Regnvatn nánast alls staðar á jarðríki óhæft til drykkjar

Okkur finnst mörgum rign­ingin góð en vegna athafna mann­anna er ekki lengur öruggt að drekka regn­vatn víð­ast hvar í ver­öld­inni, sam­kvæmt nýrri rann­sókn.

Eilífðarefnin finnast í regnvatni alls staðar um heiminn. Uppruni þeirra er oftast á vesturlöndum en það eru fátækari íbúar heims sem þurfa að súpa seyðið af því.
Eilífð­ar­efnin finn­ast í regn­vatni alls staðar um heim­inn. Uppruni þeirra er oft­ast á vest­ur­löndum en það eru fátæk­ari íbúar heims sem þurfa að súpa seyðið af því. Mynd: Pexels

Þau eru oft kölluð eilífð­ar­efni, PFAS-efnin mann­gerðu, sem vegna stór­kost­legra eig­in­leika sinna hafa verið afar eft­ir­sókn­ar­verð í hverslags vörur allt frá því á sjötta ára­tug síð­ustu aldar. En ef eitt­hvað er of gott til að vera satt, eins og það að efna­hóp­ur­inn sé snilldar upp­finn­ingin ein, er það lík­lega einmitt oft of gott til að vera satt.

Og á dag­inn hefur sann­ar­lega komið að PFAS-efni hafa gert meiri skaða fyrir umhverfið en nokkurn gat órað fyrir. Þessi ónátt­úru­legu efni hafa borist um alla nátt­úr­una með vindum og vatni og finn­ast nú allt frá norð­ur­hjara til hita­belt­is­skóga og Suð­ur­skauts­lands­ins.

Vís­inda­menn við Stokk­hólms­há­skóla hafa kom­ist að því að efnin er að finna í regn­vatni um alla jörð – meira að segja á Suð­ur­skauts­land­inu og á háslétt­unni í Tíbet. Og þar sem þau brotna flest ekki niður hafa þau safn­ast upp á plánet­unni okkar í sjö ára­tugi.

Líkt og með önnur mann­anna verk þá var ekki talið að heilsu manna og heil­brigði líf­ríkis stæði ógn af PFAS-efn­unum er fram­leiðsla og notkun þeirra hófst. En við­mið­un­ar­mörk á heilsu­spill­andi magni þeirra hafa verið færð sífellt neðar síð­ustu tutt­ugu ár enda benda rann­sóknir til að þau geti valdið marg­vís­legu heilsutjóni. Sum eru jafn­vel talin krabba­meins­vald­andi.

Í iðn­vædd­ustu ríkjum heims, m.a. á Íslandi, er regn­vatni yfir­leitt ekki safnað til neyslu. Á því ger­ist ekki þörf. En í fátæk­ari ríkjum er regn­vatn oft ein helsta upp­spretta drykkj­ar­vatns.

Hvað er PFAS?

Á vef Umhverf­is­stofn­unar stendur að PFAS (e. per- and polyflu­or­inated alkyl substances) sé stór efna­hópur sem sam­anstendur af meira en 4700 mann­gerðum efnum. Öll eiga þau það sam­eig­in­legt að hafa mjög sterkt efna­tengi á milli kolefnis og flú­oratóma sem gerir það að verkum að þau eru afar óhvarf­gjörn og stöðug við notkun og í umhverf­inu. Rann­sóknir benda til að efnin brotni ekki að fullu niður í nátt­úr­unni. Sum þeirra brotna ekk­ert niður á meðan önnur brotna mjög hægt niður en mynda þá önnur PFAS-efni. Því eru efnin kölluð þrá­virk og geta magn­ast upp í mönnum, dýrum og umhverf­inu með tím­anum.

Efnin eru mörg hver vatns­leys­an­leg og hreyf­an­leg í jarð­vegi. Þegar þau losna út í umhverfið ferð­ast þau aðal­lega með loft- og vatns­straumum og geta því borist langa leið frá upp­runa sínum. Þau hafa fund­ist bæði í líf­verum og í umhverf­inu um allan heim meðal ann­ars á Norð­ur­lönd­unum og norð­ur­skauts­svæð­inu.

Hvar er líklegt að finna þau?

  • Textíll og leður sem eru vatns- eða fitu­frá­hrind­andi (t.d. fatn­aður, skór, gólf­mottur, tjöld, áklæði og töskur)
  • Við­loð­un­ar­fríar (e. non-stick) pönnur og pottar
  • Snyrti­vörur
  • Mat­væla­um­búðir
  • Hreinsi­efni
  • Raftæki
  • Skíðavax
  • Vatns­vörn
  • Málning og lökk
  • Slökkvi­tækja­froða

Hvernig komast þau inn í líkamann?

  • Með inn­öndun
  • Í gegnum fæð­una
  • Með upp­töku í gegnum húð

Hvernig geta þau haft áhrif á heilsu?

  • Skjald­kirtils­sjúk­dómar
  • Ónæm­is­eit­ur­hrif (e. immunotoxicity)
  • Krabba­mein í nýrum og eistum
  • Lifr­ar­skemmdir
  • Eit­ur­hrif á þroskun (e. develop­mental toxicity)
  • Áhrif á æxlun og frjó­semi
  • Lækkun á fæð­ing­ar­þyngd nýbura
  • Hækkað kól­esteról
  • Auknar líkur á syk­ur­sýki og offitu

Rannsókn vís­inda­mann­anna við Stokk­hólms­há­skóla hefur kveikt á við­vör­un­ar­bjöllum og kallað hefur verið eftir því að notkun PFAS-efna verði tak­mörkuð veru­lega eða bönnuð.

„Það má ekki vera þannig að fáir hagn­ist á því að menga drykkj­ar­vatn fyrir millj­ónir ann­arra,“ segir Jane Muncke, þýskur sér­fræð­ingur í umhverf­is­fræðum. Kostn­aður við að hreinsa vatn af þessum efnum sé gríð­ar­legur. Hann ætti iðn­að­ur­inn sem fram­leiðir efnin að greiða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár