daga. „Rík­is­stjórnin stendur þétt við bakið á okkur,“ sagði Víðir á upp­lýs­inga­fundi dags­ins en í frétt Frétta­blaðs­ins í dag kom fram að nokkrir þing­menn og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins væru með efa­semdir á aðgerð­irnar.

94 greindust með veiruna inn­an­lands í gær og er þetta þriðji dag­ur­inn í röð sem álíka mörg smit hafa greinst. 23 liggja á Land­spít­al­anum með COVID-19 og þrír á gjör­gæslu og í önd­un­ar­vél. Lang­flestir þeirra sem greindust í gær eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Rúmlega þús­und manns hafa greinst með veiruna frá því að þriðja bylgjan hófst um miðjan sept­em­ber. 850 manns eru nú í ein­angrun. Sótt­varna­læknir telur að á næstu dögum eigi svip­aður fjöldi eftir að grein­ast dag­lega og að inn­lögnum á sjúkra­hús eigi eftir að fjölga að sama skapi.

„Það er hlut­verk stjórn­mála­manna að spyrja ágengra spurn­inga,“ sagði Víðir, spurður út í frétt Frétta­blaðs­ins í morgun. Hann sagði almanna­varnir vilja fá rýni á það sem verið væri að gera. „Það að ein­hver hafi skoðun sem ein­hverjum örðum finnst skrítin – það er bara þannig. Við fögnum allri umræðu,“ sagði Víðir og ítrek­aði að full sam­staða væri í rík­is­stjórn­inni.

Eins og landslið

Þórólfur sagði það mjög mik­il­vægt að sam­staða væri hjá stjórn­völdum og að ráð­herrar og þing­menn yrðu að sýna sam­stöðu eins og verið væri að biðja almenn­ing að gera. „Ég lít þannig á að fólk geti verið ósam­mála og komið fram með sínar skoð­anir en þegar við höfum ákveðið að gera eitt­hvað þá standi menn saman um það. Að halda áfram að karpa um það út í hið óend­an­lega gerir ekk­ert annað en að rjúfa sam­stöð­una.“

Líkti hann þessu við sam­stöð­una og stuðn­ing­inn við lands­lið í fót­bolta. Fólk hefði skiptar skoð­anir en þegar lands­liðið mætti á völl­inn og leik­ur­inn byrjar hvetji allir það áfram. „Eini sanni sann­leik­ur­inn um hvernig á að gera þetta er ekki til,“ sagði hann um mis­mun­andi skoð­anir á aðgerðum í far­aldr­inum.

Þórólfur vitn­aði í umræðu um mis­ræmi í hans til­lögum um íþrótta­iðkun í minn­is­blaði og svo ákvörðun ráð­herra sem sett var fram í reglu­gerð. Honum finnst ástæðu­laust að dvelja við slíkt því nú væri mik­il­væg­ast að allir legð­ust á eitt til að minnka líkur á smiti. „Veiran les ekki minn­is­blöð sótt­varna­læknis og ekki reglu­gerðir ráðu­neyt­is­ins,“ sagði hann.

Hvatt væri áfram til þess að ónauð­syn­leg hópa­myndun, sem krefst nálægðar, verði frestað.

Grunnprinsippin eru skýr

Veiran smit­ast með dropa­smiti, snert­ismiti og úða­smiti, rifj­aði hann upp. Til að minnka líkur á dropa­smiti þyrfti að forð­ast nánd við aðra og við­hafa 1-2 metra nánd­ar­reglu. Einnig gætu and­lits­grímur hjálpað. Hvað snert­ismit varðar sé mik­il­vægt að þvo hendur og spritta og hreinsa sam­eig­in­lega snertifleti. Til að forð­ast úða­smit ætti fólk að forð­ast illa loft­ræsta staði og nota grímur.

„Þetta eru grunn prinsippin sem þarf að hafa í huga,“ sagði Þórólfur. Dæmi væru um að ein­stak­lingar væru að leita leiða til að koma sér hjá því að taka þátt í aðgerðum, flytja til dæmis lík­ams­rækt út úr húsum og undir beran himin. Aðrir hafi skil­greint starf­semi sína upp á nýtt svo að reglu­gerðir nái ekki yfir þá. „Þetta finnst mér leitt að heyra og þetta mun ekki hjálpa okkur í bar­átt­unni gegn veirunni.“

Hann lagði áherslu á að flestir væru að fara eftir leið­bein­ingum en minnti á að það væri nóg að fáir gerðu það ekki, „þá getum við sett af stað far­aldur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár